Ferill 1088. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2240  —  1088. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um mat á öryggi ríkja.


    Leitað var til Útlendingastofnunar vegna fyrirspurnarinnar. Eru svör ráðherra byggð á upplýsingum frá stofnuninni. Þá vekur ráðuneytið athygli á því að í svari ráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um málsmeðferð umsókna umsækjenda um alþjóðlega vernd frá öruggum ríkjum (þskj. 1087, 580. mál á 150. löggjafarþingi) er með ítarlegum hætti fjallað um hvernig mat á öryggi ríkja fer fram.

     1.      Hvernig fer mat á öryggi ríkja fram og hvaða verklagsreglur gilda um slíkt mat, sbr. lista yfir örugg ríki á vef Útlendingastofnunar?
    Samkvæmt 2. mgr. 29. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála heimilt að styðjast við lista yfir ríki sem almennt eru álitin örugg upprunaríki við afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd sem þykja bersýnilega tilhæfulausar. Með öruggu upprunaríki er átt við ríki þar sem einstaklingar eiga almennt ekki á hættu að vera ofsóttir eða sæta alvarlegum mannréttindabrotum.
    Við mat á því hvort ríki teljist öruggt upprunaríki er m.a. litið til þess hvort þar sé stöðugt stjórnarfyrirkomulag sem byggist á viðurkenndum meginreglum um réttarríki, til efnahagslegrar stöðu ríkisins og til innri stjórnsýslu þess. Til þess að um öruggt upprunaríki sé að ræða verður ríkið að vera aðili að helstu alþjóðlegu mannréttindasáttmálum Sameinuðu þjóðanna. Þá er einnig höfð hliðsjón af svokölluðum Kaupmannahafnarviðmiðum, sem notuð eru á vettvangi Evrópusambandsins til að meta hvort ríki uppfylli skilyrði til að sækja um aðild að sambandinu, og af skýrslum, samantektum og gögnum annarra ríkja, alþjóðlegra samtaka og frjálsra félagasamtaka um aðstæður þar í landi.
    Áður en ákvörðun er tekin um að bæta landi á lista yfir örugg ríki eru niðurstöður umsókna um alþjóðlega vernd skoðaðar í málum hér á landi varðandi það ríki sem um ræðir. Þá er einnig litið til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á því hvaða upprunaríki teljist örugg. Ekki er gerð sú krafa að engum frá viðkomandi ríki hafi verið veitt vernd en ljóst er að synjunarhlutfall umsókna frá viðkomandi ríki á ársgrundvelli þarf að vera hátt. Loks er litið til þess hversu auðveldlega viðkomandi einstaklingur getur snúið til baka til Íslands verði ákvörðun snúið í kæruferli.
    Útlendingastofnun heldur utan um listann í samvinnu við dómsmálaráðuneyti með skipulegum hætti, uppfærir hann reglulega og birtir á vef stofnunarinnar. Þar er einnig hægt að kynna sér á hvaða grundvelli tiltekin ríki eru sett á listann.
    Áréttað er að þrátt fyrir að tiltekið ríki sé á lista yfir örugg ríki fer ávallt fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum í hverju máli um sig. Hvert mál er skoðað sérstaklega á eigin forsendum með tilliti til fyrirliggjandi gagna og landaupplýsinga á hverjum tíma. Útlendingastofnun framkvæmir mat á öllum þeim þáttum er snerta málsástæður sem umsækjandi um alþjóðlega vernd ber fyrir sig í málsmeðferð sinni hjá stofnuninni eins og skýrt er kveðið á um í lögum um útlendinga. Við einstaklingsbundið mat er sérstaklega skoðað hvort umsækjandi tilheyri minnihlutahópi í heimaríki sínu af einhverjum tilteknum ástæðum eða eigi rétt á dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Það eitt að umsækjandi um alþjóðlega vernd sé frá ríki á lista yfir örugg upprunaríki getur aldrei leitt til þess að Útlendingastofnun taki mál viðkomandi ekki til skoðunar eða synji umsókn hans án undangenginnar rannsóknar. Ávallt fer fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum í hverju máli um sig.

     2.      Hver framkvæmir mat á öryggi ríkja og hvenær fór slíkt mat fram síðast? Svar óskast sundurliðað eftir ríkjum.
    Starfsfólk Útlendingastofnunar framkvæmir reglulega mat á öryggi ríkja. Þetta mat fer fram þegar breytingar eða uppfærslur verða á efni þeirra heimilda eða skýrslna sem stofnunin byggir á eða ef ástæða þykir til, t.d. ef breytingar verða á ástandi í tilteknu landi. Á vefsíðu Útlendingastofnunar má finna lista yfir örugg upprunaríki og þau sjónarmið sem liggja til grundvallar veru ríkjanna á listanum. Þá má í flestum tilvikum finna til viðbótar dagsett minnisblöð þar sem útlistaðar eru ástæður þess að viðkomandi ríki eru á listanum.

     3.      Við hvaða heimildir er helst stuðst þegar ríki er metið öruggt eða óöruggt? Svar óskast sundurliðað eftir ríkjum.
    Við framangreint mat styðst Útlendingastofnun við alþjóðlegar skýrslur og aðrar áreiðanlegar og traustar heimildir. Starfsfólk stofnunarinnar vaktar helstu skýrslur sem byggt er á við úrlausn umsókna um vernd og uppfærir mat stofnunarinnar eftir þörfum. Meðal helstu heimilda sem stuðst er við eru landaskýrslur Asylum Information Database og European Council on Refugees and Exiles (ECRE) auk þess sem notast er við skýrslupakka Immigration and Refugee Board of Canada sem tekur reglulega saman allar helstu skýrslur alþjóðastofnana, mannréttindasamtaka og annarra, um öll lönd. Gagnapakkar á vef þeirra eru dagsettir og þá má finna útgáfudaga hverrar skýrslu um sig í pakkanum. Útlendingastofnun leggur áherslu á að ávallt sé stuðst við nýjustu skýrslur og heimildir við úrlausn mála.
    Mat stofnunarinnar við ákvarðanatöku á öryggi ríkja og ástandi hæliskerfa landa er uppfært þegar nýjar skýrslur og upplýsingar liggja fyrir um aðstæður í hverju landi um sig. Ekki eru til skráðar upplýsingar um það hvenær nákvæmlega mat á öryggi hvers ríkis um sig var framkvæmt nema fyrir þau ríki sem eru á lista yfir örugg upprunaríki líkt og fram kemur í svari við 1. tölul. Endurskoðun á matinu getur falist í uppfærslu á einstaka skýrslu eða efnisatriði um stöðu tiltekinna mála eða aðstæður í viðkomandi ríki þótt ekki sé ráðist í heildarendurskoðun á öryggi ríkja eða ástandi hæliskerfis í öllum tilvikum. Ráðist er í heildarendurskoðun ef ástæða er talin til, svo sem ef miklar breytingar verða á ástandi í viðkomandi ríki. Til dæmis má benda á að Úkraína var tekin af lista Útlendingastofnunar sem öruggt upprunaríki 24. febrúar 2022 í kjölfar innrásar Rússlands í landið. Ítarleg heimildaskrá fylgir öllum ákvörðunum Útlendingastofnunar með dagsettum skýrslum og öðrum heimildum sem byggt er á við matið í hverju máli um sig.

     4.      Er ástand og öryggi innan hælisleitendakerfis ríkis tekið til greina þegar mat á öryggi þess í heild er framkvæmt?
    Í þeim málum þar sem til skoðunar kemur að senda umsækjanda til lands þar sem hann þyrfti að fara í gegnum hælisleitendakerfi landsins er kerfið sem um ræðir skoðað heildstætt með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda í hverju máli um sig. Þá eru einnig möguleikar umsækjenda á því að leggja fram umsókn í viðkomandi ríki skoðaðir ef umsókn hefur ekki þegar verið lögð fram þar. Kemur þá jafnframt til skoðunar hvort sú vernd sem stendur þeim sem hljóta alþjóðlega vernd í viðkomandi landi til boða uppfylli skilyrði flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna eins og leiðir af lögum um útlendinga. Slíkt mat fer að jafnaði ekki fram í málum sem sæta forgangsmeðferð, enda er þar um að ræða mál sem fá efnislega úrlausn og umsækjendur sem færu ekki inn í hælisleitendakerfi viðkomandi ríkis. Mat á öryggi innan hælisleitendakerfis kemur því einkum til skoðunar í þeim málum sem falla undir 36. gr. laga um útlendinga, að undanskildum verndarmálum skv. a-lið 1. mgr. ákvæðisins.

     5.      Hvernig er metið hvort hælisleitendakerfi ríkis sé í stakk búið til að taka við endursendingum frá öðru ríki?
    Geta hælisleitendakerfis ríkis til að taka við endursendingum frá öðru ríki kemur fyrst og fremst til skoðunar í tengslum við umsóknir sem falla undir b-, c- og d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt b-lið er heimilt að vísa útlendingi sem komið hefur frá norrænu ríki aftur til þess ríkis í samræmi við norræna vegabréfaeftirlitssamninginn. Samningurinn er enn í gildi en hefur að nokkru marki misst gildi sitt vegna Dyflinnarreglugerðarinnar sem gildir á Norðurlöndum. Undir c-lið falla mál sem heyra undir Dyflinnarreglugerðina. Aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins ber að veita umsækjendum sem þar fá efnislega málsmeðferð umsóknar um vernd fullnægjandi aðbúnað varðandi húsnæði, framfærslu, heilbrigðisþjónustu, lögfræðilega aðstoð, réttarúrræði o.s.frv. Ekki mega vera alvarlegir kerfislegir ágallar á aðbúnaði eða málsmeðferð í viðkomandi ríki þar sem slíkt getur leitt til þess að ekki verði talið tækt að endursenda umsækjanda um vernd inn í kerfi viðkomandi ríkis. Þegar leyst er úr umsóknum skv. d-lið 36. gr. á grundvelli sjónarmiða um öruggt þriðja ríki eða fyrsta griðland ber einnig að kanna möguleika umsækjanda á því að leggja fram umsókn í viðkomandi ríki og möguleikum umsækjanda á því að fá þar viðunandi málsmeðferð í skilningi flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Mat íslenskra stjórnvalda samkvæmt þessum ákvæðum fer að jafnaði fram með sambærilegum hætti og lýst hefur verið að framan.