Ferill 790. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2237  —  790. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Sigríði J. Steingrímsdóttur um samninga Sjúkratrygginga Íslands og sálfræðinga og aðgengi að sálfræðiþjónustu.


     1.      Þykir ráðherra ástæða til að endurskoða rammasamning Sjúkratrygginga Íslands og sálfræðinga í ljósi þess hve fáir sálfræðingar eru á samningi við Sjúkratryggingar?
    Breytingar hafa verið gerðar á rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands og sálfræðinga undanfarin ár með aukinni þjónustu og fjármagni. Kostnaður við eldri samning um sálfræðiþjónustu, sem gilt hafði frá árinu 2009, nam um 46 millj. kr. árið 2021 samkvæmt fjárlögum þess árs.
    Undir lok árs 2022 var samningurinn útvíkkaður þannig að fólk á öllum aldri gæti fengið kostnaðarþátttöku Sjúkratrygginga vegna meðferðar við kvíðaröskun eða þunglyndi af einhverjum toga. Þar með gefst bæði börnum og fullorðnum með vægt til meðalþunglyndi og -kvíða tækifæri til að fá niðurgreidda þjónustu hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingi.
    Með útvíkkun samningsins árið 2022 var fjármagn til þjónustunnar aukið um 250 millj. kr. á fjárlögum 2022 og er heildarfjármagn vegna þjónustunnar á fjárlögum ársins 2024 nú 358 millj. kr.
    Samningurinn var síðast útvíkkaður í janúar 2024 með tilliti til þeirra sjúkdómsgreininga og geðraskana sem hann tekur til, m.a. með það að markmiði að höfða til fleiri sálfræðinga sem vilja sinna þjónustu á grundvelli rammasamningsins.
    Útvíkkun þjónustunnar hefur skilað því að fleiri einstaklingar nýta sér þjónustuna ár frá ári þrátt fyrir að fjöldi sérfræðinga sem starfa eftir samningnum hafi staðið í stað. Hlutfallsleg aukning milli áranna 2020 og 2023 nemur rúmum 86%, sjá nánar töflu:

Ár Fjöldi einstaklinga
2020 286
2021 400
2022 418
2023 533


     2.      Hvers vegna telur ráðherra að svo fáir sálfræðingar kjósi að vera á samningi við Sjúkratryggingar?
    Ýmsar ástæður geta legið að baki því að sálfræðingar kjósi eða kjósi ekki að starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar. Samningurinn sem nú er í gildi, og sálfræðingum býðst að gerast aðilar að, gerir ráð fyrir að fjöldi meðferðartíma í hverri lotu samkvæmt tilvísun geti verið allt að 10 skipti fyrir börn og 12 skipti fyrir fullorðna, með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Samkvæmt samningnum greiða Sjúkratryggingar Íslands 20.250 kr. fyrir 60 mínútna viðtal.
    Fram hefur komið frá Sjúkratryggingum að mögulegt sé að starfandi sálfræðingar hafi nóg að gera án kostnaðarþátttöku hins opinbera. Þá kann að vera að heildargreiðsla fyrir 60 mínútna viðtal hjá sálfræðingi við kvíðaröskun eða þunglyndi af einhverjum toga (vægt og meðal-) uppfylli ekki kröfur þeirra um greiðslu.
    Þá má jafnframt geta þess að sálfræðingar starfa á ýmsum sviðum samfélagsins, ekki bara innan heilbrigðisþjónustunnar.

     3.      Hyggst ráðherra ráðast í frekari aðgerðir til að tryggja aðgengi allra að sálfræðiþjónustu óháð efnahag?
    Jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu er leiðarljós stjórnvalda sem og að keypt þjónusta nýtist þeim sem mest þurfa á að halda. Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda og er viðvarandi verkefni. Fyrrgreindur samningur um greiðsluþátttöku vegna sálfræðiþjónustu og aukið fjármagn í málaflokkinn styður við þetta markmið stjórnvalda. Í ljósi þess um hve mikilvæga þjónustu er að ræða standa vonir til þess að unnt verði að fjölga sálfræðingum á samningnum og þar með auka aðgengi fólks að þjónustunni.
    Jafnt aðgengi er að þjónustu sálfræðinga sem starfa á heilsugæslustöðvum víðsvegar um landið og markvisst hefur verið unnið að uppbyggingu þeirrar þjónustu í tíð núverandi ríkisstjórnar. Aðgengi að slíkri þjónustu hefur verið stóraukið og hefur til að mynda samskiptum við sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fjölgað úr 1.628 á árinu 2016 í 3.387 árið 2023 eða rúmlega tvöfaldast. Þá voru ársverk sálfræðinga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um 20 árið 2015, um 41 árið 2020 og um 61 árið 2023.
    Einnig er vert að taka fram að geðheilbrigðisþjónustan hefur almennt verið efld undanfarin ár. Almenn geðheilbrigðisteymi innan heilsugæslunnar hafa verið styrkt á landsvísu og sálfræðingum í teymunum hefur verið fjölgað. Þá hefur þverfagleg geðheilbrigðisþjónusta á heilsugæslum um land allt verið styrkt til muna og sérstök geðheilsuteymi hafa verið stofnuð fyrir fanga, fjölskyldur, taugaþroskaraskanir og ADHD-greiningar fullorðinna. Geðheilsumiðstöð barna var síðan stofnuð í apríl 2022. Gegna sálfræðingar mikilvægum hlutverkum í öllum þessum þverfaglegu teymum.
    Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 kemur fram að geðheilsa og andlegt heilbrigði stuðli að því að einstaklingar geti tekið fullan þátt í samfélaginu, notið hæfileika sinna og lagt sitt af mörkum. Ein af stærstu áskorununum, eins og fram kemur í fyrrnefndri heilbrigðisstefnu, er að skapa heildrænt kerfi sem tryggir samfellda þjónustu við sjúklinga á réttu þjónustustigi hverju sinni.
    Í stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi í júní 2022 eru meginmarkmiðin þau að geðrækt, forvarnir og snemmtæk úrræði verði grundvöllur geðheilbrigðis einstaklinga. Heildræn geðheilbrigðisþjónusta verði samþætt og byggð á bestu mögulegu gagnreyndu meðferð, hæfingu og endurhæfingu. Þjónustan verði veitt af hæfu starfsfólki á viðeigandi þjónustustigum í árangursríku samstarfi við þjónustuveitendur í velferðarþjónustu. Þá verði notendasamráð og notendamiðuð þjónusta á öllum stigum geðheilbrigðisþjónustu og loks leiði nýsköpun, vísindi og þróun til betri geðheilbrigðisþjónustu og bætts aðgengis.
    Í þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2027, sem samþykkt var á Alþingi í maí 2023, eru 27 fjölbreyttar aðgerðir sem ætlað er að ná fram þeim markmiðum sem koma fram í stefnu í geðheilbrigðismálum, þ.m.t. aðgerðir sem varða aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu.