Ferill 1184. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2217  —  1184. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um verkjastillingu einstaklinga með endómetríósu.


    Svarið er unnið af stjórnendum kvenlækningadeildar á Landspítala.

     1.      Hvenær var ákvörðun tekin um að takmarka aðgang einstaklinga með endómetríósu að verkjastillingu með stungulyfjum á kvennadeild Landspítalans?
    
Verklagið hefur verið hluti af stöðluðu meðferðarferli sem gefið var út á Landspítala árið 2018 þar sem lögð er áhersla á að nota lyf tekin um munn sem fyrstu meðferð við bráðri versnun langvinnra verkja. Verklagið byggist á alþjóðlegum klínískum leiðbeiningum sem byggjast á gagnreyndri þekkingu og er samhljóða verklagi sem notast er við annars staðar á Norðurlöndum. 1 Verklag Landspítala er í stöðugri þróun og verður formlegt verklag um bráða versnun langvinnra verkja vegna endómetríósu birt í haust.
    Á fundi yfirlæknis og deildarstjóra kvenlækningadeildar með Endósamtökunum 29. apríl var farið yfir áherslubreytingar um að forðast beri að nota ópíóíðastungulyf við versnun á langvinnum verkjum. Frekar verði notast við ópíóíðaverkjalyf um munn, önnur verkjalyf um munn eða önnur stungulyf, svo sem bólgueyðandi lyf.

     2.      Hvaða gögn liggja að baki ákvörðun kvennadeildar Landspítalans að takmarka aðgang einstaklinga með endómetríósu að stungulyfjum?
    
Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er verklagið í samræmi við alþjóðlegar klínískar leiðbeiningar sem byggjast á gagnreyndri þekkingu og er samhljóða verklagi sem notast er við annars staðar á Norðurlöndum. Notkun morfínskyldra lyfja (ópíóíða) hefur í för með sér hættu á ávana, fíkn og þolmyndun annars vegar og hins vegar hafa lyfin áhrif á miðtaugakerfi og verkjaupplifun, sérstaklega hjá einstaklingum með langvinna verki. Það er vel þekkt og viðurkennt í fræðum sem tengjast verkjameðferð að við meðhöndlun langvinnra verkja skuli lyfin notuð í eins litlum mæli og mögulegt er og þá helst í formi langvirkra lyfja (plástur, töflur) frekar en skammvirkra lyfja. Ef þörf er á skammvirkum lyfjum skulu þau einnig gefin um munn. Er þessi ákvörðun tekin með hagsmuni og öryggi sjúklinga að leiðarljósi. Bólgueyðandi lyf eru áfram gefin í slíkum tilvikum og í neyðartilvikum eru morfínskyld lyf gefin í formi stungulyfs.

     3.      Gætir mismununar á milli sjúkdómsgreininga hvað varðar stungulyf á kvennadeild Landspítalans?
    
Nei, mismununar gætir ekki við verkjameðhöndlun á kvennadeild Landspítalans. Öryggissjónarmið hvað varðar lyfjanotkun á við alla sjúklinga kvennadeildar. Verklagið á því við hjá öllum sjúklingum með langvinna verki og er ekki sértækt fyrir endómetríósu.

Náið samstarf er við verkjateymi Landspítalans við nálgun á meðferð við bráðri versnun

langvinnra verkja. Sé um illkynja sjúkdóm að ræða er samráð haft við líknarteymi spítalans.

     4.      Var haft samráð við helstu hagsmunaaðila, svo sem Endósamtökin, vegna ákvörðunarinnar?
    Já, samráð var haft við Endósamtökin og vinnsla á nýju verklagi var kynnt á fundi með þeim í apríl sl. Þegar verklagið verður birt í haust verður samtökunum boðið aftur á fund til að fara yfir meðferðarferilinn. Landspítali leggur áherslu á að nota gagnreynda þekkingu og öryggissjónarmið þegar meðferðarferlar eru gerðir.

     5.      Hvaða þjónustu og verkjastillingu er sjúklingum með endómetríósu boðin í stað stungulyfja eftir að ákvörðun var tekin um að takmarka aðgang þeirra að lyfjunum?
    Ekki er verið að takmarka aðgengi að verkjastillingu en notuð er gagnreynd meðferð við bráðri versnun á langvinnum verkjum með því að nýta önnur lyf en stungulyf. Sjúklingar sem eru skjólstæðingar endóteymis Landspítala hafa gott aðgengi að móttöku- og kvenlækningadeild 21A ásamt bráðaþjónustu kvennadeildar allan sólarhringinn. Verkjameðferð er einstaklingsmiðuð og fjöldi lyfja notaður, allt eftir því sem talið er að henti sjúklingnum best í hverju tilviki. Þegar gefa þarf verkjalyf um munn vegna langvinnra verkja er m.a. notað Toradol, Morfin DAK, ketamín í ávaxtasafa, tramól, OxyNorm, clonidine, Norgesic og Targin. Haft er samráð við sérhæft verkjateymi spítalans þegar þörf er á.

1     Á eftirfarandi vefslóð má finna sænskar ráðleggingar:
     www.sfog.se/media/337239/del-10-b-fo-rslag-pa-pm-fo-r-sma-rtlindring-akut-och-pa-avdelning-201216.pdf