Ferill 1144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2215 — 1144. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um húshitunarkostnað, gjaldskrá veitufyrirtækja og breytingu á gjaldskrá hjá rafkyntum veitum.
1. Hvernig hefur gjaldskrá veitufyrirtækja vegna rafhitunar heimila þróast frá árinu 2019? Svar óskast sundurliðað eftir fyrirtækjum, sveitarfélögum, því hvenær gjaldskrárbreyting tók gildi og hvort um beina rafkyndingu eða rafkyntar veitur er að ræða.
Kostnaður vegna hitunar íbúðarhúsnæðis hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri rafhitun með jarðvarma samanstendur af kostnaði við kaup á raforku og jöfnunargjaldi, þar sem stjórnvöld niðurgreiða að fullu kostnað við flutning og dreifingu raforkunnar frá virkjun til þessara notenda, að hámarki 40.000 kWst á ári.
Breytingar á gjaldskrá raforkusala eru frjálsar, en Orkustofnun fylgist með verðum og skráir. Tafla 1 sýnir raforkuverð eftir söluaðila eins og það hefur verið 1. september hvert ár og 1. júní 2024. 11% virðisaukaskattur leggst á raforkuverð til húshitunar og er reiknaður inn í verð frá söluaðilum til að endurspegla verð til notenda vegna húshitunar íbúðarhúsnæðis sem nýtur niðurgreiðslna. Til viðbótar greiða notendur jöfnunargjald, 0,41 kr./kWst auk 11% VSK.
Tafla 1. Gjaldskrá raforkusölufyrirtækja, árin 2019 til 2024, með 11% VSK.
| Gjaldskrá 1. september hvert ár og 1. júní 2024 | Verðbreyting (%) 2019–2024 | |||||||
| Söluaðili | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | Breytilegt verðlag | Á föstu verðlagi |
| Atlantsorka | - | - | - | - | 6,48 | 7,00 | - | - |
| Fallorka | 7,08 | 7,26 | 7,24 | 7,56 | 7,76 | 8,90 | 25,7% | -6,2% |
| HS Orka | 7,26 | 7,26 | 7,26 | 7,69 | 8,60 | 8,94 | 23,1% | -8,1% |
| Íslensk orkumiðlun | 6,49 | 6,40 | 5,76 | 5,76 | - | - | ||
| N1 Rafmagn | - | - | - | - | 6,48 | 7,93 | - | - |
| Orka heimilanna | 6,54 | 6,54 | 6,54 | 6,54 | 6,54 | 6,54 | 0,0% | -25,4% |
| Orka náttúrunnar | 7,20 | 7,25 | 7,25 | 8,04 | 8,21 | 9,45 | 31,1% | -2,1% |
| Orkubú Vestfjarða | 6,55 | 6,72 | 6,72 | 6,72 | 6,72 | 6,72 | 2,5% | -23,5% |
| Orkusalan | 7,15 | 7,33 | 7,24 | 7,68 | 8,20 | 9,42 | 31,8% | -1,6% |
| Straumlind | - | - | 5,76 | 6,25 | 6,48 | 7,93 | - | - |
| Lægsta verð | 6,49 | 6,40 | 5,76 | 5,76 | 6,48 | 6,54 | 0,7% | -24,5% |
| Hæsta verð | 7,26 | 7,33 | 7,26 | 8,04 | 8,60 | 9,45 | 30,1% | -2,4% |
Verðbreyting yfir tímabilið er sett fram á breytilegu og föstu verðlagi. Eins og sjá má í töflu 1 hefur verð lækkað að raunvirði yfir tímabilið hjá öllum söluaðilum. Nokkuð hefur dregið í sundur með lægsta og hæsta verði á tímabilinu.
