Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2208 — 518. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni um konur í fangelsum.
Unnið er að heildarendurskoðun fullnustukerfisins og er starfshópur að störfum. Unnin er greining á stöðu fullnustumála á Íslandi, áskoranir í málaflokknum og þar á meðal stöðu kvenna í fangelsum. Mikilvægt er að skoða sérstaklega vistun kvenna í fangelsum og er gert ráð fyrir að við stefnumörkun innan fullnustukerfisins komi fram tillögur sem lúta að bættum aðbúnaði kvenna í fangelsum sem gæti m.a. leitt til breytinga á vistun kvenna í fangelsum frá því sem nú er.
1. Er gert ráð fyrir konum í nýju fangelsi á Litla-Hrauni?
Nýju öryggisfangelsi á lóðinni Stóra-Hrauni er ætlað að koma í stað fangelsisins á Litla-Hrauni þar sem aðeins karlar hafa fullnustað dóma sína hingað til. Með nýju fangelsi er ætlunin að reisa öryggisfangelsi á háu öryggisstigi þar sem áhersla er lögð á að bæta aðbúnað fanga og aðstöðu starfsfólks með bættri aðstöðu til heimsókna. Áfram verður gert ráð fyrir að nýtt öryggisfangelsi visti aðallega karla en við hönnun þess er þó tekið tillit til þess að konur og kynsegin gætu vistast þar ef aðstæður í fangelsiskerfinu krefjast þess.
2. Er áætlað að vista konur áfram í öryggisfangelsi á Hólmsheiði?
Ekki liggur fyrir, að svo stöddu, breyting á hlutverki fangelsisins á Hólmsheiði, sem bæði skammtímavistun fyrir konur sem og langtímavistun fyrir konur sem ekki geta vistast við opnari aðstæður.
3. Verður fangelsisvist að fullu kynjaskipt?
Mikilvægt er að tryggja kynjaskiptingu í fangelsisvist. Hefur fangelsisvist verið að fullu kynjaskipt í fangelsinu á Hólmsheiði og með úrbótum á fangelsinu á Sogni, sem unnið er að, verður hægt að tryggja bætta kynjaskiptingu.
4. Hversu mikla þörf telur ráðherra á öryggisfangelsi fyrir konur á Íslandi?
Kvenfangar eru að jafnaði um 8–10% þeirra sem vistast í fangelsum hverju sinni og hlutfall kvenna sem þurfa að vistast við hátt öryggisstig er lágt. Er því ekki þörf á því, að svo stöddu, að byggja öryggisfangelsi fyrir konur á Íslandi en tryggja þarf að konur geti vistast í nýju öryggisfangelsi, þar sem tryggð verður full kynjaskipting.