Ferill 651. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2213  —  651. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um gervigreind.


     1.      Hefur ráðherra látið gera úttekt á því með hvaða hætti væri hægt að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð?
    Ráðherra hefur ekki látið gera sérstaka úttekt á möguleikum á hagnýtingu gervigreindar á málefnasviðum ráðuneytisins eða gagnvart stjórnsýslu þess. Ráðuneytið hefur hins vegar verið í samstarfi við Stafrænt Ísland sem hefur það hlutverk að skoða mögulega hagnýtingu gervigreindar hjá hinu opinbera. Ráðuneytið hefur miklar væntingar til þeirrar vinnu og ekki síst til þeirra viðmiða sem verða sett um notkun gervigreindar hjá ríkinu og stafrænna lausna. Ljóst er að miklir möguleikar eru hjá ráðuneytinu og Stjórnarráðinu í heild að nýta gervigreind til að auka skilvirkni í þjónustu og hvers konar upplýsingagjöf, t.d. með samskiptum og svörum við fyrirspurnum frá almenningi sem byggjast á fyrirliggjandi gagnasafni ráðuneytisins. Mikilvægt er að Stjórnarráðið og stofnanir ríkisins séu samstiga í þessari þróun til framtíðar.
    
     2.      Hvaða tækifæri eru í notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
    Þó að gervigreind hafi verið í þróun í mörg ár þá varð nýlega grundvallarbreyting um allan heim með tilkomu gervigreindarinnar ChatGPT sem setti gervigreind með miklum þunga í kastljósið og áskoranir sem fylgja henni.
    Forsætisráðuneytið gaf út árið 2021 stefnu Íslands um gervigreind. Í stefnunni kemur m.a. fram að menntun í takt við tímann sé ein af þremur grunnstoðum þegar kemur að stefnu Íslands um gervigreind og er bent á þau atriði sem mikilvægust eru til að tryggja að menntakerfi styðji við uppbyggilega og siðferðilega þróun við innleiðingu og notkun gervigreindar á komandi árum og áratugum. Þessi stefna er nú í endurskoðun á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis og hefur mennta- og barnamálaráðuneytið komið að mótun aðgerðaáætlunar sem m.a. snýr að menntakerfinu og ólíkum stigum þess. Áhersla er á læsi og gagnrýna hugsun, uppbyggingu sérhæfingar, fjölgun tæknimenntaðra og möguleika í notkun gervigreindar í kennslu. Ljóst er að tækniþróun er hröð á þessu sviði sem skapar stöðugt nýjar áskoranir og tækifæri. Því er mikilvægt að ráðuneytið móti heildstæða stefnu um nýtingu gervigreindar á öllum málefnasviðum þess, einkum þegar kemur að börnum og ungmennum. Þess má geta að í ráðuneytinu fer um þessar mundir fram vinna við mótun annarrar aðgerðaáætlunar fyrir árin 2024–2027 í samráði við ýmsa hagaðila vegna innleiðingar menntastefnu til ársins 2030. Í þeirri vinnu er lykilatriði að styðjast við alþjóðleg viðmið og stefnumótun, en á undanförnum árum hefur gervigreind verið mikið til umræðu hjá alþjóðastofnunum á sviði mennta- og barnamála og sett hafa verið fram ýmiss konar viðmið og áherslur, þar á meðal hjá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD), Evrópuráðinu, Evrópusambandinu og í norrænu samstarfi.
    Meðal aðgerða sem eru í mótun á vegum ráðuneytisins í tengslum við menntastefnu til ársins 2030 er stefna um stafrænar lausnir í skólastarfi með það að markmiði að börn og ungmenni séu í stakk búin til að athafna sig í umhverfi þar sem gervigreind og aðrar stafrænar lausnir eru notaðar á ábyrgan og fjölbreyttan hátt með siðferðileg gildi og mannréttindi að leiðarljósi. Lagt er til að mótuð verði stefna um stafrænar lausnir og gervigreind í menntun sem byggist á stefnu Íslands um gervigreind og að unnið verði að því að gervigreind og aðrar stafrænar lausnir nýtist sem verkfæri kennara, barna og ungmenna í almennu skóla- og frístundastarfi.
    Fjölmörg tækifæri eru til hagnýtingar gervigreindar á öllum málefnasviðum ráðuneytisins þegar kemur til að mynda að leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, velferðarþjónustu, barnavernd og frístundastarfi. Einnig hjá stofnunum ríkisins sem veita margs konar þjónustu, t.d. hjá Barna- og fjölskyldustofu, Ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tók til starfa 1. apríl 2024. Til að mynda geti síðastnefnda stofnunin nýtt möguleika gervigreindar til að gera námsefni aðgengilegt fjölbreyttum hópi barna og ungmenna. Á sama hátt verður hagnýting gervigreindar höfð til hliðsjónar við endurskoðun aðalnámskráa fyrir öll skólastig en sú vinna er þegar hafin innan ráðuneytisins.
    Meðal lykiltækifæra á öllum málefnasviðum ráðuneytisins er að styrkja stafræna borgaravitund barna og ungmenna og lýðræðishæfni, sem felst m.a. í að hafa nauðsynlega þekkingu, færni og viðhorf til að sýna ábyrga hegðun þegar hvers konar tækni er notuð, þar á meðal gervigreind. Eitt stærsta verkefni skólasamfélagsins varðandi gervigreind er að huga að mennskunni í hagnýtingu hennar og einnig hagnýtingu á íslenskri tungu. Þá þarf að m.a. að huga að siðferðilegri og lagalegri nálgun, til að mynda að notkun gervigreindar samræmist friðhelgi einkalífs og persónuvernd.
    Í því sambandi má nefna að Evrópuráðið hefur ákveðið að árið 2025 verði Evrópuár um stafræna borgaravitund. Við það skapast miklir möguleikar til að setja þessi mál enn betur á dagskrá hér á landi.
    
