Ferill 1197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2230  —  1197. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um styttu af Þorfinni karlsefni.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver urðu örlög styttu Einars Jónssonar af Þorfinni karlsefni sem stóð í Fairmount-garði í Fíladelfíu í Bandaríkjunum þar til skemmdarverk var unnið á henni og hún rifin af stalli sínum árið 2018? Mun ráðuneytið hlutast til um það að styttan verði reist að nýju í Bandaríkjunum eða á Íslandi?

    Styttan af Þorfinni karlsefni er eign Fíladelfíu-borgar, en það er Association for Public Art í Fíladelfíu sem sér um útilistaverkin í Fairmount Park. Listasafn Einars Jónssonar var upplýst um stöðu mála í lok árs 2022 og var styttan þá í viðgerð og geymslu. Samkvæmt vefsíðu þeirra er sú staða óbreytt.
    Hvítir þjóðernissinnar sem kalla sig „Keystone State Skinheads“ höfðu komið saman við styttuna á degi Leifs Eiríkssonar í nokkur ár og árið 2017 var styttan spreyjuð með nasistatákni. Til átaka kom á milli nýnasistahópa og þeirra hópa sem mótmæla kynþáttahatri og líklegt er það hafi verið kveikjan að því að styttan var afhausuð og steypt í Schuylkill-ána í byrjun október 2018. Skemmdirnar eru þannig verulegar.
    Tildrög verksins voru þau að Einar tók þátt í samkeppni um höggmynd af Þorfinni karlsefni sem átti að standa í skemmtigarði í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Hann sendi teikningu af framlagi sínu til Bandaríkjanna árið 1916 og var teikningin einróma valin og honum boðið að koma vestur að vinna að höggmyndinni. Höggmyndin var reist árið 1920.
    Einar gerði aðra bronsútgáfu af verkinu árið 1945 sem staðsett er við Dvalarheimili aldraðra sjómanna við Hrafnistu í Reykjavík. Menningar- og viðskiptaráðuneyti mun áfram fylgjast með framvindu mála í Fíladelfíu en engin áform eru um að hafa áhrif á endurreisn styttunnar í Bandaríkjunum, enda innanríkismál þar.