Ferill 1014. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2260 — 1014. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um styrki til félagasamtaka.
1. Hversu háa fjárhæð greiddi ráðuneytið og hver undirstofnun þess frjálsum félagasamtökum árin 2020–2023? Svar óskast sundurliðað eftir félagasamtökum og því hvort fjárhæðin var styrkveiting, kaup á þjónustu, félagsgjöld eða annað og með skýringum um hvað felst í liðnum annað auk upplýsinga um hversu hátt hlutfall hver liður er af heildargreiðslu til félagasamtakanna.
Í töflum að aftan eru sýndar greiðslur forsætisráðuneytis á styrkjum og félagsgjöldum til félagasamtaka á tímabilinu 2020–2023.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Jafnréttisstofa hefur á tímabilinu greitt til félagasamtaka samkvæmt töflu að aftan.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Ríkislögmaður greiddi á tímabilinu félagsgjöld samkvæmt töflu að aftan.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Aðrar stofnanir ráðuneytisins hafa ekki greitt styrki eða félagsgjöld til félagasamtaka á tímabilinu.
2. Eru í gildi hjá ráðuneytinu reglur um úthlutanir styrkja til félagasamtaka?
Við úthlutun styrkja er litið til ákvæða laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, þar sem fjallað er um styrkveitingar ráðherra, og til reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018.
Samkvæmt 42. gr. laga um opinber fjármál er hverjum ráðherra heimilt að veita tilfallandi styrki og framlög til verkefna sem varða þá málaflokka sem hann ber ábyrgð á. Við úthlutun styrkja og framlaga skal gæta jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða. Gera skal grein fyrir útgjöldum vegna slíkra styrkja í fylgiriti með frumvarpi til fjárlaga og í ársskýrslu ráðherra. Þá skal gera skriflegan samning um einstaka styrkveitingar, nema um sé að ræða minni háttar styrki, og skulu framlög samkvæmt þeim háð skilyrðum um fullnægjandi skýrslugjöf um framvindu verkefna og reikningsskila.
Í tilvísaðri reglugerð kemur fram að hún gildi ekki um ráðstöfunarfé einstakra ráðherra eða framlög og styrki sem veittir eru af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þá gildir hún ekki um tilfallandi framlög eða styrki sem eru lægri en 200.000 kr.
Styrkir og framlög til félagasamtaka eru veitt í samræmi við gildandi stefnu og markmið og áherslur þeirra málaflokka sem forsætisráðherra ber ábyrgð á. Við styrkveitingar er gætt skilyrða framangreindra úthlutunarreglna, reglugerðar fjármála- og efnahagsráðherra og 42. gr. laga um opinber fjármál.
Á grundvelli reglugerðarinnar voru í júní 2023 settar sérstakar reglur um úthlutun styrkja forsætisráðherra til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála.
3. Fer fram mat á árangri af styrkveitingunum?
Í samræmi við 2. mgr. 42. gr. laga um opinber fjármál, sbr. reglur um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018, svo og reglur um úthlutun styrkja forsætisráðherra til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála, eru gerðir skriflegir samningar um þær styrkveitingar ráðherra sem heyra þar undir. Í samningunum er m.a. kveðið á um markmið, kröfur um framkvæmd og framvindu verkefnis og upplýsingaskyldu um árangur verkefnis eða lok þess.