Ferill 1007. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2232  —  1007. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um aðkeypta þjónustu hjá Samkeppniseftirlitinu.


     1.      Hvaða einstaklingum eða lögaðilum hafa verið falin verkefni af hálfu Samkeppniseftirlitsins sem kunnáttumönnum eða eftirlitsmönnum til að fylgja eftir skilyrðum í samrunamálum og sáttum, sbr. svar ráðherra á þskj. 878 á yfirstandandi löggjafarþingi? Óskað er upplýsinga um nöfn aðila, tímabil og greiðslur til hvers aðila árin 2012–2023.
    Þáverandi ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra svaraði sambærilegri fyrirspurn frá Gunnari Braga Sveinssyni á 150. löggjafarþingi (592. mál). Í fylgiskjali I með þessu svari hefur taflan verið uppfærð og tekur nú til allra mála þar sem skipaður hefur verið eftirlitsaðili á tímabilinu 2012–2023. Eins og sést af töflunni voru óháðir eftirlitsaðilar skipaðir í 22 tilvikum á tímabilinu frá árinu 2012. Af þeim eru starfandi eftirlitsaðilar í 5 tilvikum.
    Eins og rakið er í hinu tilvitnaða svari frá 150. löggjafarþingi er eftirlitsaðili hluti af innra skipulagi viðkomandi fyrirtækis. Í umræddum málum gerðu fyrirtæki sátt við Samkeppniseftirlitið þar sem þau skuldbundu sig m.a. til að tilnefna einstakling í starfið og standa undir kostnaði af störfum hans. Greiðslur fyrir störfin eru því á milli viðkomandi fyrirtækis og eftirlitsaðilans. Um upphæðir og tilhögun þeirra að öðru leyti fer eftir samningi þeirra á milli og yfirvöld búa ekki yfir upplýsingum þar um.
    Í fyrra svari eru jafnframt gefnar ítarlegri upplýsingar um ástæður og tilhögun skipunar eftirlitsaðila. M.a. kemur fram að skipan eftirlitsaðila (e. trustee) sé þekkt úrræði í alþjóðlegum samkeppnisrétti til þess að fylgja eftir skilyrðum sem sett eru í ákvörðunum samkeppnisyfirvalda.
    Samkeppniseftirlitið hefur sett verklagsreglur um skipan og störf eftirlitsaðila sem skipaðir eru á grundvelli sátta. Reglurnar eru frá því í mars 2022 og eru aðgengilegar á vef eftirlitsins. Þar er m.a. kveðið á um greiðslur fyrirtækis fyrir störf eftirlitsaðila og kostnaðaraðhald. Vinna við endurskoðun verklagsreglnanna stendur yfir.

     2.      Hefur Samkeppniseftirlitið keypt þjónustu þegar mál eru á rannsóknarstigi? Óskað er upplýsinga um fjölda tilvika, nöfn aðila, hvers konar þjónusta var keypt og greiðslur til hvers aðila árin 2012–2023.
    Í fylgiskjali II er að finna umbeðnar upplýsingar um kaup Samkeppniseftirlitsins á þjónustu vegna mála á rannsóknarstigi, þ.e. upplýsingar um kaup á þjónustu við rannsóknir sem tilheyra verkefnum Samkeppniseftirlitsins skv. 8. gr. samkeppnislaga, sbr. einnig VII. kafla sömu laga. Gefnar eru upplýsingar um þann aðila sem þjónusta var keypt af ásamt heildarfjárhæð og lýsingu á viðkomandi þjónustu, sundurliðað eftir árum.
    Rannsóknir samkeppnismála geta tekið til allra sviða atvinnulífsins. Það, ásamt ríkum kröfum sem gerðar eru til rannsókna Samkeppniseftirlitsins, kallar oft á að eftirlitið leiti sér utanaðkomandi sérfræðiþjónustu, svo sem á sviði hagfræði, lögfræði, upplýsingatækni, endurskoðunar, uppgjöra eða sérþekkingar á viðkomandi markaði. Einnig getur þurft að leita sérfræðiaðstoðar við gagnaöflun og gagnavinnslu, svo sem við framkvæmd viðhorfskannana á meðal viðskiptavina fyrirtækja.

Fylgiskjal I.