Gjaldskrárbreytingar fyrir flutning og dreifingu raforku árin 2019–2024 eru sýndar í töflu 2. Eins og sjá má í töflunni hafa gjaldskrár í flestum tilvikum hækkað lítillega að raunvirði (um 0,5–12,8%), en í tveimur tilvikum hafa gjaldskrár lækkað örlítið að raunvirði (-0,9% og -1,1%). Stjórnvöld niðurgreiða að fullu kostnað við flutning og dreifingu raforkunnar frá virkjun til notenda með rafhitun, að hámarki 40.000 kWst á ári. Notendur sem fara yfir það hámark greiða fullt verð.
Tafla 2. Gjaldskrá fyrir flutning og dreifingu raforku, árin 2019 til 2024, verð birt án VSK.
| Gjaldskrá 1. september hvert ár og 1. júní 2024 | Verðbreyting 2019–2024 | |||||||
| Þjónustuaðilar | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | Breytilegt verðlag | Á föstu verðlagi |
| Þéttbýli | ||||||||
| RARIK | 5,37 | 5,50 | 5,66 | 6,01 | 6,76 | 7,91 | 47,3% | 10,0% |
| Orkubú Vestfjarða | 6,20 | 6,36 | 6,72 | 7,35 | 7,94 | 8,86 | 42,9% | 6,7% |
| Veitur | 5,53 | 5,64 | 5,95 | 6,22 | 6,52 | 7,34 | 32,7% | -0,9% |
| HS Veitur | 5,68 | 5,75 | 6,32 | 6,88 | 8,04 | 7,84 | 38,0% | 3,0% |
| Norðurorka | 5,66 | 5,76 | 5,98 | 6,20 | 6,66 | 7,50 | 32,5% | -1,1% |
| Dreifbýli | ||||||||
| RARIK | 10,78 | 11,05 | 11,00 | 11,64 | 11,50 | 14,52 | 34,7% | 0,5% |
| Orkubú Vestfjarða | 11,14 | 11,42 | 11,88 | 13,36 | 15,09 | 16,83 | 51,1% | 12,8% |
Rafkyntar fjarvarmaveitur, sem nota rafmagn eða eldsneyti til að hita vatn til sölu um dreifikerfi veitunnar, eru reknar af Orkubúi Vestfjarða, RARIK á Seyðisfirði og HS Veitum í Vestmannaeyjum. Gjaldskrárbreytingar rafkyntra fjarvarmaveitna eru sýndar í töflum 3–5. Þar hefur verið reiknað vegið orkuverð út frá fastagjaldi (mælagjaldi), vatnsgjaldi og orkugjaldi. Miðað er við ársnotkun um 140 fm húsnæðis, 32.300 kWst á ári, vegna fastagjalds. Vatnsgjald er innheimt á grundvelli rúmmáls vatns og því þarf að áætla orkuinnihald vatns út frá hitastigi þess til að snúa verði yfir á orkueiningu. Tekið er tillit til niðurgreiðslna í vegnu orkuverði.
Þar sem gert er ráð fyrir að heimili séu almennt tengd rafdreifikerfi óháð því hvaðan orka til húshitunar kemur þá hefur ekki verið tekið tillit til fastagjalda í raforkuverði vegna hitunar húsnæðis. Í tilfelli fjarvarmaveitna er fastagjald/mælagjald reiknað inn í vegið meðalverð miðað við meðalnotkun um 32.300 kWst á ári.
Verðlag er reiknað frá gildistöku eða öðrum tilgreindum dagsetningum eldra verðs, til vísitölu neysluverðs fyrir júní 2024.
