Ferill 562. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2238  —  562. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um börn á flótta.


     1.      Hefur verið sett reglugerð um hagsmunamat barna á flótta á grundvelli 7. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sbr. 5. mgr. sömu greinar? Ef ekki, hvað líður þeirri vinnu í ráðuneytinu?
    Í 7. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, kemur fram að ráðherra setji, að höfðu samráði við ráðherra sem fer með mál sem varða barnavernd, reglugerð um mat á hagsmunum barns skv. 5. mgr. Ákvæðið kom inn með breytingalögum nr. 14/2023 sem öðluðust gildi hinn 6. apríl 2023. Reglugerð á grundvelli ákvæðisins hefur ekki verið sett, sem skýrist fyrst og fremst af miklu álagi innan ráðuneytisins. Fyrirhugað er að sú vinna fari fram sem liður í vinnu við nýja stofnreglugerð um útlendinga á komandi vetri.

     2.      Hvaða úrbótatillögur sem lagðar voru til í skýrslunni Samantekt um stöðu barna í leit að alþjóðlegri vernd á Íslandi frá desember 2020 hafa komið til framkvæmda? Er nú unnið að framkvæmd fleiri tillagna í ráðuneytinu?
    Tillögur í skýrslunni voru alls níu talsins og féllu meðal annars á málefnasvið ráðuneytisins en tóku einnig til annarra ráðuneyta og undirstofnana. Þess skal getið að eftir skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 er það Vinnumálastofnun, sem heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sem ber ábyrgð á þjónustu umsækjenda um alþjóðlega vernd í stað Útlendingastofnunar og mennta- og barnamálaráðuneyti ber ábyrgð á málefnum barnaverndaryfirvalda, þ.m.t. hagsmunagæslu barna á grundvelli 31. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Voru tillögurnar skýrslunnar eftirfarandi:

1.     Bæta leiðbeiningarskyldu stjórnvalda.
    Tillaga 1 um leiðbeiningarskyldu stjórnvalda hefur nú þegar komið til framkvæmda hjá Útlendingastofnun og voru útbúnir sérstakir upplýsingabæklingar ætlaðir annars vegar fylgdarlausum börnum sem sækja um vernd hér á landi og hins vegar bæklingur ætlaður börnum sem sækja um alþjóðlega vernd og eru í fylgd foreldra/forráðamanna. Þannig er hægt að upplýsa öll börn sem sækja um alþjóðlega vernd um réttindi þeirra og hvað það þýðir að sækja um slíka vernd. Þá hefur sérstakur upplýsingabæklingur varðandi fjölskyldusameiningar verið útbúinn og hann afhentur þeim sem hljóta alþjóðlega vernd, þ.m.t. fylgdarlausum börnum. Til stendur að taka þennan bækling til notkunar haustið 2024. Fylgdarlaus börn fá öll viðtal hjá Útlendingastofnun fljótlega eftir komuna til landsins þar sem farið er yfir réttindi þeirra og skyldur sem umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá er unnið að barnvænum upplýsingum á vef Útlendingastofnunar og upplýsingavef stofnunarinnar. Þá hefur stofnunin til skoðunar hvort vert sé að ráðast í gerð upplýsingamyndbanda um sama efni.

2.     Skýra betur reglur sem gilda um viðtöl við börn.
    Vinna að tillögu 2 um rétt barns til að tjá sig er fyrirhuguð sem hluti af stærri endurskoðun reglugerðar um útlendinga, nr. 540/2017, á komandi vetri en búast má við að hafa þurfi samráð við mennta- og barnamálaráðuneyti vegna úrbótatillögunnar.

