Ferill 999. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2231 — 999. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um gervigreind.
1. Hefur ráðherra látið gera úttekt á því með hvaða hætti væri hægt að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð?
Í ráðuneytinu hefur ekki verið ráðist í formlega úttekt á hagnýtingu gervigreindar í lögbundnum verkefnum.
2. Hvaða tækifæri eru í notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
Það er grundvallaratriði í störfum ráðuneytisins að nýta tækniframfarir til að efla starfsemina, auka afköst og bæta nýtingu skattfjár. Þótt formleg greining hafi ekki verið gerð í ráðuneytinu á ávinningi af hagræði vegna gervigreindar er ljóst að í þróuninni felast umtalsverð tækifæri til að halda áfram að bæta opinberan rekstur og þjónustu við almenning og auka samkeppnishæfni íslensks samfélags. Áfram verður unnið að umbótum þess efnis í ráðuneytinu á kjörtímabilinu.
3. Hvaða áskoranir fylgja notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
Við stefnumótun innan Stjórnarráðsins um fjórðu iðnbyltinguna og gervigreind undanfarin misseri hefur m.a. verið litið til samfélagslegra áhrifa þróunarinnar.
Ein af grunnstoðum stefnu Íslands um gervigreind sem ráðuneytið gaf út árið 2021 er að gervigreind sé í allra þágu. Þar er m.a. fjallað um að þrátt fyrir að gervigreind feli í sér ótal tækifæri til vaxtar, nýsköpunar og betri þjónustu, skapi aukin notkun hins vegar sömuleiðis siðferðislegar og lagalegar áskoranir.
Ráðuneytið telur mikilvægt að hugað sé að þeim áskorunum í stefnumótun komandi ára samhliða því sem tækifærin eru nýtt. Í stefnunni er lögð áhersla á stafræna þekkingu og færni, en með því að bæta aðgengi að tækninni, beitingu hennar, aukast líkurnar á að hún skili fleirum meiri hagrænum ábata.