Tafla 3. Gjaldskrá rafkyntra fjarvarmaveitna Orkubús Vestfjarða, niðurgreiðslur og reiknað vegið orkuverð með og án niðurgreiðslna.
| Gildistaka | Mælagjald | Vatnsgjald | Orkugjald | Niðurgreiðslur | Vegið orkuverð | Vegið orkuverð án niðurgreiðslna |
| Kr./ár | Kr./m3 | Kr./kWst | Kr./kWst | Kr./kWst | Kr./kWst | |
| 1.1.2019 | 30.015 | 37,98 | 8,45 | 3,78 | 6,36 | 10,14 |
| 1.1.2020 | 30.765 | 38,92 | 8,66 | 4,59 | 5,80 | 10,39 |
| 1.3.2021 | 32.610 | 41,25 | 9,17 | 4,77 | 6,23 | 11,00 |
| 1.2.2022 | 34.241 | 43,31 | 9,62 | 5,01 | 6,53 | 11,54 |
| 1.1.2023 | 38.007 | 48,07 | 10,67 | 5,56 | 7,25 | 12,81 |
| 1.1.2024 | 40.933 | 51,77 | 11,49 | 5,99 | 7,80 | 13,79 |
| Breytilegt verðlag 2019–2024 | 36% | 36% | 36% | 58% | 22,7% | 36,0% |
| Fast verðlag 2019–2024 | 2% | 2% | 2% | 18% | -8,4% | 1,5% |
Tafla 4. Gjaldskrá rafkyntrar fjarvarmaveitu RARIK á Seyðisfirði, niðurgreiðslur og reiknað vegið orkuverð með og án niðurgreiðslna.
| Gildistaka | Mælagjald | Vatnsgjald | Orkugjald | Niðurgreiðslur | Vegið orkuverð | Vegið orkuverð án niðurgreiðslna |
| Kr./ár | Kr./m3 | Kr./kWst | Kr./kWst | Kr./kWst | Kr./kWst | |
| 1.8.2018 | 34.232 | 94,52 | 6,89 | 4,35 | 5,67 | 10,02 |
| 1.1.2021 | 35.430 | 97,83 | 7,13 | 4,46 | 5,91 | 10,37 |
| 30.9.2021 | 37.202 | 102,72 | 7,49 | 4,68 | 6,22 | 10,90 |
| 1.12.2022 | 39.992 | 110,42 | 8,05 | 5,07 | 6,64 | 11,71 |
| 1.5.2023 | 41.712 | 115,17 | 8,40 | 5,26 | 6,96 | 12,22 |
| 1.11.2023 | 43.339 | 119,66 | 8,73 | 5,46 | 7,24 | 12,70 |
| 1.3.2024 | 49.839 | 137,61 | 10,03 | 6,44 | 8,15 | 14,59 |
| Breytilegt verðlag 2019–2024 | 46% | 46% | 46% | 48% | 43,7% | 45,6% |
| Fast verðlag 2019–2024 | 9% | 9% | 9% | 11% | 7,3% | 8,7% |
Tafla 5. Gjaldskrá rafkyntrar fjarvarmaveitu HS Veitna í Vestmannaeyjum, niðurgreiðslur og reiknað vegið orkuverð með og án niðurgreiðslna.
| Gildistaka | Mælagjald | Vatnsgjald | Orkugjald | Niðurgreiðslur | Vegið orkuverð | Vegið orkuverð án niðurgreiðslna |
| Kr./ár | Kr./m3 | Kr./kWst | Kr./kWst | Kr./kWst | Kr./kWst | |
| 1.11.2019 | 69,70 | 312,71 | 144,20 | 4,31 | 7,3 | |
| 28.2.2020 | 70,39 | 315,77 | 147,80 | 4,31 | 7,4 | |
| 28.12.2020 | 73,23 | 328,52 | 147,80 | 4,61 | 7,7 | |
| 29.12.2021 | 76,47 | 343,07 | 147,80 | 4,95 | 8,0 | |
| 1.6.2022 | 79,10 | 354,87 | 147,80 | 5,22 | 8,3 | |
| 1.9.2022 | 81,84 | 367,15 | 147,80 | 5,51 | 8,6 | |
| 27.2.2023 | 84,46 | 378,9 | 147,80 | 5,79 | 8,9 | |
| 1.8.2023 | 88,35 | 396,37 | 147,80 | 6,70 | 9,3 | |
| 1.9.2023 | 94,59 | 424,37 | 158,74 | 6,93 | 10,4 | |
| 1.1.2024 | 111,66 | 500,76 | 201,60 | 7,86 | 12,3 | |
| Breytilegt verðlag 2019–2024 | 60% | 60% | 40% | 82% | 68% | |
| Fast verðlag 2019–2024 | 20% | 20% | 4% | 36% | 25% |
Þróun á verði til húshitunar með beinni rafhitun og frá rafkyntum fjarvarmaveitum er borin saman á mynd 1. Samanburðurinn tekur til lægsta og hæsta verðs raforkusala og vegins orkuverðs frá rafkyntum fjarvarmaveitum, á föstu verðlagi.
