Ferill 1169. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2256  —  1169. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um kostnað við borgarlínu.


     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við borgarlínu?
    Samkvæmt framkvæmdaáætlun uppfærðs samgöngusáttmála er áætlaður heildarkostnaður við uppbyggingu innviða borgarlínu 130,4 milljarðar kr.

     2.      Hver er áætlaður rekstrarkostnaður borgarlínu?
    Gert er ráð fyrir að fyrstu borgarlínuleiðirnar hefji akstur árið 2028 og að nýtt leiðanet borgarlínu verði að fullu innleitt í febrúar 2040. Uppfærða rekstraráætlun almenningssamgangna til 2040 má sjá í fylgiskjali.

     3.      Hver greiðir rekstrarkostnað borgarlínu og hvernig verður hann fjármagnaður?
    Samkvæmt 1. gr. samkomulags ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald frá 21. ágúst 2024 verður komið á fót nýju rekstrarfélagi eða rekstrareiningu sem verður í sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga og annast þróun, skipulag og rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Reksturinn taki jafnt til hefðbundinna strætisvagnaleiða og borgarlínu. Hið nýja félag skal hefja rekstur eigi síðar en 1. janúar 2025.
    Fjármögnun reksturs almenningssamgangna er að megninu til samansett af tekjum af sölu farmiða og framlögum frá eigendum. Á höfuðborgarsvæðinu hafa fargjaldatekjur um nokkuð langt skeið staðið undir á bilinu 20–35% af heildarrekstrarkostnaði almenningssamgangna. Er það hlutfall svipað og þekkist á öðrum borgarsvæðum í Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu. 1 Í rekstraráætlun í fylgiskjali má sjá hvernig gert er ráð fyrir því að farþegafjöldi og farþegatekjur þróist til framtíðar. Eins og sést er gert ráð fyrir því að hlutfall farþegatekna í fjármögnun rekstursins aukist. Betri innviðir fyrir almenningssamgöngur bæta til muna rekstur og hagkvæmni kerfisins, fyrir utan að stuðla að bættri og áreiðanlegri þjónustu við almenning.
    Sá hluti rekstursins sem farþegatekjur fjármagna ekki er fjármagnaður með framlögum frá eigendum. Samkvæmt 2. gr. samkomulagsins munu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu leggja til 67% þeirra framlaga og ríkið 33%.
    Innviðaráðherra mun skipa sex manna stýrihóp sem ber ábyrgð á undirbúningsvinnu vegna stofnunar félagsins. Undirbúningsvinnu skal lokið eigi síðar en 15. október 2024 og skulu ákvarðanir á grundvelli hennar liggja fyrir 1. nóvember 2024.


Fylgiskjal.


Uppfærð rekstraráætlun almenningssamgangna.

www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s2256-f_I.pdf


1    Sjá hér og hér.