Ferill 981. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2253 — 981. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um vinnudeilusjóð Samtaka atvinnulífsins.
1. Hvaða ríkisaðilar, þ.e. aðilar í A1-, A2- og A3-hluta auk annarra opinberra hlutafélaga og fyrirtækja sem eru að meiri hluta í eigu ríkissjóðs, eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þess?
Átján fyrirtæki sem eru að meiri hluta í eigu ríkissjóðs eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins (SA). Eru þau tilgreind í töflu í svari við 2. tölul. Listinn nær ekki til dótturfélaga þessara félaga sem kunna að eiga aðild að samtökunum.
2. Greiða einhverjir þeirra iðgjald til vinnudeilusjóðs Samtaka atvinnulífsins? Sé svo er þess óskað að fram komi upplýsingar um árleg iðgjöld frá árinu 2019.
Af þessum 18 aðildarfyrirtækjum SA eiga 17 fulla aðild að samtökunum (öll nema Auðkenni) og greiða þar af leiðandi til vinnudeilusjóðs SA. Árleg iðgjöld til sjóðsins eru tilgreind í töflu að aftan.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hvaða stefna hefur verið tekin um þátttöku ríkisaðila í A1-, A2- og A3-hluta í starfi Samtaka atvinnulífsins? Er kveðið á um slíka þátttöku í eigendastefnu opinberra hlutafélaga og fyrirtækja sem eru að meiri hluta í eigu ríkissjóðs?
Umrædd fyrirtæki falla ekki undir lög nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Starfsfólk þeirra er ekki ríkisstarfsmenn. Fyrirtækjunum ber að fylgja ákvæðum laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, og eru þau bundin af almennum kjarasamningum á vinnumarkaði, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, hafi þau ekki gert sérkjarasamninga sem ganga framar almennum kjarasamningum. Með inngöngu í SA fela þau samtökunum umboð til að gera kjarasamninga fyrir sína hönd.
4. Hvaða opinberu hlutafélög og fyrirtæki sem eru að meiri hluta í eigu ríkissjóðs hafa falið öðrum aðilum að fara með samningsumboð fyrir sína hönd í kjarasamningum? Þess er óskað að fram komi um hvaða aðila er að ræða í þeim tilvikum.
Eins og fram kemur í svari við 3. tölul. hafa viðkomandi 17 opinber hlutafélög og fyrirtæki falið SA að fara með samningsumboð fyrir sína hönd í kjarasamningum.
Um framsal samningsumboðs fer skv. 38. gr. samþykkta SA.