Mynd 1. Þróun á verði til húshitunar með beinni rafhitun og frá rafkyntum fjarvarmaveitum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Lista yfir sveitarfélög og viðeigandi dreifiveitur og rafkyntar fjarvarmaveitur á hverjum stað má finna í svari við 5. lið fyrirspurnarinnar.
2. Hvaða forsendur og gögn lágu til grundvallar hverri breytingu á gjaldskrá hjá rafkyntum veitum, t.d. í Vestmannaeyjum?
Breytingar á gjaldskrám hitaveitna, þar á meðal rafkyntra fjarvarmaveitna, eru háðar staðfestingu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og taka ekki gildi fyrr en þær hafa verið staðfestar af ráðherra og birtar í Stjórnartíðindum. Sækja þarf sérstaklega um staðfestingu á nýrri gjaldskrá hitaveitu og í umsókninni skal greina frá öllum breytingum á gjaldskránni og ástæðum þeirra breytinga. Með umsókninni skal fylgja sjálf gjaldskráin, nýjasti ársreikningur hitaveitunnar og gagnaframtal fyrir nýja eða breytta gjaldskrá hitaveitunnar, sem sýnir breytingar á einstökum gjaldskrárliðum. Ef um er að ræða verulegar breytingar á gjaldskrá, umfram hækkun vísitölu neysluverðs, þarf að leggja fram gögn sem sýna fram á nauðsyn þeirra breytinga.
Hækkanir á gjaldskrá fjarvarmaveitu HS Veitna í Vestmannaeyjum 1. september 2023 og 1. janúar 2024 voru umfram hækkanir á vístölu neysluverðs, en þær hækkanir voru ítarlega rökstuddar af HS Veitum. Helstu skýringar HS Veitna á þessum hækkunum eru annars vegar verulegur taprekstur síðastliðin ár og hins vegar hækkanir hjá Landsneti og Landsvirkjun.
Varðandi taprekstur síðastliðin ár er ljóst samkvæmt framlögðum gögnum frá HS Veitum að mikill taprekstur hefur verið af starfseminni í Vestmannaeyjum síðastliðin ár og frá árinu 2018 nemur uppsafnað tap rúmum 637 millj. kr. á verðlagi ársins 2023. Helstu skýringarnar á þeim taprekstri samkvæmt HS Veitum eru miklar verðhækkanir á raforkuverði og flutningi, stóraukinn fjármagnskostnaður vegna tilkomu varmadælustöðvarinnar og mikill kostnaður vegna olíunotkunar sem fallið hefur á hitaveituna þegar afhending á raforku hefur verið skert vegna vatnsskorts í lónum Landsvirkjunar og þegar flutningsstrengur Landsnets til Eyja hefur bilað. Methalli var á rekstrinum á síðasta ári og á bilun í sæstreng Landsnets (VM3) stærstan þátt í því, en á fyrri hluta ársins 2023 (janúar til júní) var hallinn 275 millj. kr. samkvæmt upplýsingum HS Veitna. Hækkanir hjá Landsneti og Landsvirkjun hafa einnig haft áhrif á reksturinn í Vestmannaeyjum. Gjaldskrá Landsnets vegna flutningskostnaðar hækkaði um 7,5% þann 1. janúar 2024, gjaldskrá Landsvirkjunar fyrir ótrygga orku hækkaði um 7,66% og vegna forgangsorku á varmadælustöð um 12,36%. Þá er ætlunin að færa kyndistöð yfir á forgangsorku vegna fyrirsjáanlegra skerðinga hjá Landsvirkjun, en við það hækkar heildarraforkukaupakostnaður vegna hitaveituframleiðslu í Vestmannaeyjum.
