Ferill 1185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2224  —  1185. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um rafíþróttir.


     1.      Hefur verið gerð úttekt á áhrifum alþjóðlegra rafíþróttamóta sem haldin hafa verið hérlendis á íslenskan efnahag, sér í lagi með tilliti til gjaldeyristekna af slíkum mótum?
    Tvö alþjóðleg rafíþróttamót hafa verið haldin hér á landi, annars vegar Rafíþróttamótið Mid-Season Invitional árið 2021 og hins vegar heimsmeistaramótið í Riot Games síðar sama ár. Ekki liggur fyrir úttekt í mennta- og barnamálaráðuneytinu á efnahagslegum áhrifum þeirra móta.

     2.      Er unnið að því að taka rafíþróttir til greina í stjórnsýslu íþróttamála? Ef svo er, hvað líður þeirri vinnu og í hverju felst hún?
    Árið 2021 vann þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneyti drög að stefnumótun um rafíþróttir/rafleiki sem voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, sbr. mál nr. S-213/2021. Þar er m.a. fjallað um tækifæri til að skapa umgjörð um rafleiki/rafíþróttir sem styður við upplýsta og heilbrigða iðkun og spilun tölvuleikja og mikilvægi þess að skapa umgjörð og faglegt starf með það að markmiði að sporna við mögulegum neikvæðum áhrifum tölvuleikjaspilunar. Niðurstöður samráðs bentu m.a. á mikilvægi þess að skapa ramma utan um tölvuleikjaiðkun og styðja við jákvæð áhrif þess að virkja börn og ungmenni til þátttöku í skipulögðu félags- og tómstundastarfi, hvort sem um er að ræða rafíþróttir, tölvuleikjaspilun eða aðra tómstundastarfsemi. Þá gáfu umsagnirnar til kynna að skoða þyrfti með nánari hætti nokkra þætti stefnudraganna í áframhaldandi vinnu við stefnumótun, þar á meðal með hliðsjón af 75. íþróttaþingi ÍSÍ 9. október 2021. Á þinginu var samþykkt að hugtakið rafíþróttir verði notað innan íþróttahreyfingarinnar um rafræna íþróttaleiki sem byggjast á viðurkenndum íþróttagreinum innan íþróttahreyfingarinnar hvort sem um er að ræða sýndaríþróttaleiki (hermileiki) eða aðra íþróttaleiki sem byggjast á viðurkenndum íþróttagreinum innan íþróttahreyfingarinnar. Í þeim tilfellum sem rafíþróttir eru skilgreindar innan viðkomandi alþjóðasérsambanda eru það viðkomandi sérsambönd ÍSÍ sem fara með forræði þeirra hér á landi, enda byggjast þær á viðurkenndum íþróttagreinum innan ÍSÍ.
    Í janúar 2023 gerði mennta- og barnamálaráðherra tveggja ára samning við Rafíþróttasamband Íslands um verkefni sem stuðlar að aukinni farsæld barna og ungmenna m.a. hvað varðar virkni og geðheilbrigði. Verkefnið er hluti af innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, æskulýðslaga, nr. 70/2007, og stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030 sem og fleiri laga og stefna er varða velferð barna og vellíðan. Helstu áherslur samningsins lúta að eflingu á umgjörð þess starfs sem er í boði fyrir börn og ungmenni á vegum samtakanna. Unnið er að endurskoðun samningsins.

     3.      Hvað hefur verið gert til að styrkja umgjörð og innviði rafíþrótta á Íslandi frá því að sáttmáli um ríkisstjórnarsamstarf núverandi ríkisstjórnarflokka var undirritaður? Hvaða aðgerðir til eflingar innviðum rafíþrótta stendur til að ráðast í það sem eftir lifir þessa kjörtímabils?
    Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf núverandi ríkisstjórnarflokka segir m.a. um íþróttir, æskulýðsstarf og lýðheilsu að sett verði stefna um öflugar rafíþróttir hér á landi, ásamt því að efla skipulagt rafíþróttastarf og byggja upp innviði. Líkt og kemur fram í svari við 2. lið fyrirspurnarinnar hefur slík stefnumótun verið í vinnslu ásamt því að styðja við starfið með samningi við Rafíþróttasamband Íslands. Hlutverk ráðuneytisins lýtur þannig einkum að almennri umgjörð og stuðningi við rafíþróttastarf og ekki síður að stuðla að því að starfsemin sé í öruggu og ábyrgu umhverfi sem hentar börnum og ungmennum. Um þetta fjallar stefnumótunin fyrst og fremst. Starfsemi rafíþrótta, líkt og íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, byggist á starfi frjálsra félagasamtaka og þar af leiðandi mikilvægt að starfsemin fái að þróast á eigin forsendum. Rafíþróttasamband Íslands hefur unnið ötullega að því síðustu ár að því að efla umgjörð og styrkja innviði starfsins hér á landi m.a. á grundvelli samnings við mennta- og barnamálaráðuneyti. Líkt og áður kemur fram er unnið að endurskoðun samnings við Rafíþróttasamband Íslands.

     4.      Hversu mörg íslensk íþróttafélög halda úti skipulögðu rafíþróttastarfi?
    Á heimasíðu Rafíþróttasambands Íslands kemur fram að 24 eru með aðild að sambandinu, þar af 19 íþróttafélög. Aðallega er um að ræða fjölgreinaíþróttafélög sem halda úti skipulögðu rafíþróttastarfi. Einnig bjóða margar félagsmiðstöðvar upp á æfingar og viðburði í ýmsum tölvuleikjum.