Ferill 1000. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2212  —  1000. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um gervigreind.


     1.      Hefur ráðherra látið gera úttekt á því með hvaða hætti væri hægt að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð?
    Í ráðuneytinu hefur ekki farið fram formleg vinna við að greina með hvaða hætti hægt væri að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð. Þó má nefna að hluti stofnana ráðuneytisins nýtir sér gervigreind nú þegar í einhverjum mæli. Ráðuneytið hefur jafnframt til skoðunar að fara í slíka vinnu enda ljóst að tækifæri til hagnýtingar gervigreindar eru ótvíræð. Ráðuneytið hefur einnig í skoðun að fara af stað með tilraunaverkefni sem lýtur að því að nýta gervigreind til úrlausnar tiltekinna verkefna. Rétt er að nefna að stjórnvöld hafa mótað stefnu varðandi hagnýtingu gervigreindar auk leiðbeininga um notkun gervigreindar hjá hinu opinbera. Leiðbeiningunum er ætlað að stuðla að því að opinberir aðilar nýti tækifæri gervigreindar til að bæta opinbera þjónustu og skilvirkni í störfum með ábyrgum, gagnsæjum og áreiðanlegum hætti.

     2.      Hvaða tækifæri eru í notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
    Innviðaráðuneytið hefur ásamt undirstofnunum lagt áherslu á að auka sjálfvirkni í ferlum og störfum stofnana og nýta upplýsingatækni til að veita samfélaginu framúrskarandi þjónustu og í því felast tækifærin einna helst, ásamt aukinni skilvirkni og hagræðingu. Farin hefur verið sú leið að nýta gervigreind og sjálfvirknivæðingu m.a. með persónulegum þjónustusíðum, sjálfsafgreiðslu, stafrænum mælaborðum og snjallmennum þar sem handvirkir ferlar og þjónustuleiðir, eins og skil á gögnum og svörun einfaldra fyrirspurna, hafa verið þróuð í rafrænt og sjálfvirkt ferli.
    Meðal tækifæra sem ráðuneytið sér til frekari nýtingar á gervigreind innan ráðuneytisins og stofnana þess þegar fram líða stundir má nefna gagnaúrvinnslu, greiningu, víðtækari upplýsingaöflun og úrvinnslu á texta, svo sem við ákveðna hluta í gerð frumvarpa, greinargerða og skýrslna. Gervigreindin er jafnframt gagnleg við túlkun á gögnum á erlendum tungumálum. Gervigreind gæti einnig verið gagnleg til aðstoðar við yfirferð á umsögnum úr samráðsgátt við mótun stefnu og löggjafar og hjálpað við að spegla viðhorf og þarfir aðila.

     3.      Hvaða áskoranir fylgja notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
    Við notkun gervigreindar er nauðsynlegt að gæta að ákvæðum persónuverndar og réttmæti tillagna gervigreindarinnar. Það getur verið erfitt að forðast hlutdrægni því gervigreind byggir á gögnum sem geta innihaldið fordóma. Notkun gervigreindar krefst því hæfni starfsfólks til að tryggja réttmæti gagna og tillagna gervigreindarinnar og einnig hæfni í því að meta hvernig og í hvaða tilvikum skuli nýta hana. Það að hið opinbera nýti í meira magni gervigreind við lausn sinna verkefna og í þjónustu almennings krefst þess að hið opinbera sé á sama tíma sveigjanlegt til að laga sig að örri þróun í gervigreind og lagabreytingum er lúta m.a. að persónuvernd og öryggi gagna. Einnig ber að hafa í huga við notkun gervigreindar að uppruni gagna liggur ekki fyrir, en slíkt gerir notkun opinberra aðila á henni varasama. Þá þarf að huga að þeim hópum sem ekki geta nýtt sér tæknina í þjónustu ráðuneytisins og stofnana, svo sem fólk með sjónskerðingu eða fólk með þroskahömlun, sumt eldra fólk og fólk sem hefur ekki náð að tileinka sér tæknina.