Ferill 1196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2214 — 1196. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um hlutfall grunnskólanema sem hafa ekki íslensku að móðurmáli.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu hátt er hlutfall grunnskólanema í Reykjavík sem hafa ekki íslensku að móðurmáli, flokkað eftir skólum?
Í Reykjavík eru starfræktir 44 grunnskólar, þar af eru 38 reknir af sveitarfélaginu og sex þeirra sjálfstætt starfandi. Samkvæmt upplýsingum sem birtar eru á vef Reykjavíkurborgar var heildarfjöldi grunnskólanema árið 2023 alls 15.683, þar af voru 14.755 nemendur í borgarreknum skólum og 928 í sjálfstætt starfandi skólum.
Samkvæmt upplýsingum sem birtar eru á vef Reykjavíkurborgar voru árið 2023 alls 3.463 börn á grunnskólaaldri fjöltyngd eða 22,12% og 12.191 var eintyngt eða 77,9%. Upplýsingar um hlutfall grunnskólanema sem ekki hafa íslensku að móðurmáli eru ekki birtar eftir skólum en Reykjavíkurborg birtir upplýsingar um fjölda nemenda sem tilheyra hverri þjónustumiðstöð sem starfræktar eru á vegum borgarinnar, þær eru Austurmiðstöð, Norðurmiðstöð, Suðurmiðstöð og Vesturmiðstöð. Árið 2023 var skipting grunnskólanema, þar af hlutfall fjöltyngdra nemenda, við hverja þjónustumiðstöð með þeim hætti að við Austurmiðstöð voru 5.030 nemendur, þar af 18,4% fjöltyngdir, við Norðurmiðstöð var 4.081 nemandi, þar af 19,1% fjöltyngdir, við Suðurmiðstöð voru 2.503 nemendur og hlutfall fjöltyngdra var 44,1% og við Vesturmiðstöð voru nemendur 4.040 talsins, þar af 16,3% fjöltyngdir.
Þá birtir Hagstofa Íslands upplýsingar um hlutfall grunnskólanema á Íslandi með erlent móðurmál, skipt niður á grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og grunnskóla utan höfuðborgarsvæðisins hins vegar. Með móðurmáli er átt við það tungumál sem barnið lærir fyrst, er því tamast og talað er á heimili þess, stundum aðeins af öðru foreldri. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands var heildarfjöldi grunnskólanema á Íslandi árið 2023 alls 47.507, þar af var 7.361 nemandi með erlent móðurmál eða alls 15,5% grunnskólanema á landsvísu, 64,1% þeirra eru innritaðir í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og 35,9% þeirra sækja grunnskóla utan höfuðborgarsvæðisins. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hlutfall grunnskólanema sem ekki hafa íslensku að móðurmáli eftir skólum.