Ferill 1156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2227 — 1156. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um málaferli embættis landlæknis.
1. Hefur embætti landlæknis höfðað dómsmál, þ.m.t. á hendur fyrirtækjum og/eða einstaklingum, frá árinu 2013? Ef svo er, hverjir voru aðilar máls, um hvaða ágreining var að ræða hverju sinni og hvernig lauk þeim málum?
Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis hefur embættið höfðað tvö dómsmál á undanförnum árum, en við það bætast mál sem sóttvarnalæknir höfðaði meðan heimsfaraldur COVID-19 gekk yfir. Annað málanna var höfðað í september 2022 til ógildingar á úrskurði kærunefndar útboðsmála, nr. 8/2021, sem varðaði Köru Connect ehf., Origo hf. og Sensa ehf. Í málinu er ágreiningur um hvort innkaup embættis landlæknis á tilraunaverkefni með fjarheilbrigðislausn hafi verið í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup. Með úrskurðinum var lagt fyrir landlækni að bjóða út þróun hugbúnaðarins Heklu heilbrigðisnets, gerð og þróun hugbúnaðar Heilsuveru og þróun fjarfundarlausnar til notkunar á heilbrigðissviði. Aðalmeðferð málsins verður í október næstkomandi og liggur niðurstaða dómstóla því ekki fyrir.
Embættið hefur einnig höfðað mál gegn Persónuvernd til ógildingar á ákvörðun stofnunarinnar um að leggja 12 millj. kr. sekt á embætti landlæknis vegna öryggisveikleika í Heilsuveru. Tímasetning aðalmeðferðar liggur ekki fyrir.
Meðan heimsfaraldur COVID-19 gekk yfir var sóttvarnalæknir sóknaraðili í 25 dómsmálum vegna sóttkvíar eða einangrunar einstaklinga, sem óskuðu eftir að stjórnvaldsákvörðun um slíkt yrði borin undir dómstóla. Af þeim málum var 21 ákvörðun staðfest en fjórar felldar úr gildi þar sem einstaklingur sem hafði verið gert að vera í sóttkví í sóttvarnahúsi hafði aðstöðu til sóttkvíar/einangrunar í heimahúsi.
2. Hver er lögfræðikostnaður embættis landlæknis vegna dómsmála sem embættið hefur höfðað frá árinu 2013? Svar óskast sundurliðað eftir málum.
Málshöfðun vegna úrskurðar kærunefndar útboðsmála er um 2,5 millj. kr. Eins og fyrr segir er málinu ekki lokið en embættið gerir ráð fyrir að stærstur hluti kostnaðar hafi þegar fallið til. Kostnaður við stefnu í máli gegn Persónuvernd er um 1 millj. kr. en embættið gerir ekki ráð fyrir að kostnaður verði mikið hærri. Kostnaður sóttvarnalæknis vegna dómsmála á árunum 2020–2022 nam 20,6 millj. kr.
3. Hefur embætti landlæknis verið gert að greiða bætur og/eða málskostnað í málum sem embættið hefur höfðað á þessu tímabili? Ef svo er, hversu háar fjárhæðir? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Embætti landlæknis hefur hingað til ekki greitt bætur eða málskostnað vegna dómsmála.
4. Hver er lögfræðikostnaður embættis landlæknis vegna málaferla á stjórnsýslustigi á sama tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis féll enginn aðkeyptur lögfræðikostnaður til á árunum 2013–2020 vegna mála á stjórnsýslustigi. Árið 2021 var kostnaðurinn 7,8 millj. kr., 3,9 millj. kr. árið 2022, 3,7 millj. kr. árið 2023 og 2,1 millj. kr. það sem af er ári 2024.
5. Hver er afstaða ráðherra til þess að embætti landlæknis hafi höfðað dómsmál í þessum tilvikum, séu þau til staðar, m.a. á hendur fyrirtækjum og/eða einstaklingum?
Ráðherra er þeirrar skoðunar að almennt eigi ríkisstofnanir ekki að höfða mál gegn einstaklingum og fyrirtækjum. Það sé þó að jafnaði viðkomandi stofnunar, sem aðila stjórnsýslumáls, að taka ákvörðun um málshöfðun fyrir dómstólum en ekki ráðuneytisins. Sé það mat embættis landlæknis að verulegar líkur séu á því að stjórnvaldsákvörðun, sem felur í sér mikla hagsmuni fyrir stofnunina og/eða ríkissjóð, sé röng eða haldin verulegum annmörkum sem leitt geti til ógildingar geti verið eðlilegt að slík mál séu borin undir dómstóla til úrlausnar. Að því er varðar mál sem höfðuð eru til ógildingar á úrskurðum kærunefndar útboðsmála mæla lög fyrir um að slík mál séu höfðuð gegn aðilum málanna en ekki kærunefndinni, sbr. 112. gr. laga nr. 120/2016, um opinber innkaup, og viðeigandi ákvæði laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála. Það er út af fyrir sig umhugsunarvert fyrirkomulag.