Ferill 1151. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2243  —  1151. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um íslensku sem opinbert mál á Íslandi.


     1.      Hvernig styðja stjórnvöld við íslensku sem opinbert mál á Íslandi og sameiginlegt mál landsmanna?
    Samkvæmt lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61/2011, er íslenska þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi. Þar kemur einnig fram að stjórnvöld skuli tryggja að unnt sé að nota hana á öllum sviðum íslensks þjóðlífs.
    Stuðningur stjórnvalda við íslensku, verndun hennar og þróun, er margháttaður en málefni íslenskrar tungu tengjast með beinum eða óbeinum hætti við starfsemi allra ráðuneyta og fjölmargra stofnana á þeirra vegum.
    Virkustu tengsl menningar- og viðskiptaráðuneytis á þessu sviði eru við mennta- og barnamálaráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, auk forsætisráðuneytis sem ber ábyrgð á samhæfingu málaflokka. Í maí sl. samþykkti Alþingi þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2024–2026 sem mótuð var í samvinnu framangreindra ráðuneyta. Með áætluninni eru forgangsverkefni stjórnvalda í málefnum íslenskunnar skilgreind með hliðsjón af endurskoðaðri málstefnu Íslenskrar málnefndar. Aðgerðirnar 22 eru á forræði ráðuneytanna auk þess sem fjölmargar stofnanir, samtök og félög eru samstarfsaðilar. Sumar aðgerðanna fela í sér umfangsmiklar kerfisbreytingar en áætlunin hefur tengsl við mörg önnur áhersluverkefni stjórnvalda sem unnið er að í samstarfi ráðuneyta og stofnana, þar á meðal stefnumótun í málefnum innflytjenda og flóttafólks, menntastefnu til 2030, heildarendurskoðun framhaldsfræðslukerfisins og aðgerðaáætlun ferðaþjónustu til 2030. Umfangsmestu kostnaðarliðir aðgerðanna eru vegna áframhaldandi fjárfestinga í máltækni og máltækniinnviðum, virkjun Samevrópska tungumálarammans með gerð stöðumats í íslensku sem öðru máli, nýrri vefgátt fyrir rafræn námsgögn og samræmt verklag um móttöku, kennslu og þjónustu við börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
    Ráðuneytin verja fjármagni til stuðnings við íslensku sem opinbert mál, m.a. í gegnum skólastigin fjögur, frá leikskóla til háskóla, og framhaldsfræðslu. Þá er íslensk tunga lykilþáttur í íslenskri menningarstefnu, auk varðveislu og miðlun menningararfsins.
    Mikilvægi íslenskunnar er einnig áréttað víða í lögum, svo sem í 3. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, um hlutverk RÚV og skyldur sem fjölmiðlaþjónusta í almannaþágu, lögum um bókmenntir, nr. 91/2007, og lögum um sviðslistir, nr. 165/2019.
    Málefni íslenskrar tungu eru áherslumál samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og á undanförnum árum hefur fjölþættum sértækum aðgerðum verið hrint í framkvæmd til þess að efla stöðu þjóðtungunnar; má þar m.a. nefna fjárfestingar í innviðum íslenskrar máltækni, stuðning við einkarekna fjölmiðla, endurgreiðslur kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku, styrki til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda, eflingu bókasafnasjóðs höfunda og tilkomu barnabókasjóðsins Auðar. Þá hafa stjórnvöld komið að margvíslegum læsis- og vitundarvakningarverkefnum sem tengjast íslenskri tungu að undanförnu. Samandregið nema fjárveitingar vegna sértækra aðgerða í þágu íslenskrar tungu minnst 9,2 milljörðum kr. síðastliðin sjö ár, auk fjárveitingar vegna byggingar og standsetningar Eddu, húss íslenskunnar, sem opnað var vorið 2023.
    Hvað varðar menningar- og viðskiptaráðuneytið sérstaklega fást margar undirstofnanir þess við málefni íslenskrar tungu í störfum sínum og vinna að því að styrkja stöðu hennar í samfélaginu. Hér má taka dæmi af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni sem veitir öllum landsmönnum aðgang að rituðu efni á íslensku og Árnastofnun sem heldur m.a. annars úti mikilvægu starfi varðandi gerð orðabóka og gagnagrunna um íslenskt mál. Þá heyrir Íslensk málnefnd undir ráðuneytið og hefur það hlutverk að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og álykta um stöðu tungumálsins og semja opinberar ritreglur sem og örnefnanefnd. Miðstöð íslenskra bókmennta heyrir einnig undir ráðuneyti menningar og viðskipta en hlutverk hennar er m.a. að efla bókmenningu á Íslandi. Ýmsir styrkir sem miðstöðin miðlar stuðla beint og óbeint að eflingu íslenskrar tungu. Þá nýtur margvísleg starfsemi sem tengingu hefur við íslenska tungu og menningararf þjóðarinnar styrkja frá stjórnvöldum, þ.m.t. Gunnarsstofnun, Þórbergssetur, Hið íslenzka fornritafélag og Hið íslenska bókmenntafélag.

