Ferill 1133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2205  —  1133. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um heilbrigðisstarfsmenn sem starfa ekki við heilbrigðisþjónustu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margir heilbrigðisstarfsmenn með gilt starfsleyfi starfa ekki við heilbrigðisþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir heilbrigðisstéttum, sérgreinum og sveitarfélögum.

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki yfirlit yfir fjölda heilbrigðisstarfsmanna með gilt starfsleyfi sem starfa ekki við heilbrigðisþjónustu. Hins vegar birtir embætti landlæknis á island.is mælaborð yfir mannafla í heilbrigðisþjónustu á Íslandi, raðað niður eftir fjölda starfsleyfa, útgáfu starfsleyfa, áætluðum fjölda starfandi heilbrigðisstarfsfólks og fjölda útskrifaðra.
    Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis kallar embættið um hver áramót eftir áætluðum tölum um starfandi heilbrigðisstarfsfólk frá stéttarfélögum, svo sem Félagsráðgjafafélaginu, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Iðjuþjálfafélaginu og Sálfræðingafélaginu. Þær upplýsingar byggja fyrst og fremst á félagsmannatali og alltaf er sá möguleiki fyrir hendi að hluti félagsmanna starfi við annað en viðkomandi starfsgrein þótt greidd séu félagsgjöld. Því er ekki um nákvæmar tölur að ræða. Hér á landi er ekki skylduaðild að fag- eða stéttarfélögum þannig að sá möguleiki er líka fyrir hendi að fólk starfi við sína faggrein en sé ekki skráð í viðeigandi fagfélag.
    Því er ljóst að til að geta veitt svar við fyrirspurninni þyrfti að ráðast í mikla greiningarvinnu og ítarlega staðlaða upplýsingaöflun frá fag- og stéttarfélögum heilbrigðisstétta, heilbrigðisstofnunum og sveitarfélögum. Er það mat ráðuneytisins að vinna við að ljúka fyrirspurninni sé umfram það sem lagt er til grundvallar í 57. gr. þingskapalaga, nr. 55/1991.
    Heilbrigðisráðuneytið vinnur að mönnunargreiningu þvert á heilbrigðiskerfið sem miðar að því að móta framtíðarsýn ráðuneytisins um gögn og greiningar, ná yfirsýn yfir mönnun heilbrigðisstétta og undirbyggja mönnunaráætlun til framtíðar. Þá skipaði heilbrigðisráðherra starfshóp í september 2023 um framtíð læknisþjónustu á Íslandi. Verkefni starfshópsins er m.a. að meta þörf og hlutverk læknisþjónustu til framtíðar.