Ferill 948. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2239 — 948. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um húsleit á lögmannsstofum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hyggst ráðherra bregðast við ítrekuðum tilfellum þar sem lögregla hefur lagt hald á gögn lögmanna við húsleit á lögmannsstofum, sem óheimilt er að gera skv. 2. málsl. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 88/2008?
2. Hvaða úrræði tryggja að ekki sé rofinn trúnaður lögmanna gagnvart skjólstæðingum þeirra við húsleit og haldlagningu á gögnum í vörslu þeirra?
3. Telur ráðherra að réttarumgjörð lögmanna sé áfátt þegar þeir sæta þvingunarráðstöfunum af hálfu lögreglu í tengslum við brot skjólstæðinga þeirra?
4. Hyggst ráðherra bregðast við þrábeiðni Lögmannafélags Íslands um að settar verði reglur um húsleit á lögmannsstofum?
5. Hvernig telur ráðherra að hægt sé að vernda þagnarskyldu lögmanna gagnvart skjólstæðingum þeirra, sem er ein af undirstöðum réttarríkisins, þegar þeir sæta þvingunarráðstöfunum af hálfu lögreglu í tengslum við brot skjólstæðinga þeirra?
6. Telur ráðherra að rétt sé að breyta lögum þannig að réttur skjólstæðinga lögmanna, sem grundvallast á ákvæðum stjórnarskrárinnar, á þagnarskylduákvæði laga um lögmenn og á mannréttindasáttmála Evrópu, verði virtur í raun ef lögmenn sæta þvingunarráðstöfunum af hálfu lögreglu í tengslum við brot skjólstæðinga þeirra?
Það málefni sem fyrirliggjandi spurningar lúta að hefur verið til athugunar á vegum ráðuneytisins. Í þeim efnum er talið mikilvægt að vanda til verka, þar á meðal að rýna hvort efni séu til að sú umgjörð um húsleitir sem fyrirspurnin lýtur að, og Lögmannafélag Íslands hefur óskað eftir, þurfi að vera á breiðari grunni, svo sem með tilliti til annarra starfsstétta en einvörðungu lögmanna.
Engin formleg úrræði eru fyrir hendi til að tryggja að ekki sé rofinn trúnaður lögmanna gagnvart skjólstæðingum. Það er aftur á móti afstaða ráðherra að þagnarskylda lögmanna gagnvart skjólstæðingum sínum sé ein af grundvallarstoðum réttarríkisins og mikilvægt sé að tryggja hana á öllum stigum mála. Þegar lögmenn sæta þvingunarráðstöfunum vegna grunsemda um brot skjólstæðinga þeirra er nauðsynlegt að slíkar ráðstafanir fari fram með fyllstu varúð.
Það er mikilvægt að gildandi löggjöf endurspegli þetta og því hefur dómsmálaráðherra hug á að taka þessi mál til skoðunar. Í ársbyrjun 2023 fól dómsmálaráðherra réttarfarsnefnd, sem hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar á sviði réttarfars, að vinna drög að lagafrumvarpi um framkvæmd húsleita og haldlagningu gagna á lögmannsstofum. Í erindinu er tekið sérstaklega fram að nauðsynlegt sé að tekin verði afstaða til þess hvort slíkar lagareglur þurfi að byggjast á breiðari grunni með tilliti til annarra starfsstétta, svo sem presta, lækna, sálfræðinga, endurskoðenda og svo framvegis, en einnig að afstaða verði tekin til hvort regluverki sé áfátt þegar kemur að réttarvernd lögmanna hvað þetta varðar. Þegar þeirri vinnu lýkur verður framhald málsins ákveðið. Erindið er birt á vef ráðuneytisins.