Ferill 1171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2244  —  1171. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um kynhlutlaust mál.


     1.      Hver varð niðurstaðan af fundi ráðherra og fulltrúa Ríkisútvarpsins sem boðaður var vegna umræðu um kynhlutlaust mál?
    Fundurinn fór fram í kjölfar umræðu á Alþingi og í samfélaginu um stöðu og þróun tungumálsins á vettvangi Ríkisútvarpsins. Á fundinum kynntu fulltrúar RÚV drög að nýrri málstefnu RÚV og stefnur og strauma sem ríkja innan stofnunarinnar í málefnum tungumálsins. Fundurinn var til upplýsingar og fór ráðherra yfir sín sjónarmið í málefnum tungumálsins, m.a. um kynhlutlaust mál, sem komið hafa fram opinberlega.

     2.      Hefur ráðherra gripið til einhverra aðgerða eða tekið einhverjar ákvarðanir vegna þessarar umræðu? Ef svo er, til hvaða aðgerða hefur verið gripið og hvaða ákvarðanir hafa verið teknar?
    Stuðningur stjórnvalda við íslensku, verndun hennar og þróun hefur verið umfangsmikill og margháttaður, en ráðist hefur verið í yfir 40 aðgerðir á undanförnum árum. Málefni íslenskrar tungu tengjast með beinum eða óbeinum hætti starfsemi allra ráðuneyta og fjölmargra stofnana á þeirra vegum.
    Málefni íslenskrar tungu eru áherslumál samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og á undanförnum árum hefur fjölþættum aðgerðum verið hrint í framkvæmd til þess að efla stöðu þjóðtungunnar á breiðum grunni. Má þar m.a. nefna fjárfestingar í innviðum íslenskrar máltækni, stuðning við einkarekna fjölmiðla, endurgreiðslur kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku, styrki til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda, eflingu bókasafnasjóðs höfunda og tilkomu barnabókasjóðsins Auðar. Þá hafa stjórnvöld komið að margvíslegum læsis- og vitundarvakningarverkefnum sem tengjast íslenskri tungu að undanförnu. Samanlagt nema fjárveitingar vegna sértækra aðgerða í þágu íslenskrar tungu minnst 9,2 milljörðum kr. sl. sjö ár, auk fjárveitingar vegna byggingar og standsetningar Eddu, húss íslenskunnar sem opnað var vorið 2023.
    Virkustu tengsl ráðuneytisins á þessu sviði eru við mennta- og barnamálaráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, auk forsætisráðuneytis sem ber ábyrgð á samhæfingu málaflokka.
    Í maí sl. samþykkti Alþingi þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026 sem mótuð var í samvinnu framangreindra ráðuneyta. Með áætluninni eru forgangsverkefni stjórnvalda í málefnum íslenskunnar skilgreind með hliðsjón af endurskoðaðri málstefnu Íslenskrar málnefndar. Aðgerðirnar 22 eru á forræði ráðuneytanna auk þess sem fjölmargar stofnanir, samtök og félög eru samstarfsaðilar.
    Meðal lykilaðgerða í áætluninni eru:
     –      Starfstengt íslenskunám fyrir innflytjendur samhliða vinnu.
     –      Bætt gæði íslenskukennslu fyrir innflytjendur.
     –      Innleiðing rafrænna stöðuprófa í íslensku.
     –      Framtíð máltækni – nýjasta tækni á íslensku samkvæmt máltækniáætlun.
     –      Aukin talsetning og textun á íslensku.
     –      Sameiginlegt fjarnám í hagnýtri íslensku sem öðru máli.
     –      Íslenska handa öllum – gerðar verði kröfur um að innflytjendur öðlist grunnfærni í íslensku og hvatar til þess efldir.
     –      Efling íslenskuhæfni starfsfólks í leik- og grunnskólum og frístundastarfi.
     –      Samþætting íslensku og erlendra móðurmála á fagtengdum grunnnámskeiðum starfsfólks í heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinum.
     –      Vefgátt fyrir miðlun rafræns námsefnis fyrir öll skólastig.
     –      Samræmt verklag um móttöku, kennslu og þjónustu við börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn með sérstakri áherslu á íslensku sem annað mál.
     –      Fjarnám í íslensku á BA-stigi.
    Sumar aðgerðanna fela í sér umfangsmiklar kerfisbreytingar en áætlunin hefur tengsl við mörg önnur áhersluverkefni stjórnvalda sem unnið er að í samstarfi ráðuneyta og stofnana, þar á meðal stefnumótun í málefnum innflytjenda og flóttafólks, menntastefnu til ársins 2030, heildarendurskoðun framhaldsfræðslukerfisins og aðgerðaáætlun í ferðaþjónustu til ársins 2030.
    Hvað varðar ráðuneytið sérstaklega fást margar undirstofnanir þess við málefni íslenskrar tungu í störfum sínum og vinna að því að styrkja stöðu hennar í samfélaginu. Hér má taka dæmi af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni sem veitir öllum landsmönnum aðgang að rituðu efni á íslensku og Árnastofnun sem heldur m.a. annars úti mikilvægu starfi varðandi gerð orðabóka og gagnagrunna um íslenskt mál. Þá heyrir Íslensk málnefnd undir ráðuneytið og hefur það hlutverk að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og álykta um stöðu tungumálsins og semja opinberar ritreglur, sem og örnefnanefnd. Miðstöð íslenskra bókmennta heyrir einnig undir ráðuneyti menningar og viðskipta en hlutverk hennar er m.a. að efla bókmenningu á Íslandi. Ýmsir styrkir sem miðstöðin miðlar stuðla beint og óbeint að eflingu íslenskrar tungu. Þá nýtur margvísleg starfsemi sem tengingu hefur við íslenska tungu og menningararf þjóðarinnar styrkja frá stjórnvöldum, þ.m.t. Gunnarsstofnun, Þórbergssetur, Hið íslenzka fornritafélag og Hið íslenska bókmenntafélag.