Ferill 658. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2218  —  658. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um upprunavottaða orku við álframleiðslu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver er afstaða ráðherra til þeirrar staðhæfingar á vef Samtaka álframleiðenda að á Íslandi sé eingöngu notuð endurnýjanleg orka við álframleiðslu, í ljósi þess að í svari ráðherra við fyrirspurn á yfirstandandi löggjafarþingi (þskj. 894, 472. mál) kemur fram að enginn álframleiðandi á Íslandi kaupi upprunaábyrgðir fyrir þá orku sem hann notar?

    Með upprunaábyrgð fæst staðfesting á því að tiltekið magn raforku hafi verið framleitt með endurnýjanlegum orkugjöfum en raforkunotandi getur valið að kaupa upprunaábyrgð vegna notkunar sinnar. Regluverk um upprunaábyrgðir var innleitt hér á landi árið 2008 á grundvelli EES-samningsins. Meginmarkmið kerfisins er að stuðla að aukinni endurnýjanlegri orkuframleiðslu.
    Stórnotendum er frjálst að kaupa upprunaábyrgðir raforku telji þeir sig þurfa á þeim að halda. Þau kaup eru valkvæð. Stóru álfyrirtækin hér á landi búa við stranga umhverfisstaðla og reikna kolefnisspor sitt úr frá orkuvinnslu í grennd við verksmiðjur sínar. Allir álframleiðendur á Íslandi eru meðlimir sem og vottaðir af sjálfbærnisamtökum áliðnaðarins – Aluminium Stewardship Inititative (ASI) – sem hafa það að markmiði að miðla sjálfbærni í framleiðslukeðju áliðnaðarins. Allt frá námugreftri til fullbúinnar vöru frá álveri. Álframleiðendur hafa nýtt sér ákvæði í fyrrgreindum ASI-stöðlum og loftslagsbókhaldi (GHGP) um að staðbundin notkun endurnýjanlegrar orku nægi til að segja að varan teljist græn.
    Hagaðilar í áliðnaði hér á landi benda á að atvinnugreinin eigi í harðri alþjóðlegri samkeppni við aðila utan EES sem selji álframleiðslu sína sem græna. Þeir benda jafnframt á að álframleiðendur í löndum utan Evrópu þurfi ekki að kaupa upprunaábyrgðir sem hækki raforkureikning greinarinnar um rúmar fimm evrur á MWst eins og staðan sé nú. Áhöld eru um það hvort viðskiptavinir álframleiðenda séu reiðubúnir að greiða sérstaklega fyrir upprunaábyrgðir til viðbótar við núverandi samningsverð.
    AIB (Association of Issuing Bodies) hefur gagnrýnt þetta fyrirkomulag sem einskorðast ekki við Ísland. Samtök þessi gerðu úttekt á kerfinu hér á landi á síðasta ári. Raforkueftirlit Orkustofnunar vann stöðuskýrslu þar sem lagt var mat á hugsanlega tvítalningu upprunaábyrgða og til hvaða aðgerða hefur verið gripið hér á landi til að koma í veg fyrir slíkt. Eftir ítarlega gagnaöflun og greiningarvinnu var niðurstaðan að Ísland uppfyllti allar kröfur upprunaábyrgðarkerfisins. Jafnframt fól niðurstaðan í sér að Ísland hefði með fullnægjandi hætti innleitt löggjöf Evrópusambandsins um upprunaábyrgðir og þannig uppfyllt skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum. Eftirlit og framfylgd laga um upprunaábyrgðir hér á landi er með sambærilegum hætti og í öðrum EES-ríkjum. Úrskurður stjórnar AIB er í samræmi við niðurstöðu Raforkueftirlitsins sem sýndi fram á að ekki var um tvítalningu að ræða, það er að segja að ekki var um að ræða sölu á sömu upprunaábyrgð oftar en einu sinni. Mögulega leiðir gagnrýnin til þess að breytingar verði gerðar á evrópska regluverkinu sem kerfið byggist á en tíminn verður að leiða það í ljós.
    Nánar vísast í nýja úttekt sem ráðuneytið hefur látið vinna um fyrirkomulag upprunaábyrgða raforku á Íslandi og finna má á heimasíðu ráðuneytisins 1 sem og stöðuskýrslu raforkueftirlits Orkustofnunar 2 .
1     www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/URN/231127_URN_Upprunaabyrgdir_V2.pdf
2     orkustofnun.is/news/medfylgjandi-er-stoduskyrsla-raforkueftirlits-orkustofnunar