3.     Viðeigandi ráðstafanir til að tryggja fylgdarlausum börnum búsetu á heimili reknu af barnaverndaryfirvöldum.
    Eftir skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 fer mennta- og barnamálaráðuneyti með málefni barnaverndaryfirvalda, þ.m.t. hagsmunagæslu barna á grundvelli 31. gr. laga um útlendinga, og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti ber ábyrgð á þjónustu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Leitað var eftir upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneyti vegna þessarar tillögu.
    Á grundvelli laga um útlendinga, nr. 80/2016, gegnir barnaverndarþjónusta lögbundnu hlutverki gagnvart fylgdarlausum börnum sem dvelja á yfirráðasvæði ríkisins, þar á meðal hagsmunagæslu, til viðbótar við þá vernd og nauðsynlega aðstoð sem veitt er á grundvelli barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Barnaverndarþjónusta í því umdæmi sem barn dvelst eða er statt í fer með mál þess og umsjá barnsins eftir því sem þörf krefur og ber að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja hagsmuni þess, sbr. 5. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga. Sú barnaverndarþjónusta sem fer með mál fylgdarlauss barns metur út frá hagsmunum þess hvar það skuli dvelja á meðan umsókn þess er til meðferðar hjá viðkomandi yfirvöldum. Sé fylgdarlausu barni, sem er umsækjandi um alþjóðlega vernd, veitt heimild til dvalar á Íslandi er barnaverndarþjónustu sem fer með umsjá barns falin forsjá þess, sbr. 6. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga. Í barnaverndarlögum er enn fremur fjallað um úrræði barnaverndarþjónustu þegar börn eru vistuð utan heimilis, hvort sem það er í fóstri eða í öðrum úrræðum. Vistun fylgdarlausra barna er því á ábyrgð barnaverndarþjónusta sveitarfélaga.
    Í skýrslu dómsmálaráðuneytis frá árinu 2020 kom fram að sjaldgæft væri að fylgdarlaus börn færu í fóstur eða heimili á vegum barnaverndaryfirvalda. Frá þeim tíma hefur þó orðið nokkur breyting og byggist vistun fylgdarlausra barna nú yfirleitt á 84. gr. barnaverndarlaga en ákvæðið kveður m.a. á um vistheimili á ábyrgð sveitarfélaga. Mennta- og barnamálaráðuneyti hefur stutt fjárhagslega við vistunarúrræði barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar fyrir fylgdarlaus börn sem rekin eru á grundvelli 84. gr. barnaverndarlaga og þau vistunarúrræði standa öðrum sveitarfélögum til boða ef rými er til staðar. Þá hefur í ákveðnum tilfellum, að undangengnu mati barnaverndarþjónustu og í samráði við forsjáraðila barns, verið heimilt að leyfa barni að fylgja fylgdaraðila, sem ekki fer með forsjá barnsins, í úrræði fyrir fullorðna á meðan umsókn þess um vernd er til meðferðar hjá útlendingayfirvöldum. Í þeim tilfellum hefur verið litið svo á að um ráðstöfun forsjáraðila barnsins sé að ræða en ekki barnaverndarþjónustu þó að barnaverndarþjónustan sé enn með mál barnsins til meðferðar.

4.     Breytingar á móttöku og málsmeðferð fylgdarlausra barna – litið verði á þessi mál fyrst og fremst sem barnaverndarmál.
    Eftir skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 fer mennta- og barnamálaráðuneyti með málefni barnaverndaryfirvalda, þ.m.t. hagsmunagæslu barna á grundvelli 31. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneyti, sem aflað var í tengslum við fyrirspurn þingmanns, var lýst þeirri afstöðu ráðuneytisins að tillagan krefðist lagabreytinga en síðari hluti heildarendurskoðunar barnaverndarlaga væri unninn í mennta- og barnsmálaráðuneyti og stefnt er að frekara samtali milli ráðuneytanna í tengslum við þá vinnu.

5.     Sameiginlegt verklag Barnaverndarstofu og Útlendingastofnunar klárað.
    Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið aflaði frá Útlendingastofnun og Barna- og fjölskyldustofu, vegna úrbótatillögu 5, í desember 2022 var ákveðið að verklagið myndi einungis ná til fylgdarlausra barna sem óska eftir dvalarleyfi hér á landi. Það verklag liggur fyrir og er birt á vef Barna- og fjölskyldustofu. Þá er vinna hafin við gerð annars verklags vegna fylgdarlausra barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi. Sem stendur er starfandi vinnuhópur um gerð sameiginlegs verklags helstu aðila sem koma að málefnum fylgdarlausra barna. Mennta- og barnamálaráðuneyti hefur yfirumsjón með starfi hópsins og stýrir Barna- og fjölskyldustofa vinnu starfshópsins. Í hópnum eiga enn fremur sæti fulltrúar Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, lögreglu og helstu barnaverndarnefnda. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins er vinna hópsins komin vel á veg og stefnt að því að verklagið verði tilbúið í lok árs 2024.

6.     Fleiri umsækjendur í þjónustu hjá sveitarfélögum.
    Eftir skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 er það Vinnumálastofnun, sem heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sem ber ábyrgð á þjónustu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Vinnumálastofnun og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti hafa unnið að því frá árinu 2022 að reyna að fjölga sveitarfélögum sem taka á móti umsækjendum um alþjóðlega vernd og voru umsækjendur sem nutu þjónustu sveitarfélaganna 440 talsins í júní 2024.

