Ferill 1152. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2241  —  1152. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um heiðursofbeldi.


    Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá embættum ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og lögreglunnar á Suðurnesjum.

     1.      Hefur ráðherra upplýsingar um það hvort heiðurstengt ofbeldi hafi komið upp á Íslandi og hvert sé umfang þess?
    Með heiðurstengdu ofbeldi er almennt átt við að brot sé framið í því skyni að vernda eða verja heiður fjölskyldu eða samfélagshóps, þ.e. gerandi telur að þolandi hafi vegið að heiðri og orðspori og þar með valdið skömm. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur í nokkrum málum komið upp grunur um slíkt við meðferð heimilisofbeldismála en í flestum tilvikum er um að ræða tengda aðila. Meðferð þeirra mála hjá lögreglu byggist á verklagi lögreglu um heimilisofbeldi en þó ber að nefna að heiðurstengt ofbeldi getur átt sér stað án þess að um tengda aðila sé að ræða. Ekki liggur fyrir nákvæm tölfræði hjá lögreglu um heiðurstengt ofbeldi en samkvæmt svörum embættanna eru a.m.k. þrjú mál er varða heimilisofbeldi þar sem uppi var grunur um slíkt. Er eitt þeirra mála til meðferðar hjá dómstólum.

     2.      Hvaða ákvæði hegningarlaga ná til heiðursofbeldis og telur ráðherra að þau séu fullnægjandi?
    Þau ákvæði almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sem telja má að nái yfir heiðurstengt ofbeldi eru m.a. ákvæði 218. gr. b laganna um ofbeldi í nánum samböndum. Ákvæðinu er ætlað að ná utan um verknaðaraðferðir sem annars geta falið í sér sjálfstæða refsiverða háttsemi samkvæmt lögunum, þ.e. ofbeldi (217. og 218. gr.), hótanir (233. gr.), frelsissviptingu (226. gr.) og nauðung (225. gr.), sem auk t.d. ákvæða um umsáturseinelti (232. gr. a) og hótanir (233. gr. b) má telja að geti komið til skoðunar, þ.e. í þeim tilvikum sem félagsleg tengsl þolanda og geranda eru til staðar. Sé ekki um slíkt að ræða má telja að önnur framangreind ákvæði laganna geti komið til skoðunar ásamt viðeigandi heimildum til refsiþyngingar eftir 70. gr. laganna.
    Líkt og fram kom í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er eitt mál til meðferðar fyrir dómi þar sem grunur leikur á að um heiðurstengt ofbeldi hafi verið að ræða. Það er hlutverk dómstóla að meta hvort ákvæði gildandi laga séu fullnægjandi og þar með hvort þau nái yfir þessa tegund ofbeldis sérstaklega. Telji dómstólar að svo sé ekki verður metið hvort gera þurfi breytingar á gildandi löggjöf.

     3.      Hyggst ráðherra grípa til aðgerða til að vinna gegn heiðursofbeldi? Ef svo er, hvaða?
    Árið 2018 fullgilti Ísland samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúl-samninginn). Samkvæmt 42. gr. Istanbúl-samningsins er Ísland skuldbundið til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að við meðferð sakamáls vegna ofbeldisbrots verði menning, siðir, trúarbrögð, hefðir eða svokallaður „heiður“ ekki talin réttlæta slík brot. Eigi það einkum við um fullyrðingar þess efnis að þolandi hafi brotið gegn menningarlegum, trúarlegum, félagslegum eða hefðbundnum grunnreglum og siðum um rétta hegðun.
    Haustið 2023 skipaði ráðherra starfshóp um gerð landsáætlunar um innleiðingu Istanbúl-samningsins. Í þeirri vinnu hefur starfshópurinn til hliðsjónar úttektarskýrslu GREVIO, eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með Istanbúl-samningnum, frá 2022 þar sem fram kemur m.a. að íslensk stjórnvöld þurfi að gera ráðstafanir til að bregðast við heiðurstengdu ofbeldi. Starfshópurinn vinnur að því nú að kanna hvaða möguleikar eru til staðar til að bregðast við slíku ofbeldi.
    Á síðustu árum hafa sérfræðingar á vegum lögreglu, ásamt samstarfsaðilum hjá Reykjavíkurborg, setið námskeið og fengið kynningar á heiðurstengdu ofbeldi og viðbrögðum við því, m.a. frá sérfræðingum frá Noregi og Danmörku. Þá er í ferli að þróa áhættumat sem lögregla mun nota í heimilisofbeldismálum en þar verður skimað fyrir heiðurstengdu ofbeldi og þannig verður betur unnt að greina þessi mál.
    Margt hefur áunnist þegar kemur að meðferð mála innan lögreglu sem tengjast heimilisofbeldi og aukin áhersla hefur verið lögð á að vinna gegn heiðurstengdu ofbeldi, en í því felst meðal annars að bera kennsl á mál af því tagi og taka þau til skjótrar meðferðar. Unnið verður áfram að umbótum þegar kemur að meðferð þessarar mála, meðal annars í tengslum við gerð landsáætlunar um innleiðingu Istanbúl-samningsins.