Ferill 1164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2249  —  1164. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um hlutfall rafmagnsbifreiða á Íslandi.


     1.      Hvert var hlutfall rafmagnsbifreiða af heildarfjölda bifreiða á Íslandi í lok árs 2023?
    Samkvæmt tölum frá Samgöngustofu var í lok ársins 2023 hlutfall þeirra bifreiða á bifreiðaskrá í flokki fólksbifreiða (M1) sem ganga fyrir rafmagni 9,2%. Hlutfall allra bíla (M1, M2, M3, N1, N2 og N3) sem ganga fyrir rafmagni var um 8,1%.

     2.      Hvert áætla stjórnvöld að hlutfallið verði árið 2030?
    Stjórnvöld hafa á undanförnum árum innleitt öfluga hagræna hvata fyrir orkuskipti í vegasamgöngum, þar á meðal með ívilnunum fyrir kaupum og rekstri á rafmagnsbifreiðum, sem í dag eru einkum í mynd beinna styrkja við bifreiðakaup auka ívilnana og styrkja til uppbyggingar á hleðsluinnviðum. Á síðasta ári var svo komið að yfir 70% af nýskráningum bifreiða heimila og fyrirtækja voru hreinar rafmagnsbifreiðar. Þær námu þó einungis um 16% af nýskráningum hjá bílaleigum þannig að þær voru nálægt helmingur af nýskráningum bifreiða í heild. Þessi hlutföll eru óvíða jafn há í öðrum löndum. Þannig hefur náðst mikill árangur í þessum orkuskiptum á skömmum tíma þar sem hlutfall hreinna rafmagnsbifreiða af fólksbílaflotanum var undir 1% árið 2017 en var orðið liðlega 9% á síðasta ári. Stjórnvöld hafa ekki beinlínis gert áætlun eða sett markmið um tiltekið hlutfall rafmagnsbifreiða af bifreiðaflotanum árið 2030 heldur hafa verið sett heildarmarkmið um orkuskipti og að draga úr losun í samgöngum. Í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er sett markmið um 21% samdrátt í losun vegna ökutækja og innviða frá 2005 til 2030. Í því skyni eru settar fram fjölþættar aðgerðir í áætluninni, svo sem uppbygging almenningssamgangna og aðrar breyttar ferðavenjur og styrkir til kaupa á hreinorkubifreiðum.
    Í þessu sambandi má einnig líta til þess að Orkustofnun hefur um langt árabil gert árlega raforkuspá fyrir Ísland sem byggð er á ýmsum hagrænum forsendum en einnig hefur verið höfð nokkur hliðsjón af áformum stjórnvalda. Síðasta spá tók til áranna 2023 til 2050 og þar er miðað við að allir nýskráðir fólksbílar verði rafbílar frá og með árinu 2030. Í þeirri spá er horft til hlutfalls hreinorkubíla í bílaflotanum og það metið út frá þróun á afskriftum eldri bíla og nýskráningum í bílaflotann. Í þessu samhengi eru hreinorkubílar skilgreindir sem rafmagnsbifreiðar og vetnisbifreiðar en gera má ráð fyrir að fjöldi vetnisbifreiða verði þó mjög lítill hluti. Samkvæmt þeirri spá er gert ráð fyrir að árið 2030 verði um 28% allra bíla hreinorkubifreiðar og um 30% allra fólksbíla. Auk þess gerir Orkustofnun háspá þar sem gert er ráð fyrir hraðari orkuskiptum. Samkvæmt þeirri spá verða um 42% allra bíla og 44% fólksbíla hreinorkubílar árið 2030. Í þessu sambandi þarf að hafa í huga að þótt nýskráningar bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verði ekki heimilar eftir árið 2030 samkvæmt áformum stjórnvalda þá munu þær bifreiðar sem þá verða enn þá til staðar í bílaflota landsins endast áfram í allmörg ár og hafa áhrif á hlutfall rafmagnsbifreiða af bílaflotanum.