Ferill 857. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2219 — 857. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra.
1. Hverjar eru lögbundnar nefndir á vegum ráðuneytisins og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
Eftirfarandi tafla sýnir árlegan kostnað við lögbundnar nefndir á vegum ráðuneytisins árin 2021–2023.
Tafla 1. Lögbundnar nefndir á vegum ráðuneytisins og árlegur kostnaður frá árinu 2021.
| Lögbundnar nefndir – kostnaður (upphæðir í þús. kr.) | |||
| Heiti nefndar | 2021 | 2022 | 2023 |
| Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum | 15.813 | 11.889 | 11.015 |
| Íþróttanefnd | 714 | 864 | 985 |
| Kennararáð | 17.863 | 548 | 1.998 |
| Matsnefnd náms- og starfsráðgjafa | - | - | - |
| Námsorlofsnefnd | 912 | 896 | 1.135 |
| Námsstyrkjanefnd | - | - | - |
| Ráðgjafarnefnd til ráðuneytis forstjóra Menntamálastofnunar | - | - | - |
| Samstarfsnefnd tónlistarfræðslunnar | - | - | - |
| Sérfræðingateymi vegna barna með alvarlegar þroska- og geðraskanir | - | - | - |
| Skólanefnd Borgarholtsskóla | 249 | 466 | 437 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra | 475 | 375 | 323 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga | 323 | 173 | 74 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurlands | 429 | 613 | 432 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurnesja | 431 | 468 | 497 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands | 54 | 299 | 158 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskólans í Breiðholti | 163 | 274 | 125 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ | 909 | 1.166 | 1.113 |
| Skólanefnd Fjölbrautaskólans við Ármúla | 31 | 49 | 123 |
| Skólanefnd Flensborgarskólans | 519 | 494 | 516 |
| Skólanefnd Framhaldsskólans á Húsavik | 274 | 319 | 94 |
| Skólanefnd Framhaldsskólans á Laugum | 530 | 333 | 390 |
| Skólanefnd Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu | - | - | 43 |
| Skólanefnd Framhaldsskólans í Mosfellsbæ | - | - | - |
| Skólanefnd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum | 531 | 535 | 577 |
| Skólanefnd Kvennaskólans í Reykjavík | 210 | 272 | 290 |
| Skólanefnd Menntaskólans að Laugarvatni | 599 | 512 | 484 |
| Skólanefnd Menntaskólans á Akureyri | - | 230 | 175 |
| Skólanefnd Menntaskólans á Egilsstöðum | 153 | 133 | 118 |
| Skólanefnd Menntaskólans á Ísafirði | - | 324 | 368 |
| Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga | 484 | 402 | 413 |
| Skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi | 808 | 874 | 875 |
| Skólanefnd Menntaskólans í Reykjavík | 376 | 343 | 295 |
| Skólanefnd Menntaskólans við Hamrahlíð | 355 | 285 | 315 |
| Skólanefnd Menntaskólans við Sund | - | - | - |
| Skólanefnd Verkmenntaskóla Austurlands | - | 97 | 185 |
| Skólanefnd Verkmenntaskólans á Akureyri | 652 | 992 | 1.313 |
| Skólastjórn Skákskóla Íslands | - | - | - |
| Starfsgreinanefnd | 1.132 | 42 | 48 |
| Starfsgreinaráð bygginga- og mannvirkjagreina | - | - | - |
| Starfsgreinaráð heilbrigðis-, félags- og uppeldisgreina | - | 1.224 | - |
| Starfsgreinaráð hönnunar og handverksgreina | - | 641 | - |
| Starfsgreinaráð matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina | 2.991 | - | - |
| Starfsgreinaráð málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina | - | - | - |
| Starfsgreinaráð rafiðngreina | 392 | - | - |