     2.      Hvernig samrýmist það markmiðum stjórnvalda um að efla íslensku sem opinbert mál að stjórnsýsla hérlendis fari fram á erlendu tungumáli?
    Samkvæmt lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61/2011, er íslenska þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi. Þar segir enn fremur að íslenska sé mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda, jafnt ríkis sem sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnana sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu.
    Í málstefnu Stjórnarráðs Íslands, sem samþykkt var 2012, er sérstaklega vikið að íslensku í Stjórnarráðinu. Þar segir: „Starfsmenn Stjórnarráðs Íslands nota íslensku í störfum sínum nema þar sem erlend samskipti krefjast notkunar annarra mála. Fundargerðir, minnisblöð og bréfaskipti innan Stjórnarráðsins, skýrslur og öll vinnugögn eru á íslensku nema sérstök rök séu fyrir notkun annarra mála.“ Í 4. kafla málstefnunnar kemur þó fram að tryggja skuli réttindi manna af erlendum uppruna í samskiptum við Stjórnarráð Íslands með því að bjóða eftir föngum túlkaþjónustu þeim sem ekki geta tjáð sig á íslensku. Ráðuneytinu er ekki kunnugt um hversu mikið hafi reynt á þetta ákvæði síðastliðin ár en bendir á að umboðsmaður Alþingis gerði frumkvæðisathugun á þessu árið 2020 sem aðgengileg er hér: www.umbodsmadur.is/alit-og-bref/mal/nr/8504/skoda/mal/.

     3.      Hvaða viðmið hafa verið sett um málnotkun á vegum stjórnvalda og atvinnulífs á grundvelli þingsályktunar nr. 36/149 um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi, sem samþykkt var á Alþingi 7. júní 2019?
    Íslensk málnefnd semur íslenskar ritreglur en grundvallarbreytingar á þeim eru háðar samþykki ráðherra samkvæmt lögum nr. 61/2011. Að öðru leyti hafa formleg viðmið ekki verið gefin út. Nú eru í gildi tvær auglýsingar um þetta efni, annars vegar nr. 695/2016 og hins vegar nr. 800/2018, um setningu íslenskra ritreglna. Reglurnar gilda um stafsetningarkennslu í skólum og um útgefið efni á vegum hins opinbera.
    Í 10. gr. laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er kveðið á um að það mál sem notað er í starfsemi ríkis og sveitarfélaga eða á vegum þeirra skuli vera vandað, einfalt og skýrt. Þessi viðmið ásamt ritreglum eru því hin eiginlegu opinberu viðmið sem gilda um notkun íslensku. Málstefna Stjórnarráðsins, sem nefnd er í 2. lið svarsins hér að framan, víkur einnig að þessu hvað varðar íslensku, íslenskt táknmál sem og önnur tungumál. Þar segir: „Mál það sem fer frá Stjórnarráðinu skal vera vandað. Á þetta við um öll tungumál, íslensk sem erlend, raddmál sem táknmál. Vandað mál er markvisst og í samræmi við málvenju, í réttu málsniði, vandlega frágengið og ritað í samræmi við gildandi reglur um réttritun. Mál það sem fer frá Stjórnarráðinu skal vera skýrt og öllum skiljanlegt. Í skýru máli eru fremur notuð stutt orð en löng og stuttar setningar fremur en langar. Mikilvægt er að skýra sérhæfð orð og hugtök.“
    Íslensk málnefnd gaf út nýja málstefnu árið 2021 sem gildir til ársins 2030. Í henni er áhersla lögð á eftirtalin atriði:
    1.     Málrækt og viðhorf til íslensku.
    2.     Jafnræði, jafnrétti og fjölmenningarlegt samfélag.
    3.     Máluppeldi barna.
    4.     Íslenska í skólakerfinu.
    5.     Íslenska sem annað mál.
    6.     Íslenska í háskólum og rannsóknastarfi.
    7.     Menning og miðlar.
    8.     Íslensk máltækni.
    9.     Íslenska í stjórnsýslu, opinberri þjónustu og atvinnulífi.
    Einnig má vekja athygli á því að í tillögu til þingsályktunar um bókmenntastefnu fyrir árin 2024–2030, sem lögð var fyrir 154. löggjafarþing en náði ekki fram að ganga, er kveðið á um endurskoðun á því regluverki sem tengist málefnum íslenskrar tungu.
    Þá er einnig vikið að málstefnu sveitarfélaga í 130. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Þar er sveitarfélögum gert skylt að móta eigin málstefnu og skýra rétt íbúa af erlendum uppruna til samskipta á öðru máli en íslensku. Íslenskt mál sem notað er í starfsemi sveitarfélags eða á vegum þess skal vera vandað, einfalt og skýrt, rétt eins og mál annarra stjórnvalda.
    Þá má einnig nefna að menningar- og viðskiptaráðherra og forstjóri Neytendastofu rituðu í sameiningu undir viljayfirlýsingu síðla árs 2023 um átaksverkefni sem miðar að því að auka vitund fyrirtækja og almennings um íslenskuákvæði laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, um að auglýsingar skuli vera á íslensku. Í frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga sem lagt var fram á yfirstandandi þingi er jafnframt ákvæði þar sem enn frekar er skerpt á þeirri reglu að auglýsingar, þ.m.t. auglýsingar á skiltum í umhverfinu, matseðlar veitingastaða o.s.frv., skuli vera á íslensku.