Ákvörðun Heiti Aðili/Aðilar Eftirlitstímabil frá Eftirlitstímabil til Eftirlitsaðili
Nr. 5/2012 Eftirfylgni v/kaupa Framtakssjóðs Íslands slhf. á hlut í Promens Framtakssjóður Íslands/Landsbankinn 09.03.2011 25.11.2015 Innri endurskoðandi Landsbankans
Nr. 17/2012 Eftirfylgni vegna yfirtöku Landsbankans á Lífsvali Landsbankinn hf. 09.07.2012 10.07.2015 Innri endurskoðandi Landsbankans
Nr. 22/2012 Eftirfylgni vegna yfirtöku Íslandsbanka á Höfðatorgi Íslandsbanki 10.07.2012 19.06.2014 Eggert B. Ólafsson, lögmaður
Nr. 14/2012 Eftirfylgni undanþágu Reiknistofu bankana 2012 Reiknistofa bankanna 11.05.2012 3.6.2022 Knútur Þórhallsson, endurskoðandi (áður Hörður Helgi Helgason, lögmaður)
Nr. 12/2012 Eftirfylgni með ákvörðun nr. 12/2012, kaup FSÍ á N1 Framtakssjóður Íslands/Landsbankinn 15.05.2012 03.04.2014 Páll Ásgrímsson, lögmaður/Innri endurskoðandi Landsbankans
Nr. 7/2013 Brot Tæknivara ehf. og Hátækni ehf. á 10. gr. samkeppnislaga (sala Skipta á Tæknivörum) Skipti hf. (í dag Síminn hf.) 9.7.2010 5.8.2011 MP Banki hf., Friðrik Einarsson
Nr. 35/2013 og 34/2014 Eftirfylgni vegna sáttar Landsbankans varðandi kaup Landsbankans á Ístaki Landsbankinn hf. 20.12.2013 04.06.2015 Innri endurskoðandi Landsbankans
Nr. 6/2013 og 6/2015 Eftirlitsnefnd skv. ákvörðun SE nr. 6/2013 – eftirfylgnimál. Síminn hf. (Landssími Íslands hf.) 26.03.2013 6.12.2022 Gylfi Árnason, verkfræðingur, Stefán Geir Þórisson, lögmaður, Sæmundur E. Þorsteinsson, verkfræðingur
Nr. 2/2014 Eftirfylgni vegna kaupa SF IV slhf. á Skeljungi hf. SF IV/Stefnir/Arion banki 04.12.2013 23.01.2017 Innri endurskoðandi Arion banka
Nr. 7/2014 Eftirfylgni við ákvörðun nr. 7/2014 vegna kaupa Bekei hf. (nú Festi hf.) á félögum í eigu Norvikur hf. SF V/Stefnir/Arion banki 16.01.2014 30.07.2018 Innri endurskoðandi Arion banka
Nr. 18/2014 Eftirfylgni með ákvörðun nr. 18/2014: Kaup Íslandsbanka hf. á hlutafé í Frumherja hf. Íslandsbanki 16.06.2014 13.05.2016 Eggert B. Ólafsson, lögmaður
Nr. 21/2014 Eftirfylgni með samruna FAST-1 og HTO. Ákvörðun nr. 21/2014 Fast 1/Íslandssjóðir/ Íslandsbanki 19.06.2014 31.08.2018 Eggert B. Ólafsson, lögmaður
Nr. 9/2015 Söluferli Afls sparisjóðs Arion banki hf. 27.4.2015 4.6.2015 Guðmundur Þórður Guðmundsson, Óskar Jósefsson, Advance (söluaðilar)
Nr. 8/2015 Eftirfylgni skv. sátt, dags. 15.12.2014, vegna greiðslukortamarkaðarins Viðskiptabankarnir/Valitor/Borgun 09.07.2014 Enn í gangi Sveinn R. Reynisson, endurskoðandi (Valitor), Soffía Eydís Björgvinsdóttir, lögmaður (Borgun)
Nr. 14/2015 Eftirfylgni með samstarfi Vodafone og Nova Sýn hf./Nova hf. 18.02.2015 Enn í gangi Guðmundur Gunnarsson, Raftel ehf., Óskar Jósefsson
Nr. 8/2017 Eftirfylgni vegna póstmála Íslandspóstur 03.02.2017 Enn í gangi Eftirlitsnefnd, Viðar Lúðvíksson, lögmaður, Sigrún Traustadóttir, viðskiptafræðingur, og Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandspósts
Nr. 32/2017 Kaup Alvogen á markaðssettum lyfjum Teva á Íslandi Alvogen Iceland ehf. 29.08.2017 22.12.2017 Aðalheiður Pálmadóttir, lyfjafræðingur
Nr. 9/2019 Eftirfylgni með skilyrðum vegna samruna Haga og Olís Hagar hf. 11.09.2018 2.10.2023 Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður | Nýr eftirlitsaðili ekki verið skipaður
Nr. 31/2019 Eftirfylgni vegna sáttar Arion banka og SE vegna yfirtöku bankans á hlutafé í TravelCo, Heimsferðum og Terra Nova Sól Arion banki hf. 23.09.2019 25.4.2022 Eggert Páll Ólason, lögmaður
Nr. 8/2019 Eftirfylgni með samruna N1 hf. og Festi ehf. Festi hf. 30.07.2018 31.8.2023 Lúðvík Bergvinsson, lögmaður | Nýr eftirlitsaðili ekki verið skipaður
Nr. 13/2022 Eftirfylgni vegna samruna Rapyd og Valitors og kaupa Kviku á færsluhirðingarsamningum Rapyd/Kvika 28.6.2022 Enn í gangi Heimir Örn Herbertsson
Nr. 16/2023 Eftirfylgni með kaupum Ardian á Mílu ehf. Míla hf./Ardian 6.12.2022 Enn í gangi Guðmundur Gunnarsson



Fylgiskjal II.


Árið 2023
Nafn Upphæð Hvers konar þjónusta?
1 ADVEL lögmenn ehf. 1.038.612 Lögfræðileg ráðgjöf
2 Competition DK 421.759 Hagfræðileg ráðgjöf
3 Ísskógar ehf. 1.936.223 Ráðgjöf vegna upplýsingakerfa
4 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 15.166.327 Lögfræðileg ráðgjöf
5 Prósent ehf. 148.800 Framkvæmd viðhorfskönnunar
6 Þanki ehf. 186.000 Ráðgjöf vegna greiningarvinnu
Árið 2022
Viðskiptamaður Upphæð
1 Competition DK 763.800 Hagfræðileg ráðgjöf
2 Eiríkur Ásþór Ragnarsson 20.000 Hagfræðileg ráðgjöf
3 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 5.986.572 Lögfræðileg ráðgjöf
4 Prósent ehf. 1.192.880 Framkvæmd viðhorfskönnunar
Árið 2021
Viðskiptamaður Upphæð
1 ENP ehf. 706.800 Hagfræðileg ráðgjöf
2 Competition DK 436.416 Hagfræðileg ráðgjöf
3 Grant Thornton endurskoðun ehf. 258.540 Ráðgjöf á sviði uppgjörs/endurskoðunar
4 Gylfi Magnússon 491.040 Hagfræðileg ráðgjöf
5 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 3.098.314 Lögfræðileg ráðgjöf
6 Markaðs- og miðlarannsóknir ehf. 58.925 Framkvæmd viðhorfskönnunar
7 Zenter rannsóknir ehf. 1.189.406 Framkvæmd viðhorfskönnunar
Árið 2020
Viðskiptamaður Upphæð
1 ENP ehf. 111.600 Hagfræðileg ráðgjöf
2 Competition DK 451.626 Hagfræðileg ráðgjöf
3 Guðrún Heiða Guðmundsdóttir 12.000 Túlkaþjónusta á fundi
4 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 2.278.426 Lögfræðileg ráðgjöf
5 Zenter rannsóknir ehf. 3.110.850 Framkvæmd viðhorfskönnunar
6 Samsýn ehf. 636.566 Gagnavinnsla og kortagerð
Árið 2019
Viðskiptamaður Upphæð
1 Aldís Hilmarsdóttir 2.135.285 Aðstoð við rannsókn
2 Competition DK 225.176 Hagfræðileg ráðgjöf
3 Grant Thornton endurskoðun ehf. 769.296 Ráðgjöf á sviði uppgjörs/endurskoðnar
