Ferill 1022. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2252  —  1022. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um vefinn opnirreikningar.is.


     1.      Hvaða stofnanir ríkisins birta ekki fjárhagsupplýsingar á vefnum opnirreikningar.is og hvers vegna ekki, sundurliðað eftir stofnun?
    Vefurinn opnirreikningar.is var opnaður í september 2017 með það að markmiði að auka gagnsæi og aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins. Á þessu vefsvæði er miðlað upplýsingum úr sameiginlegu fjárhagsbókhaldi ríkisins fyrir þær ríkisstofnanir sem halda bókhald sitt í því kerfi, svonefndum Orra sem Fjársýsla ríkisins rekur. Þar er fyrst og fremst um að ræða ríkisstofnanir í A1-hluta ríkisins, sem fjármagnaður er með skatttekjum og fjárheimildum í fjárlögum. Rekstraraðilar í A2-hluta, sem eru lána- og fjárfestingarsjóðir og standa undir sér með lánastarfsemi eða leigu, og í A3-hluta, sem eru hlutafélög í meirihlutaeigu ríkissjóðs en annast um verkefni á sviði opinberrar þjónustu, sem og fyrirtæki í B- og C-hluta, hafa heimild til að starfrækja eigin bókhaldskerfi og einstakar reikningsfærslur þeirra eru því ekki skráðar í bókhaldskerfi Orrans. Einnig eru margir þessara aðila undanþegnir upplýsingaskyldu vegna viðskiptaleyndar.
    Þær A1-hluta ríkisstofnanir sem birta ekki fjárhagsupplýsingar á vefnum opnirreikningar.is enn sem komið er eru eftirfarandi:

Bankasýsla ríkisins
Fjarskiptastofa
Fjölmiðlanefnd
Gljúfrasteinn – hús skáldsins
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Hólaskóli – Háskólinn á Hólum
Hugverkastofan
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Íslenski dansflokkurinn
Jafnréttisstofa
Kvikmyndamiðstöð Íslands
Kvikmyndasafn Íslands
Land og skógur
Listasafn Einars Jónssonar
Menntasjóður námsmanna
Náttúruminjasafn Íslands
Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn
Óbyggðanefnd
Rannsóknanefnd samgönguslysa
Ríkissáttasemjari
Safnasjóður
Samgöngustofa
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
Umboðsmaður barna
Úrvinnslusjóður
Ýmis verkefni
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

    Vakin er athygli á því í þessu sambandi að stofnanir í A1-hluta sem eiga aðild að vefnum opnirreikningar.is birta ekki þá reikninga sem fara ekki í gegnum viðskiptaskuldakerfi Orra, eins og launagreiðslur, greiðslur í erlendum gjaldeyri, bætur og styrkir, heldur er fyrst og fremst um að ræða reikninga fyrir kaup á vöru og þjónustu. Þar eru ekki heldur birtir reikningar sem innihalda viðkvæmar persónuupplýsingar, upplýsingar sem gætu haft skaðleg áhrif á samkeppni eða upplýsingar sem varða öryggismál.
    Í einhverjum tilfellum hefur orðið misbrestur á að nýjar stofnanir og stofnanir sem hafa flust milli ráðuneyta birti reikninga á vefnum. Gera má ráð fyrir þeir aðilar hefji birtingu þegar búið verður að innleiða þessa upplýsingamiðlun úr fjárhagsbókhaldi þeirra.
    Þá skal bent á að á vefnum hafa ekki verið birtar upplýsingar úr fjárhagsbókahaldi embættis forseta Íslands og Alþingis eða stofnana Alþingis, þ.e. Ríkisendurskoðunar og umboðsmanns Alþingis. Fyrirspurn um notkun Alþingis og stofnana þess á vefnum opnirreikningar.is þarf að beina til forseta Alþingis, sbr. 3. mgr. 8. gr. þingskapalaga.

     2.      Stendur til að þessar stofnanir, ef einhverjar eru, taki þátt í verkefninu á komandi misserum?
    Frá því að vefurinn var opnaður í september 2017 hafa ráðuneyti og stofnanir ríkisins verið teknar inn í áföngum. Lagt var upp með að reikningar stofnana með færri en 10 starfsmenn myndu ekki birtast til að byrja með og ekki hefur verið ráðin bót á því enn sem komið er. Engin lagaskylda hvílir á stofnunum að birta upplýsingar á vefnum og einstaka rekstraraðilar geta sjálfir stýrt birtingu einstakra reikninga.
    Markmiðið með vefnum er að auka aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins með skýrri og aðgengilegri framsetningu. Stefnan er því að birta alla reikninga sem ekki stangast á við framangreindar takmarkanir.
    Til stendur að þróa framsetningu á upplýsingum á vefnum til að auðvelda yfirsýn og verður það verkefni samþætt þróun á vefnum ríkisreikningur.is sem sýnir útgjöld ríkisaðila. Með flutningi verkefna Ríkiskaupa til Fjársýslu ríkisins og aukinni getu þeirrar einingar til innkaupagreininga og birtingar útgjalda verður hægt að halda þessari þróun áfram.
    Hvað varðar birtingu upplýsinga úr fjárhagsbókhaldi Alþingis eða stofnana þess þarf að beina fyrirspurn um notkun þessara stofnana á vefnum opnirreikningar.is til forseta Alþingis eins og áður segir.