Ferill 1195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2226 — 1195. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um greind tilfelli endómetríósu.
1. Hversu mörg tilfelli endómetríósu hafa greinst á Landspítala frá árinu 2017? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Í gagnagrunnum Landspítala er ekki haldið sérstaklega utan um hvort greining sem skráð er sé nýgreining eða endurtekin meðferð. Þannig er ekki með einföldu móti eða nákvæmum hætti hægt að sækja upplýsingar um nýgreiningar.
Til að svara fyrirspurninni var leitað að fjölda þeirra sem eru með skráðan greiningarkóða vegna endómetríósu annað hvort sem aðal- eða aukagreiningu og því ári sem kóði kom fyrst upp á kennitölu sjúklings. Ætti þessi aðferðafræði að komast nálægt því að svara til um fjölda nýgreindra á Landspítala á hverju ári. Samkvæmt þessari skráningu er samanlagður fjöldi nýgreindra á Landspítala, frá árinu 2017 til júlí 2024, 530 einstaklingar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Bestu gögnin sem aðgengileg eru um nýgreiningar er að finna í rannsóknarverkefnum. Ásdís Kristjánsdóttir birti rannsóknarniðurstöður um nýgengi og algengi greininga á endómetríósu með skurðaðgerðum á heildarþýði Íslendinga árið 2023.
Rannsóknin tók til allra heilbrigðisstofnana landsins þar sem greining á endómetríósu, með skurðaðgerð og/eða vefjafræðisvari, fór fram á árunum 2001–2015. Rannsóknin var framhald af fyrri rannsókn. Saman hafa þessar tvær rannsóknir tryggt að samfellt hefur verið fylgst með greiningum á endómetríósu með skurðaðgerðum í 35 ár á Íslandi.
Nýgengi hefur í þessum rannsóknum reynst vera 0,1%–0,5 % sem leiðir til mats á algengi á bilinu 1%–4% hjá konum á frjósemisaldri á Íslandi. Einkenni sjúkdóms eru frá því að vera engin í það að vera alvarleg með umtalsverðum áhrifum á daglegt líf. Ekki hafa fundist vísbendingar um að breytingar séu á nýgengi sjúkdómsins.
2. Hversu mörg tilfelli endómetríósu hafa greinst á einkareknum heilbrigðisstofnunum frá árinu 2017? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Flókið getur verið að greina endómetríósu frá öðrum sjúkdómum vegna þess að einkennin geta verið einstaklingsbundin og óljós. Greiningartíminn er oft langur, eða að meðaltali 6–7 ár frá því að einkenni byrja. Kviðverkir geta stafað af öðru, t.d. sjúkdómum í meltingarfærum. Greining getur byggst á nákvæmri sjúkrasögu eingöngu en oft er greining fengin eftir skurðaðgerð. Skráning greininga í sjúkraskrá er með ýmsu móti og því er ekki hægt að sækja áreiðanleg gögn um tíðni endómetríósu miðlægt fyrir landið eftir því hvert rekstrarform þjónustuveitandans er. Kallað var eftir svörum frá Klíníkinni en ekki frá starfsstofum annarra kvensjúkdómalækna eða heilbrigðisstofnana.
Klíníkin telur aðeins nýjar greiningar sem hafa verið staðfestar með sýnatöku og vefjagreiningu. Alls eru það 379 staðfestar greiningar með sýnatöku og vefjagreiningu frá upphafi starfseminnar sem skiptast þannig að árið 2021 voru fimm greiningar staðfestar, árið 2022 110 greiningar, árið 2023 169 greiningar og það sem af er árinu 2024 hafa 95 greiningar verið staðfestar.