Ferill 1079. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2229  —  1079. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um aðgerðir til að verja virðingu Alþingis, Austurvallar og mikilvægra minnisvarða þjóðarinnar.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess að lögregluyfirvöld á höfuðborgarsvæðinu létu ógert að fylgja fram lögreglusamþykkt Reykjavíkur að því er varðar tjaldbúðir sem erlendir aðilar reistu á Austurvelli skömmu fyrir áramót?
    Lögreglan nýtur sjálfstæðis í störfum sínum og almennt er ekki á forræði ráðherra að hlutast til um störf hennar. Inntak eftirlitsheimildar ráðherra með lögreglu og ákæruvaldinu er að hafa almennt eftirlit með því að ekki sé út af brugðið í almennri starfsemi en ekki í einstökum málum.

     2.      Telur ráðherra að það rúmist innan marka laga að fáni erlends ríkis blakti við Alþingishúsið við Austurvöll dögum saman?
    Það er hlutverk lögreglu og ákæruvaldsins að taka afstöðu til þess hvort um refsiverða háttsemi er að ræða og bregðast við með viðeigandi hætti.

     3.      Hvaða viðurlög liggja við því að sýna mikilvægum minnisvörðum um sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar á 19. öld óvirðingu með því að breyta ásýnd þeirra?
    Samkvæmt 177. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, skal hver sem tekur burtu, ónýtir eða skemmir opinber minnismerki eða hluti sem ætlaðir eru til almennings nota eða skrauts, eða hluti, sem teljast til opinberra safna eða eru sérstaklega friðaðir, sæta fangelsi allt að 3 árum eða sektum ef málsbætur eru. Ráðherra er ókunnugt um hvort þau atvik sem um ræðir í því tilviki sem fyrirspurnin varðar séu af sama toga og þau sem mælt er fyrir um í ákvæðinu, eða hvort önnur refsiákvæði kunni að eiga við.

     4.      Hvaða aðgerðir hefur ráðherra í hyggju til að verja virðingu Alþingis, Austurvallar og mikilvægra minnisvarða þjóðarinnar og afstýra áþekkum atburðum í framtíðinni?
    Ráðherra leggur fyrst og fremst áherslu á að farið sé að lögum og reglum. Á sama tíma og tryggja þarf eðlilegt aðgengi almennings að Austurvelli og öðrum mikilvægum minnisvörðum þjóðarinnar er að mati ráðherra mikilvægt að viðhalda þeirri virðingu sem Alþingi, Austurvöllur og aðrir minnisvarðar eiga skilið. Ráðherra telur rétt að festa í lög ákvæði um friðhelgi Austurvallar, en friðhelgi Alþingis er varin samkvæmt stjórnarskránni.