Ferill 1018. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2262  —  1018. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra.


     1.      Hverjar eru lögbundnar nefndir á vegum ráðuneytisins og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
    Í töflu að aftan er yfirlit yfir þær lögbundnu nefndir sem störfuðu á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis árin 2021–2023. Í svarinu er tiltekinn sá kostnaður sem ráðuneytið hefur umsýslu með. Í þeim tilvikum þar sem hann er ótilgreindur er ýmist að hann er greiddur af öðrum aðilum eða að engar sérstakar aukaþóknanir eru greiddar fyrir verkefnið, t.d. þegar starfsmenn á launum hjá ráðuneytinu sinna því.

2021 2022 2023
Bankasýslan, stjórn
Bílanefnd 2.447.712 kr. 2.026.252 kr. 1.489.136 kr.
Eftirlitsnefnd vegna viðbótarlána 10.838.130 kr. 3.562.080 kr. 7.898.760 kr.
Endurkröfunefnd bifreiðatrygginga 9.537.798 kr. 2.134.601 kr. 5.217.845 kr.
Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands
Fjármálaráð 22.528.131 kr. 31.155.021 kr. 18.115.316 kr.
Fjármálastöðugleikaráð
Kærunefnd útboðsmála 35.707.460 kr. 25.139.971 kr. 38.943.250 kr.
Matsnefnd um frádráttarrétt erlendra sérfræðinga
Nefnd til að meta lausn um stundarsakir
Prófnefnd verðbréfaréttinda 3.548.429 kr. 3.690.171 kr. 4.157.067 kr.
Reikningsskilaráð ríkisins 6.807.390 kr. 5.485.996 kr. 5.704.872 kr.
Samninganefnd ríkisins 688.128 kr. 57.479 kr. 12.926.385 kr.
Samninganefnd um tvísköttunarsamninga
Samráðsnefnd eftirlitsskyldra aðila um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi
Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir
Skipun matshóps varúðarsjóðs – staða lífeyrisaukasjóðs hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins
Kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
Stjórn Náttúruhamfaratryggingar Íslands
Stjórn söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
Stjórn Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta
Stjórn Tryggingasjóðs vegna fjármálafyrirtækja
Þóknananefnd
Úrskurðarnefnd um viðskipti við vátryggingafélög
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum
Úrskurðarnefnd náttúruhamfaratryggingar skv. 19. gr. laga nr. 55/1992
Úrskurðarnefnd um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki og aðra veitendur fjármálaþjónustu
Verkefnisstjórn ÍL-sjóðs 6.796.588 kr. 8.670.611 kr.
Yfirskattanefnd

     2.      Hvaða aðra starfshópa og nefndir hefur ráðherra sett á laggirnar og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
    Aðrar nefndir en þær sem bundnar eru í lög og voru starfandi á vegum ráðuneytisins árin 2021–2023 eru taldar upp í töflu að aftan.

2021 2022 2023
Fastanefnd á sviði vátrygginga
Ferðakostnaðarnefnd 367.680 kr. 326.120 kr. 2.675.217 kr.
Nefnd um innleiðingu á MifiDII / MifiR
Nefnd um innleiðingu tilskipunar nr. 2014/92/EU um greiðslureikninga
Nefnd um tvísköttunarsamninga og fjárfestingarsamninga
Samstarfsnefnd um lánsfjármál ríkissjóðs
Starfshópur til að tryggja eftirfylgni efnahagsaðgerða vegna heimsfaraldurs kórónuveiru
Starfshópur um áframhaldandi skoðun á útflutnings- og innflutningstölum
Starfshópur um breytingar á gildandi fyrirkomulagi launaákvarðana æðstu embættismanna
Starfshópur um einföldun á stofnanakerfi ríkisins
Starfshópur um endurmat útgjalda vegna framhaldsfræðslu
Starfshópur um endurmat útgjalda vegna hjúkrunarþjónustu við aldraða 1.521.000 kr.
Starfshópur um endurmat útgjalda vegna örorkumála
Starfshópur um endurskoðun reglna um reiknað endurgjald í atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi aðila í eigin rekstri og reglna um skattmat vegna hlunninda og úttekta eigenda úr félögum
Starfshópur um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002
Starfshópur um fyrirkomulag á innkaupum fyrir heilbrigðisstofnanir
Starfshópur um gerð skýrslu (grænbókar) um heildarendurskoðun lífeyrissjóðakerfisins 1.981.497 kr. 924.255 kr. 15.292.762 kr.
Starfshópur um innleiðingu Evrópugerða um verðbréfafyrirtæki
Starfshópur um innleiðingu tilskipunar (ESB) 2019/2162 og reglugerðar (ESB) 2019/2160
Starfshópur um kyngreind tölfræðigögn
Starfshópur um skatta og skattaívilnanir á sviði umhverfismála
Starfshópur um yfirsýn yfir framkvæmd efnahagslegra þvingunarráðstafana vegna innrásar Rússa í Úkraínu
Starfshópur vegna innleiðingar á tilskipun 2014/49/ESB um innstæðutryggingakerfi
Starfsmenntunarsjóður embættismanna
Stýrihópur um stefnumörkun á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins
Stýrinefnd um losun fjármagnshafta
Valnefnd vegna sjálfbærrar fjármögnunar ríkissjóðs
Valnefnd vegna útgáfu sjálfbærra ríkisskuldabréfa
Verkefnahópur um græna fjármögnun ríkissjóðs
Verkefnisstjórn kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar – endurskipuð 2022 (var áður verkefnisstjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð)
Vinnuhópur í kjölfar samþykktar laga um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn skattalagabrota

     3.      Hefur ráðherra skoðað að leggja niður nefndir? Ef svo er, hvaða nefndir?
    Í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar er ráðuneytið að skoða hvaða tækifæri eru til staðar til að fækka lögbundnum nefndum. Nú þegar hefur verið ákveðið að leggja bílanefnd niður. Á þingmálaskrá fyrir 155. þing er gert ráð fyrir því að lagt verði fram frumvarp til laga þar sem mælt verði fyrir um brottfall og eftir atvikum sameiningu stjórnsýslunefnda, stjórna og ráða.