7.     Frekari úrbætur á barnvænni aðstöðu í móttökumiðstöð.
    Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun hefur sérstakt viðtalsherbergi fyrir börn verið útbúið hjá stofnuninni og fara viðtöl við börn vegna umsókna þeirra um alþjóðlega vernd almennt fram þar. Viðtöl við fylgdarlaus börn fara þó fram í Barnahúsi. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun leggur stofnunin sig fram við að hafa umhverfið þar sem viðtöl við börn fara fram barnvænlegt og öruggt og unnið að því að bæta aðstöðu barna í móttökumiðstöðinni enn frekar.

8.     Fullnægjandi sérfræðiþekking í málefnum barna.
    Í tillögu 8 er fjallað um fullnægjandi sérfræðiþekkingu starfsfólks sem kemur að málefnum barna og því beint til m.a. Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála að huga sérstaklega að þjálfun og endurmenntun starfsfólks í málefnum barna.
    Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun sjá sérhæfðir starfsmenn stofnunarinnar, sem hlotið hafa sérstaka þjálfun í viðtalstækni við börn, um að undirbúa og taka viðtöl við börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd. Viðmiðunarregla stofnunarinnar sé að öllum börnum 12 ára og eldri skuli boðið að koma í viðtal hjá stofnuninni. Ef ástæða þykir til eru yngri börn tekin í viðtal, hafi þau þroska til. Þá eru foreldrar og talsmenn allra barna, óháð aldri, upplýstir um rétt til að koma til viðtals óski þau eftir því sérstaklega. Sérhæfing starfsmanna stofnunarinnar sem taka viðtöl við börn byggist á lögfræðimenntun eða sérfræðimenntun þeirra, reynslu, þjálfun í viðtalstækni á vegum Barnahúss og þjálfun á vegum European Asylum Support Office (EASO) sem í dag ber heitið European Union Agency for Asylum (EUAA). Útlendingastofnun leggur mikla áherslu á reglulega endurmenntun og þjálfun starfsfólks síns. Nefndi stofnunin m.a. að sérfræðingur á vegum Barnahúss hafi komið til Útlendingastofnunar og veitt þeim starfsmönnum stofnunarinnar sem taki viðtöl við börn sérstaka fræðslu í viðtalstækni við börn. Viðkomandi starfsmenn stofnunarinnar hafi jafnframt setið fyrirlestur í viðtalstækni við börn á vegum starfsmanns Útlendingastofnunar sem sótt hafi námskeið í viðtalstækni við börn á vegum EASO og hlotið réttindi til þjálfunar annarra starfsmanna í slíkri viðtalstækni. Þá stendur til að fleira starfsfólk stofnunarinnar hljóti þjálfun á vegum EUAA í viðtalstækni við börn haustið 2024.
    Samkvæmt upplýsingum frá kærunefnd útlendingamála starfa hjá nefndinni nánast eingöngu lögfræðingar sem hafa, menntunar sinnar vegna, þekkingu á réttindum barna og barnasáttmálanum. Reynt hafi verið að fá einhvers konar þjálfun á vegum Barnahúss, sem hafi ekki gengið eftir. Nefndin hefur í samskiptum sínum við ráðuneytið vísað til þess að það sé á dagskrá að fá fræðslu og þjálfun í málefnum barna, m.a. frá EASO og Barnahúsi. Slík fræðsla hafi þó enn ekki komið til framkvæmda hjá nefndinni.

9.     Verklagsreglur vegna mats á hagsmunum barna settar hjá Útlendingastofnun.
    Vorið 2021 lauk Útlendingastofnun gerð verklagsreglna vegna mats á hagsmunum barna, þar á meðal fylgdarlausra barna, sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni er reglunum fyrst og fremst ætlað að tryggja að málsmeðferð stofnunarinnar í málum barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi sé í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar og tryggja að fram fari heildstætt og einstaklingsbundið mat á hagsmunum barna vegna umsókna þeirra um vernd hér á landi og að öryggi barns, velferð þess og félagslegur þroski skuli hafður að leiðarljósi á öllum stigum málsmeðferðar stofnunarinnar. Í verklagsreglunum, sem birtar hafa verið á innri vef stofnunarinnar, komi m.a. fram til hvaða sjónarmiða beri að líta við mat á hagsmunum barna, framkvæmd mats á bestu hagsmunum þeirra og hvernig beri að gera grein fyrir hagsmunamatinu í ákvörðunum stofnunarinnar.

    Það er mat ráðuneytisins að brugðist hafi verið við þeim úrbótatillögum sem heyri undir málefnasvið dómsmálaráðuneytis og þeirri vinnu í flestum tilvikum lokið eða hún vel á veg komin. Þá er fyrirhugað að hefja vinnu við úrbótatillögu nr. 2 á komandi vetri samhliða heildarendurskoðun á stofnreglugerð um útlendinga, nr. 540/2017.