Ferill 548. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2236 — 548. mál.
Svar
menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um fjárheimildir Samkeppniseftirlitsins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Í ljósi þess að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2024 er mælt fyrir um töluvert aðhald hjá Samkeppniseftirlitinu, að því er segir í umsögn stofnunarinnar um frumvarpið, telur ráðherra að töluvert fjárhagslegt aðhald hjá eftirlitsaðilum virkrar samkeppni á markaði sé í samræmi við áherslu ríkisstjórnarinnar um að vinna bug á verðbólgu?
2. Telur ráðherra að það sé áhyggjuefni fyrir neytendur að Samkeppniseftirlitið telji sig ekki geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum vegna vanfjármögnunar stjórnvalda, sbr. fyrrnefnda umsögn?
3. Telur ráðherra ástæðu til að bregðast við því að í hverfandi mæli sé hægt að rannsaka brot sem varða misnotkun á markaðsráðandi stöðu og opinberum samkeppnishindrunum?
4. Hver eru rök ráðherra fyrir því að fjárheimildir Samkeppniseftirlitsins hafi ekki þróast í samræmi við þróun atvinnulífs og aukin verkefni sem henni fylgir, né heldur í samræmi við raunkostnað?
5. Hefur ráðherra litið til aðgerða á Norðurlöndum þar sem fjárheimildir hafa verið auknar til samkeppniseftirlitsstofnana með það að markmiði að stjórnvöld beiti sér með markvissum hætti gegn verðbólgu og fyrir virkari samkeppni?
Aðhald hjá Samkeppniseftirlitinu er í samræmi við aðhald á aðrar ríkisstofnanir og áherslur síðustu fjárlaga um aðhald til að draga úr vexti eftirspurnar og þar með verðbólgu. Ráðherra ber ábyrgð á málaflokki samkeppni og regluverki á sviðinu en svarar ekki fyrir forsendur frumvarpa á málefnasviði annarra ráðherra.
Samkeppniseftirlitið hefur m.a. það hlutverk að benda stjórnvöldum á leiðir til að gera samkeppni virkari, sbr. c-lið 1. mgr. 8. gr. samkeppnislaga. Með rúmri túlkun má fella þar undir ábendingar til stjórnvalda um að þörf sé á auknum fjárveitingum til stofnunarinnar. Slíkum ábendingum kom Samkeppniseftirlitið á framfæri með þeirri umsögn sem vísað er til í fyrirspurninni. Sambærilegum erindum hefur Samkeppniseftirlitið komið á framfæri við Alþingi og stjórnvöld með reglulegu millibili undanfarna tvo áratugi.
Ráðherra tekur ábendingar Samkeppniseftirlitsins alvarlega, ekki síst að því sem varðar takmarkaða getu eftirlitsins til að rannsaka brot sem varða misnotkun á markaðsráðandi stöðu og til að sinna öðrum verkefnum en þeim sem hafa lögbundna tímafresti. Ráðuneytið hefur fundað um ábendingarnar og leiðir til úrbóta með forsvarsmönnum stofnunarinnar, þar sem efnisatriði skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýsluúttekt á starfsemi Samkeppniseftirlitsins frá ágúst 2022 hefur einnig verið til umræðu.
Til að mæta ábendingunum gerði ráðuneytið tillögu um aukin fjárframlög til rekstrar Samkeppniseftirlitsins við gerð fjármálaáætlunar fyrir árin 2025–2029. Við afgreiðslu ríkisstjórnar voru framangreindar tillögur ekki settar í forgang og birtast þær því ekki í áætluninni. Framlög til Samkeppniseftirlitsins á fjárlögum eru í kjölfarið áfram til frekari skoðunar í ráðuneytinu, sem heldur áfram að stuðla að því að framlög á málefnasviði 16 (samkeppnismál og neytendamál) taki mið af auknum umsvifum í atvinnulífinu, verkefnum þeirra stofnana sem heyra þar undir og mikilvægi þess að þær geti sinnt þeim sem skyldi fyrir neytendur og heilbrigt atvinnulíf.
Í ráðuneytinu er einnig unnið að frumvarpi til breytingar á samkeppnislögum sem m.a. er ætlað að auka þær tekjur sem Samkeppniseftirlitið hefur af samrunagjöldum, í samræmi við ábendingu Ríkisendurskoðunar þar um í fyrrnefndri skýrslu, og auka möguleika eftirlitsins á skilvirkri framkvæmd samrunaathugana með breytingum á veltumörkum tilkynningarskyldra samruna, málsmeðferðarreglum samrunamála o.fl. Stefnt er að framlagningu frumvarpsins á Alþingi í október nk.
Ráðuneytið tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði samkeppnismála, jafnt á vettvangi EFTA sem og meðal Norðurlandaþjóðanna, og fylgist þannig með þróun málaflokksins í löndunum í kringum okkur. Jafnframt tekur Samkeppniseftirlitið ríkan þátt í norrænu samstarfi og kemur upplýsingum sem það telur mikilvægar, þ.m.t. um fjárheimildir systurstofnana, áleiðis til ráðuneytisins. Það hefur m.a. verið gert í umsögnum og erindum til Alþingis og stjórnvalda sem áður er vísað til. Með þessum hætti er ráðuneytið meðvitað um stöðu samkeppnismála á Norðurlöndum.