Ferill 1193. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2210  —  1193. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um stöðugildi í almennri löggæslu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu mörg stöðugildi voru í almennri löggæslu á hverja 10.000 íbúa landsins að jafnaði árin 2017–2024?

    Í neðangreindri töflu má sjá stöðugildi lögreglumanna á hverja 10.000 íbúa árin 2017– 2023.

Ár Fjöldi stöðugilda 1 á hverja 10.000 íbúa Almennir lögreglumenn á hverja 10.000 íbúa Almennir lögreglumenn og lögreglunemar á hverja 10.000 íbúa
2017 19,71 7,4 7,7
2018 20,64 5,7 7,6
2019 21,22 5,6 7,4
2020 21,01 4,7 6,6
2021 20,75 5,5 6,9
2022 22,59 5,0 6,9
2023 23,08 4,6 7,5

    Tölfræði fyrir árið 2024 liggur ekki fyrir og er því ekki hluti af svarinu.

1    Undir stöðugildin falla menntaðir lögreglumenn, afleysingamenn og lögreglunemar.