3. Hvaða rafkyntu veitur sóttu um að hækka gjaldskrá sína og hverjar ekki?
Öll þrjú fyrirtækin sem reka rafkyntar fjarvarmaveitur hafa sótt um nokkrar gjaldskrárhækkanir á tímabilinu, sjá nánar í töflum 3–5 í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar.
4. Hvernig hefur ráðherra í hyggju að stuðla að lægri húshitunarkostnaði á þeim landsvæðum þar sem íbúar búa við hærri húshitunarkostnað vegna rafhitunar?
Eins og fram kemur í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar niðurgreiða stjórnvöld kostnað við hitun íbúðarhúsnæðis hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma og er 2.373,8 millj. kr. ráðstafað í slíkar niðurgreiðslur á fjárlögum fyrir árið 2024.
Þá geta íbúðareigendur með beina rafhitun fengið styrk til að fjárfesta í og tengja tækjabúnað sem leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun, t.d. varmadælur. Styrkurinn nemur helmingi kostnaðar við kaup á tækjabúnaði sem leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun, að hámarki 1,4 millj. kr. án virðisaukaskatts árið 2024 (þessi fjárhæð uppfærist 1. janúar ár hvert í hlutfalli við vísitölu neysluverðs). Áætlað er að notandi með beina rafhitun í viðmiðunareign (einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350 m3) geti sparað um 100.000 kr. á ársgrundvelli með „loft í vatn“ varmadælu, miðað við 50% orkusparnað með varmadælunni, en orkusparnaðurinn er þó háður ýmsum þáttum.
Sérstakt jarðhitaleitarátak stendur nú yfir á rafhituðum svæðum og styrkjum fyrir um 450 millj. kr. var úthlutað í átakið fyrir árin 2023–2025. Nú þegar liggja m.a. fyrir mjög jákvæðar niðurstöður í Tungudal á Ísafirði.
5. Hversu mörg heimili hafa búið við rafhitun frá árinu 2019? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum, árum og hvort um beina rafkyndingu eða rafkyntar veitur er að ræða.
Niðurgreiðslustöðum hefur fækkað úr 10.852 árið 2019 í 9.836 árið 2024, eins og sjá má í töflu 6.
Tafla 6. Fjöldi niðurgreiðslustaða 1. janúar ár hvert, fyrir hvert veitufyrirtæki.
| Veitufyrirtæki | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| RARIK | 7.000 | 7.000 | 6.525 | 6.590 | 5.969 | 5.968 |
| Orkubú Vestfjarða | 2.316 | 2.316 | 2.434 | 2.458 | 2.323 | 2.314 |
| HS Veitur | 1.496 | 1.496 | 1.497 | 1.512 | 1.521 | 1.521 |
| Veitur | 40 | 40 | 42 | 42 | 40 | 33 |
| Samtals | 10.852 | 10.852 | 10.498 | 10.603 | 9.853 | 9.836 |
Af þessum 9.836 niðurgreiðslustöðum eru flestir vegna beinnar rafhitunar, alls 7.134 staðir (72,5%), eins og sjá má í töflu 7.