4 Gylfi Magnússon 819.000 Hagfræðileg ráðgjöf
5 Kári S Friðriksson 496.000 Hagfræðileg ráðgjöf
6 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 1.305.348 Lögfræðileg ráðgjöf
7 Staðarhóll ráðgjöf slf. 456.320 Hagfræðileg ráðgjöf
Árið 2018
Viðskiptamaður Upphæð
1 Aldís Hilmarsdóttir 5.876.360 Aðstoð við rannsókn
2 Competition DK 1.197.168 Hagfræðileg ráðgjöf
3 Frontier Economics 623.655 Hagfræðileg ráðgjöf
4 Grant Thornton endurskoðun ehf. 4.099.068 Ráðgjöf á sviði uppgjörs/endurskoðunar
5 KÚLA design ehf. 1.160.640 Ráðgjöf á sviði fjármála/rekstrar
6 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 3.067.512 Lögfræðileg ráðgjöf
7 Markaðs- og miðlarannsóknir ehf. 243.734 Framkvæmd viðhorfskönnunar
8 Samsýn ehf. 137.781 Gagnavinnsla og kortagerð
9 Staðarhóll ráðgjöf slf. 952.320 Seta í ráðgjafarhópi
Árið 2017
Viðskiptamaður Upphæð
1 Aldís Hilmarsdóttir 2.986.200 Aðstoð við rannsókn
2 Karólína Geirsdóttir 32.810 Þýðingarþjónusta
3 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 5.272.207 Lögfræðileg ráðgjöf
4 Þorkell Helgason 104.160 Seta í ráðgjafarhópi
Árið 2016
Viðskiptamaður Upphæð
1 Hrafnkell Óskarsson 1.111.908 Lögfræðileg ráðgjöf
2 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 987.536 Lögfræðileg ráðgjöf
3 Landslög slf. 252.457 Lögfræðileg ráðgjöf
4 Reifun ehf. 106.640 Þóknun til setts forstjóra (vegna vanhæfis við rannsókn)
5 Staðarhóll ráðgjöf slf. 290.160 Seta í ráðgjafarhópi
Árið 2015
Viðskiptamaður Upphæð
1 Einar Hjörleifsson 426.800 Gagnavinnsla og kortagerð
2 Port hönnun ehf. 300.516 Aðstoð við birtingu skýrslu
3 Hvergi slf. 77.500 Aðstoð við birtingu skýrslu
4 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 2.449.694 Lögfræðileg ráðgjöf
5 Markaðs- og miðlarannsóknir 913.880 Framkvæmd viðhorfskönnunar
6 Staðarhóll ráðgjöf slf. 612.560 Seta í ráðgjafarhópi
7 Þorkell Helgason 763.840 Seta í ráðgjafarhópi
Árið 2014
Viðskiptamaður Upphæð
1 Admon ehf. 95.757 Ráðgjöf vegna upplýsingakerfa
2 Daði Már Kristófersson 168.000 Seta í ráðgjafarhópi
3 Einar Hjörleifsson 273.000 Gagnavinnsla og kortagerð
4 IFS Ráðgjöf ehf. 67.750 Greiningarvinna
5 Markaðs- og miðlarannsóknir 1.563.981 Framkvæmd viðhorfskönnunar
6 Reifun ehf. 125.186 Þóknun til setts forstjóra (vegna vanhæfis við rannsókn)
7 Þorkell Helgason 434.858 Seta í ráðgjafarhópi
Árið 2013
Viðskiptamaður Upphæð
1 Hagldir eignarhaldsfélag ehf. 982.891 Lögfræðileg ráðgjöf
2 Port hönnun ehf. 359.452 Aðstoð við birtingu skýrslu
3 DH samskipti ehf. 233.618 Hagfræðileg ráðgjöf
Árið 2012
Viðskiptamaður Upphæð
1 Admon ehf. 318.068 Ráðgjöf vegna upplýsingakerfa
2 Port hönnun ehf. 497.703 Aðstoð við birtingu skýrslu
3 Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. 65.360 Lögfræðileg ráðgjöf
4 Þórólfur Geir Matthíasson 15.000 Hagfræðileg ráðgjöf