Ferill 1170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2228 — 1170. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um samúðarskeyti til Ísraels.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur Ísrael verið sent samúðarskeyti af hálfu ríkisstjórnarinnar vegna hryðjuverkaárásarinnar 7. október 2023? Ef svo er, hvenær var það sent og hvernig hljóðaði skeytið?
Utanríkisráðuneytið, fyrir hönd ríkisstjórnar, vottaði sendiherra Ísraels samúð sama dag og árásin var gerð. Það gerði utanríkisráðherra einnig í samtali við ísraelskan starfsbróður sinn.
Þá sóttu forstöðumenn sendiráða, fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, minningarathafnir sem ísraelsk stjórnvöld stóðu fyrir á nokkrum stöðum til minningar um fórnarlömb árásarinnar.
Alls fór hálf vinnustund í að taka svarið saman.