Tafla 7. Skipting niðurgreiðslustaða eftir tegund veitu.
| Veitufyrirtæki | Fjarvarmaveitur | Bein rafhitun | Samtals |
| RARIK | 207 | 5.762 | 5.969 |
| Orkubú Vestfjarða | 1.118 | 1.195 | 2.313 |
| HS Veitur | 1.377 | 144 | 1.521 |
| Veitur | 0 | 33 | 33 |
| Samtals | 2.702 | 7.134 | 9.836 |
| Hlutfall af heild | 27,5% | 72,5% |
Í töflu 8 má sjá hvernig niðurgreiðslustaðir á landinu dreifast á sveitarfélög.
Tafla 8. Listi yfir sveitarfélög, rafdreifiveitur, rafkyntar fjarvarmaveitur og fjölda staða sem hljóta niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
| Rafdreifing | Rafkynt fjarvarmaveita | Fjöldi niðurgreiðslustaða | |
| Reykjavíkurborg | Veitur | - | 38 |
| Kópavogsbær | Veitur | - | 0 |
| Seltjarnarnesbær | Veitur | - | 0 |
| Garðabær | Veitur/HS Veitur | - | 0 |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | HS Veitur | - | 0 |
| Mosfellsbær | Veitur | - | 0 |
| Kjósarhreppur | RARIK | - | 8 |
| Reykjanesbær | HS Veitur | - | 0 |
| Grindavíkurbær | HS Veitur | - | 0 |
| Sveitarfélagið Vogar | HS Veitur | - | 0 |
| Suðurnesjabær | HS Veitur | - | 0 |
| Akraneskaupstaður | Veitur | - | 0 |
| Skorradalshreppur | RARIK | - | 0 |
| Hvalfjarðarsveit | RARIK | - | 55 |
| Borgarbyggð (og Skorradalur) | RARIK | - | 208 |
| Grundarfjarðarbær | RARIK | - | 293 |
| Eyja- og Miklaholtshreppur | RARIK | - | 20 |
| Snæfellsbær | RARIK | - | 548 |
| Sveitarfélagið Stykkishólmur | RARIK | - | 31 |
| Dalabyggð | RARIK | - | 128 |
| Bolungarvíkurkaupstaður | Orkubú Vestfjarða | Orkubú Vestfjarða | 329 |
| Ísafjarðarbær | Orkubú Vestfjarða | Orkubú Vestfjarða -Ísafjörður, Flateyri og Suðureyri | 1140 |
| Reykhólahreppur | Orkubú Vestfjarða | - | 49 |
| Tálknafjarðarhreppur | Orkubú Vestfjarða | - | 0 |
| Vesturbyggð | Orkubú Vestfjarða | Orkubú Vestfjarða -Patreksfjörður | 469 |
| Súðavíkurhreppur | Orkubú Vestfjarða | - | 70 |
| Árneshreppur | Orkubú Vestfjarða | - | 21 |
| Kaldrananeshreppur | Orkubú Vestfjarða | - | 8 |
| Strandabyggð | Orkubú Vestfjarða | - | 191 |
| Húnaþing vestra | OV/RARIK | - | 123 |
| Sveitarfélagið Skagaströnd | RARIK | - | 0 |
| Skagabyggð | RARIK | - | 25 |
| Húnabyggð | RARIK | - | 138 |
| Skagafjörður | RARIK | - | 104 |
| Akureyrarbær | Norðurorka | - | 11 |
| Norðurþing | RARIK | - | 158 |
| Fjallabyggð | RARIK | - | 6 |
| Dalvíkurbyggð | RARIK | - | 25 |
| Eyjafjarðarsveit | RARIK | - | 54 |
| Hörgársveit | RARIK | - | 49 |
| Svalbarðsstrandarhreppur | RARIK | - | 1 |
| Grýtubakkahreppur | RARIK | - | 8 |
| Tjörneshreppur | RARIK | - | 81 |
| Þingeyjarsveit | RARIK | - | 55 |
| Langanesbyggð | RARIK | - | 223 |
| Fjarðabyggð | RARIK | - | 1337 |
| Múlaþing | RARIK | RARIK - Seyðisfjörður | 471 |
| Vopnafjarðarhreppur | RARIK | - | 240 |