| Starfsgreinaráð samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina | - | - | - |
| Starfsgreinaráð sjávarútvegs- og siglingagreina | - | - | - |
| Starfsgreinaráð skrifstofu - og verslunargreina | - | 1.018 | - |
| Starfsgreinaráð snyrtigreina | - | - | - |
| Starfsgreinaráð umhverfis- og landbúnaðargreina | - | 22 | - |
| Starfsgreinaráð upplýsinga- og fjölmiðlagreina | - | - | - |
| Stjórn Íslenskra getrauna | - | - | - |
| Stjórn Launasjóðs stórmeistara í skák | - | 687 | - |
| Stjórn námsgagnasjóðs | - | - | - |
| Stjórn Vinnustaðanámssjóðs | 681 | 736 | 745 |
| Stjórn þróunarsjóðs námsgagna | 926 | 1.101 | 1.574 |
| Stjórn Æskulýðssjóðs | 133 | 104 | 246 |
| Sveinsprófnefnd í prentsmíð | - | 824 | - |
| Sveinsprófsnefnd í bakaraiðn | 581 | 961 | 890 |
| Sveinsprófsnefnd í bifreiðasmíði | 793 | 1.463 | 1.406 |
| Sveinsprófsnefnd í bifvélavirkjun | 2.601 | 2.943 | 2.643 |
| Sveinsprófsnefnd í bílamálun | 595 | 753 | 896 |
| Sveinsprófsnefnd í blikksmíði | 107 | 717 | 554 |
| Sveinsprófsnefnd í bókbandi | 680 | 829 | - |
| Sveinsprófsnefnd í flugvirkjun | - | - | - |
| Sveinsprófsnefnd í framreiðslu | 2.908 | 3.501 | 5.173 |
| Sveinsprófsnefnd í gull- og silfursmíði | 677 | 1.092 | 763 |
| Sveinsprófsnefnd í hársnyrtiiðn | 3.247 | 4.790 | 5.580 |
| Sveinsprófsnefnd í húsasmíði | 9.355 | 9.752 | 12.593 |
| Sveinsprófsnefnd í húsgagnabólstrun | - | 195 | 65 |
| Sveinsprófsnefnd í húsgagnasmíði | - | 887 | - |
| Sveinsprófsnefnd í kjólasaumi | - | 912 | - |
| Sveinsprófsnefnd í kjötiðn | - | - | 847 |
| Sveinsprófsnefnd í klæðskurði | 821 | 923 | 1.552 |
| Sveinsprófsnefnd í ljósmyndun | 656 | 2.170 | 1.927 |
| Sveinsprófsnefnd í matreiðslu | 3.734 | 3.681 | 4.038 |
| Sveinsprófsnefnd í málaraiðn | 2.218 | 1.960 | 2.497 |
| Sveinsprófsnefnd í múraraiðn | 902 | 2.459 | 1.314 |
| Sveinsprófsnefnd í pípulögnum | 1.765 | 3.758 | 3.414 |
| Sveinsprófsnefnd í prentsmíð | 807 | 820 | 782 |
| Sveinsprófsnefnd í prentun | - | - | - |
| Sveinsprófsnefnd í rafiðngreinum - veikstraumur | 5.945 | 7.236 | 9.542 |
| Sveinsprófsnefnd í rennismíði | 1.515 | 715 | 1.509 |
| Sveinsprófsnefnd í skipa- og bátasmíði | - | - | - |
| Sveinsprófsnefnd í skósmíði | - | - | 250 |
| Sveinsprófsnefnd í skrúðgarðyrkju | - | - | - |
| Sveinsprófsnefnd í snyrtifræði | 3.630 | 3.752 | 3.886 |
| Sveinsprófsnefnd í stálsmíði og málmsuðu | 604 | 633 | 1.178 |
| Sveinsprófsnefnd í úrsmíði | - | - | - |
| Sveinsprófsnefnd í veggfóðrun | - | 540 | 510 |
| Sveinsprófsnefnd í veiðarfæratækni | - | 481 | - |
| Sveinsprófsnefnd í vélvirkjun | 7.613 | 7.282 | 7.577 |
| Sveinsprófsnefnd rafiðna – sterkstraumur | 5.945 | 7.236 | 9.542 |
| Úrskurðarnefnd v. kostnaðar við skólagöngu fósturbarna | - | - | - |
| Æskulýðsráð | 1.102 | 841 | 487 |
| Samtals | 108.910 | 103.905 | 108.893 |
Á vegum ráðuneytisins starfa jafnframt aðrar reglubundnar nefndir sem ekki eru lögbundnar.
2. Hvaða aðra starfshópa og nefndir hefur ráðherra sett á laggirnar og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
Í eftirfarandi töflu er að finna yfirlit yfir starfshópa og nefndir sem ráðherra hefur sett á laggirnar. Ekki er greitt sérstaklega fyrir setu í umræddum starfshópum og nefndum. Þá er ekki talinn kostnaður vegna aðkeyptrar þjónustu sem tengist starfi eða verkefnum framangreindra hópa, alls 68,2 millj. kr. á tímabilinu.
