Ferill 1107. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2248 — 1107. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um kostnaðarauka ríkissjóðs við óskertar fæðingarorlofsgreiðslur.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver væri kostnaðarauki ríkissjóðs árin 2018–2023 ef mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði væri 100% af meðaltali heildarlauna í stað 80% í lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, að því gefnu að lengd fæðingarorlofs haldist óbreytt? Óskað er eftir upplýsingum um kostnaðarauka að teknu tilliti til lækkunar barna-, vaxta- og húsnæðisbóta og annarra bóta eftir atvikum, og einnig að tekið sé tillit til hærri tekjuskattsgreiðslna til ríkissjóðs frá þeim sem fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
2. Hver hefði sami kostnaðarauki verið ef allir hefðu fullnýtt rétt sinn til fæðingarorlofs á þessum árum?
3. Hver væri, miðað við forsendur ársins 2024, áætlaður kostnaðarauki árin 2024–2027 ef mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði yrði 100% af meðaltali heildarlauna á sama tíma og til stendur að hækka hámarksfjárhæð mánaðarlegrar greiðslu úr 600.000 kr. í 900.000 kr.?
Fjármála- og efnahagsráðuneytið býr ekki yfir nema hluta þeirra gagna sem þarf til að vinna svar við fyrirspurninni, skattálagningargögnum sem innihalda einnig barna- og vaxtabætur. Hvað varðar húsnæðisbætur og áhrif tekna á þær þá eru þau gögn og útreikningur í umsjón Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Vinnumálastofnun hefur með höndum fæðingarorlofskerfið og útreikninga þeirra bóta miðað við mismunandi forsendur fyrir orlofsgreiðslunum. Ráðuneytið leitaði til Vinnumálastofnunar með beiðni um að endurreikna fæðingarorlofsgreiðslur umbeðinna ára niður á einstaklinga, eftir þeim forsendum sem gefnar eru í fyrirspurninni. Jafnframt var óskað eftir að gögnin yrðu dulkóðuð og send Skattinum svo hægt væri að skoða hvort unnt yrði að samkeyra þau við skattagögn til að endurreikna álagningu tekjuskatts og umræddra bótagreiðslna síðustu fimm ár. Í svari Vinnumálastofnunar til ráðuneytisins kemur fram að talsvert langan tíma myndi taka að endurreikna öll gögnin fyrir þessi ár. Segir jafnframt í svarinu að sá endurreikningur yrði mjög tímafrekur og að stofnunin hafi ekki ráðrúm til þess að annast um þetta ásamt reglubundnum verkefnum um þessar mundir. Auk þess telur stofnunin óvíst hvort heimildir séu fyrir því að miðla upplýsingum til Skattsins, sem myndi annast dulkóðun gagnanna, og að það myndi þarfnast frekari skoðunar. Með vísan til framangreinds verður því ekki séð að hægt verði að endurreikna fæðingarorlofsgreiðslur, tekjuskatt, barnabætur, vaxtabætur og húsnæðisbætur undanfarin fimm ár, eins og óskað er eftir í fyrirspurninni og innan þess tímafrests sem gert er ráð fyrir í þingskapalögum.