| Fljótsdalshreppur | RARIK | - | 222 |
| Vestmannaeyjabær | HS Veitur | HS Veitur | 1521 |
| Sveitarfélagið Árborg | RARIK / HS Veitur | - | 32 |
| Sveitarfélagið Hornafjörður | RARIK | - | 270 |
| Mýrdalshreppur | RARIK | - | 202 |
| Skaftárhreppur | RARIK | - | 166 |
| Ásahreppur | RARIK | - | 0 |
| Rangárþing eystra | RARIK | - | 281 |
| Rangárþing ytra | RARIK | - | 197 |
| Hrunamannahreppur | RARIK | - | 10 |
| Hveragerðisbær | RARIK | - | 1 |
| Sveitarfélagið Ölfus | RARIK | - | 21 |
| Grímsnes- og Grafningshreppur | RARIK | - | 23 |
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur | RARIK | - | 2 |
| Bláskógabyggð | RARIK | - | 32 |
| Flóahreppur | RARIK | - | 141 |
| Samtals | 9.836 |
6. Hver væri áætlaður fjárhagslegur ábati heimila sem búa við rafhitun við að tengjast hitaveitu?
Verð fyrir húshitun er mismunandi eftir hitaveitum hérlendis eða frá um 75.000 kr. á ári hjá ódýrustu hitaveitunum upp í um 270.000 kr. á ári hjá dýrustu hitaveitunni. Hjá Veitum á höfuðborgarsvæðinu er kostnaðurinn við húshitun um 136.000 kr. á ári.
Í töflu 9 má sjá samanburð á árlegum kostnaði við húshitun hjá heimilum með beina rafhitun og rafkynta fjarvarmaveitu við orkuverð hjá hitaveitu Veitna ohf. fyrir höfuðborgarsvæðið, sem er það verð sem langflestir landsmenn búa við. Tafla 9 tekur mið af meðalnotkun við húshitun heimilis, 32.300 kWst, lægsta orkuverði fyrir beina rafhitun, rafkyntum fjarvarmaveitum RARIK, OV og HS Veitna, niðurgreiðslum og meðalorkuverði hitaveitu Veitna fyrir höfuðborgarsvæðið, sem er það verð sem langflestir landsmenn búa við. Verð hjá dýrustu einkaleyfishitaveitu landsins, RARIK á Höfn í Hornafirði, er einnig borið saman við meðalverð Veitna.
Tafla 9. Samanburður húshitunarkostnaðar beinnar rafkyndingar, fjarvarma og jarðvarmahitaveitu. Án VSK.
| Veitufyrirtæki | Árlegur hitunarkostnaður | Mismunur (kr.) miðað við verð hjá Veitum ohf., höfuðborgarsvæði |
| Veitur, höfuðborgarsvæði -hitaveita | 136.823 | |
| Bein rafhitun, RARIK, þéttbýli | 190.570 | 53.747 |
| Bein rafhitun, Orkubú Vestfjarða, þéttbýli | 190.570 | 53.747 |
| Orkubú Vestfjarða, Ísafjörður* | 251.967 | 115.144 |
| HS Veitur, Vestmannaeyjar* | 253.857 | 117.034 |
| RARIK, Seyðisfjörður* | 263.334 | 126.511 |
| RARIK, Höfn - hitaveita | 269.059 | 132.236 |
7. Hversu mikil útgjöld ríkissjóðs myndu sparast ef öll heimili landsins fengju hitaveitu?
Stjórnvöld niðurgreiða kostnað vegna hitunar íbúðarhúsnæðis hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma. Ef öll heimili landsins fengju hitaveitu myndi sparast það fjármagn sem fer í dag í niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar á fjárlögum, þ.e. 2.373,8 millj. kr. miðað við fjárlögin árið 2024.