Ferill 1098. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2222  —  1098. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Sveinbjarnardóttur um gjaldfrjálsar brjóstaskimanir.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Telur ráðherra að skimanir fyrir brjóstakrabbameini ættu að verða gjaldfrjálsar?

    Heilbrigðisráðherra hefur markvisst unnið að því að draga úr greiðsluþátttöku almennings við heilbrigðisþjónustu í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Í ráðuneytinu stendur yfir endurskoðun á greiðsluþátttöku einstaklinga við brjóstaskimanir þar sem áhersla er lögð á að kostnaður sé ekki hindrun eða áhrifaþáttur í þátttöku kvenna við skimanir. Kostnaðargreining liggur fyrir og er von á tillögum um breytingar á greiðslufyrirkomulagi brjóstaskimana á næstunni.
    Skimun fyrir brjóstakrabbameini er gagnreynd og árangursrík leið til að lækka dánartíðni sjúkdómsins. Með því að greina hann snemma aukast líkur á því að sjúkdómurinn sé staðbundinn og hafi ekki náð að dreifa sér um líkamann. Góð þátttaka og mæting í brjóstaskimun gegnir þar af leiðandi lykilhlutverki. Í þeim tilgangi til að bæta mætingu er unnið að breytingum í tengslum við boðun í skimun þannig að konum verði úthlutað ákveðnum tíma í boðsbréfi í stað þess að konurnar panti tíma sjálfar.