Tafla 2. Starfshópar og nefndir sem ráðherra hefur sett á laggirnar.
| Aðrir starfshópar og nefndir | 2021 | 2022 | 2023 |
| Ráðgjafaráð vegna uppbyggingar þjóðarhallar í innanhússíþróttum | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Ráðgjafarhópur um framkvæmdaáætlun í barnavernd 2023–2027 | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Samráðs- og viðbragðsteymi íslenskra stjórnvalda fyrir börn á flótta | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Samráðshópur um framkvæmd og fyrirkomulag matsferils | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Samráðshópur vegna alþjóðasamnings Evrópuráðsins um samhæfða nálgun í öryggismálum og þjónustu á knattspyrnuleikjum og öðrum íþróttaviðburðum | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Samráðsnefnd um framkv. samkomulags um stuðn. við tónlistarnám | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Samráðsvettvangur gegn hagræðingu úrslita kappleikja | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis um greiningu og endurmat á kostnaði vegna samræmdrar móttöku flóttafólks | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um bætt aðgengi barna að hestamennsku | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um eflingu almenningsíþróttastarfs | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um endurskoðun kafla 7, 9 og 10 í aðalnámskrá leikskóla | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um endurskoðun undanþágukafla aðalnámskrár grunnskóla | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um framkvæmd tillögu 2.1 í skýrslu samstarfsráðs um starfsþróun kennara og skólastjórnenda | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um framkvæmdaáætlun í barnavernd 2023–2027 | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um framtíðarfyrirkomulag á Reykjum og Reykjatorfunni | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um innleiðingu breytinga á barnaverndarlögum | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um innleiðingu laga nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um mótun leiðbeininga um viðeigandi og örugga farsímanotkun í grunnskólum | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um námsgögn | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um sameiginlegar starfsstöðvar | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Aðkeypt sérfræðiþj. |
| Starfshópur um undirbúning uppbyggingar þjóðarleikvanga í íþróttum | Aðkeypt sérfræðiþj. | Aðkeypt sérfræðiþj. | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um þjóðarleikvang fyrir frjálsar íþróttir | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Stýrihópur Stjórnarráðsins í málefnum barna | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Stýrihópur um aðgengi að þjónustu fyrir börn | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Stýrihópur um eflingu framhaldsskóla | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Aðkeypt sérfræðiþj. |
| Stýrihópur um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda | Enginn kostnaður | Aðkeypt sérfræðiþj. | Aðkeypt sérfræðiþj. |
| Stýrihópur um mótun framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu að Reykjum og Reykjatorfunni | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Úthlutunarnefnd menntarannsóknasjóðs | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Verkefnisstjórn um framtíðarhúsnæði Tækniskólans | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Aðkeypt sérfræðiþj. |
| Þingmannanefnd um málefni barna 2022–2025 | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Stjórn Menntanets Suðurnesja | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Starfshópur um mótun leiðbeininga fyrir starfsfólk og stjórnendur grunnskóla um viðbrögð við atvikum sem upp kunna að koma í skólastarfi | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Framkvæmdanefnd um þjóðarhöll í innanhússíþróttum | Enginn kostnaður | Aðkeypt sérfræðiþj. | Aðkeypt sérfræðiþj. |
| Starfshópur um könnun alvarlegra atvika er tengjast börnum | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
| Stýrihópur um afreksstarf | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður | Enginn kostnaður |
3. Hefur ráðherra skoðað að leggja niður nefndir? Ef svo er, hvaða nefndir?
Starfshópar og nefndir sem ráðherra skipar tímabundið til ákveðinna verka eru lagðar niður þegar þær hafa lokið störfum.
Verkefni, aðbúnaður og umsýsla lögbundinna nefnda er í sífelldri endurskoðun í tengslum við vinnu við önnur stefnumótandi verkefni ráðuneytisins. Þar er einkum litið til þess að byggðar verði upp sterkar einingar sem hafa faglegar forsendur til að rækja verkefni sín ásamt því að tryggð verði skilvirkni í verkefnum hins opinbera. Dæmi um slíka vinnu er þegar Menntamálastofnun var lögð niður og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu var sett á fót með lögum nr. 91/2023. Við það tækifæri var ráðgjafarnefnd til ráðuneytis forstjóra Menntamálastofnunar lögð niður en engin ráðgjafarnefnd starfar við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þá samþykkti Alþingi á 155. löggjafarþingi ný lög um skák, nr. 100/2024, þar sem kveðið er á um brottfall laga um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, og þar með lögbundinnar skyldu ráðherra til að skipa skólastjórn Skákskóla Íslands. Helstu stefnumótandi verkefni sem ráðuneytið vinnur að um þessar mundir og kunna að hafa áhrif á verkefni nefnda og/eða nefndir á málefnasviði ráðuneytisins eru til að mynda stefnumótun í verknámi í framhaldsskólum og heildarendurskoðun íþróttalaga og löggjafar um æskulýðs- og frístundamál.