     3.      Hvaða áskoranir fylgja notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
    Gervigreindin er góður þjónn en vondur yfirmaður. Hún gerir þær kröfur að viðkomandi hafi góða þekkingu á efninu sem unnið er með og góð tök á tungumálinu, bæði vegna þess að fyrirspurn til hennar verður að vera rétt orðuð til að veita sem bestar upplýsingar en líka til þess að hægt sé að leggja mat á þau gögn sem frá henni koma. Það er mikil áskorun að móta stefnu stjórnvalda og samhæfa aðgerðir þvert á málefnasvið gagnvart hagnýtingu gervigreindar í samræmi við alþjóðleg viðmið og stefnumótun. Í því sambandi má benda á að ekkert regluverk er sérstaklega fyrir hendi hér á landi um réttindi barna í tengslum við gervigreind en ýmis lagaákvæði geta þó tekið til réttinda þeirra, svo sem er varðar friðhelgi einkalífs og persónuvernd. Það er mikil áskorun í allri notkun á gervigreind að meta hvort viðkomandi gervigreindarbúnaður sé notaður af börnum og hvort hann muni hafa áhrif á börn og réttindi þeirra.
    Varðandi hagnýtingu gervigreindar í menntakerfinu þarf bæði að huga að undirbúningi, þjálfun og hæfni kennara á ólíkum skólastigum og námssviðum til að nýta tæknina sem best og á ábyrgan hátt til að stuðla að fjölbreyttari og betri menntun. Gervigreindin getur t.d. auðveldað undirbúning og yfirferð kennara og skólafólks og gervigreindin getur orðið mjög gagnleg fyrir einstaklingsmiðað nám.
    Það er mikilvægt að menntamálayfirvöld móti í samstarfi við hagaðila þau viðmið sem gervigreindarforrit þurfa að standast en mörg þessara forrita kunna að vera mötuð á vafasömu efni, önnur virða ekki höfundarrétt o.s.frv. Þá þarf að hafa hugfast að auglýsingar eiga ekki heima í skólastarfi.
    Verkefnið er því að vera opinn fyrir möguleikunum en gæta þess að jafnvægi sé á milli notkunar gervigreindar í kennslu og námi og annarra námsaðferða. Þá leið á eftir að varða betur. Í ýmsum tilvikum þarf að fara fram endurskoðun í skólum á því með hvaða hætti námsmati er hagað til þess að koma í veg fyrir að nemendur geti hagnýtt sér gervigreind til að leysa verkefni fyrir sig, t.d. í skriflegum prófum eða ritgerðum. Í staðinn gætu skólar í auknum mæli tekið upp fjölbreytilegt munnlegt og verklegt námsmat þar sem gervigreind gæti nýst við undirbúning. Þarna reynir mjög á hæfni nemenda í stafrænni borgaravitund, stafrænt læsi og ábyrga og jákvæða notkun tækninnar.