Ferill 1157. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2201  —  1157. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um flutning einstaklinga til Nígeríu og endurviðtöku.


     1.      Hversu margir einstaklingar hafa verið fluttir til Nígeríu af hálfu íslenskra stjórnvalda gegn vilja sínum á undanförnum þremur árum?
    Fjórir einstaklingar hafa verið fluttir í fylgd lögreglu til Nígeríu. Fyrirhugaðir eru fleiri slíkir flutningar.

     2.      Hafa íslensk stjórnvöld náð samkomulagi við nígerísk stjórnvöld um endurviðtöku nígerískra ríkisborgara sem vísað hefur verið úr landi? Ef svo er, hverjar eru formlegar kröfur íslenskra stjórnvalda varðandi móttöku fólks í kjölfar endurviðtöku?
    Heimferðardeild ríkislögreglustjóra er í virku samtali við nígerísk stjórnvöld um endurviðtöku eigin ríkisborgara sem hafa fengið frávísun eða brottvísun frá Íslandi og neita að fara sjálfviljugir.
    Samkvæmt gildandi lögum er það á ábyrgð Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála að meta hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd eigi að fá efnismeðferð hér á landi, og þannig mögulega áframhaldandi dvöl, eða hvort vísa eigi honum úr landi. Við rannsókn er litið til frásagnar umsækjanda, gagna sem hann leggur fram og til þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í viðtökuríki hans, t.d. skýrslur og gögn alþjóðlegra samtaka, frjálsra félagasamtaka og annarra ríkja. Við slíkt mat taka stjórnvöld m.a. afstöðu til þess hvort synjun umsóknar muni brjóta gegn alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, svo sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 42. gr. laga um útlendinga (non-refoulement). Öll mál eru því skoðuð og metin á einstaklingsbundnum grundvelli með tilliti til sérstakra aðstæðna hvers og eins. Að þessu sögðu eru engar sérstakar formlegar kröfur settar fram af íslenskum stjórnvöldum varðandi móttöku ríkja á eigin ríkisborgurum. Ráðuneytið bendir jafnframt á að nígerískir ríkisborgarar sem er vísað úr landi geta farið sjálfviljugir til Nígeríu með aðstoð íslenskra stjórnvalda, þar á meðal með fjárhagsstyrk til að stuðla að enduraðlögun þeirra í heimaríki.