Ferill 1012. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2263 — 1012. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um kostnað við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur.
1. Hver var kostnaður ráðuneytisins og stofnana þess við auglýsingagerð og kynningarmál árin 2022 og 2023? Svar óskast sundurliðað eftir auglýsingaherferðum.
Við vinnslu á svari þessu var tekinn saman heildarkostnaður vegna auglýsingagerðar og byggist hann á upplýsingum í bókhaldi ráðuneytisins sem tekur m.a. til viðburða, sértækra verkefna og atvinnuauglýsinga á vegum ráðuneytis eða stofnunar.
| 2022 | 2023 | |
| Forsætisráðuneytið | ||
| Atvinnuauglýsingar og tilkynningar | 3.074.721 | 1.844.807 |
| Orðin okkar – auglýsingaherferð | 16.350.000 | |
| Umboðsmaður barna | ||
| Barnaþing | 730.000 | 350.000 |
| Óbyggðanefnd | ||
| Atvinnuauglýsingar | 110.269 | |
| Auglýsingar um einstaka þætti til málsmeðferðar | 728.081 | 84.542 |
| Ríkislögmaður | ||
| Atvinnuauglýsingar | 1.565.653 | 562.257 |
| Jafnréttisstofa | ||
| Játak – fjölbreytni í sveitarstjórnum – verkefni í byggðaáætlun | 1.663.358 | |
| Meinlaust? – vitundarvakning | 3.999.485 | 2.400 |
| Kynningar- og markaðsmál | 249.020 | 110.367 |
| Hagstofa Íslands | ||
| Áramótamyndband Hagstofu | 243.600 | 270.320 |
| Fræðslumyndband um verðbólgu | 470.000 | |
| Greindu betur | 179.800 | |
| Kynning Tímarannsóknar | 62.000 | |
| Seðlabanki Íslands | ||
| Herferð – ungt fólk | 2.580.415 |
2. Hvernig skiptist birtingarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess eftir innlendum og erlendum miðlum árin 2022 og 2023?
Eftirfarandi tafla tekur mið af kostnaði vegna birtingar á auglýsingum í öllum miðlum, greindur eftir innlendum og erlendum birtingum.
| 2022 | 2023 | |
| Forsætisráðuneytið | ||
| Innlendir miðlar | 13.150.901 | 21.500.985 |
| Erlendir miðlar | 128.156 | 99.053 |
| Umboðsmaður barna | ||
| Á ekki við | ||
| Óbyggðanefnd | ||
| Allar auglýsingar innanlandsbirtingar | ||
| Ríkislögmaður | ||
| Allar auglýsingar innanlandsbirtingar | ||
| Jafnréttisstofa | ||
| Innlendir miðlar | 2.020.110 | 44.880 |
| Erlendir miðlar | 1.295.979 | 19.899 |
| Hagstofa Íslands | ||
| Innlendir miðlar | 1.170.334 | 1.487.777 |
| Erlendir miðlar | 83.167 | 51.514 |
| Seðlabanki Íslands | ||
| Allar auglýsingar innanlandsbirtingar |
3. Hver var kostnaður ráðuneytisins og stofnana þess við viðburði og ráðstefnur árin 2022 og 2023?
Kostnað ráðuneytisins og stofnana þess við viðburði og ráðstefnur árin 2022 og 2023 má sjá í meðfylgjandi töflu. Kostnaður vegna funda á vegum ráðuneyta, stofnana og samstarfsaðila er undanskilinn ásamt kostnaði við að sækja viðburði og ráðstefnur. Viðburðir með litlum tilkostnaði undir 250 þús. kr. eru undanskildir í svari þessu.
| 2022 | 2023 | |
| Forsætisráðuneytið | ||
| Stjórnarráðsdagurinn | 5.251.624 | |
| Norræn ráðherranefnd um jafnréttismál og málefni hinsegin fólks | 821.869 | |
| Málþing þjóðaröryggisráðs | 2.101.979 | |
| Samráðsfundur – grænbók um mannréttindi | 280.252 | |
| Vísinda- og tæknistefna | 605.120 | |
| Fundur norrænna forsætisráðherra í Vestmannaeyjum | 12.025.217 | |
| Jafnréttisþing | 4.036.832 | |
| Velsældarþing | 1.777.450 | |
| Umboðsmaður barna | ||
| Barnaþing | 12.111.283 | 11.418.845 |
| Samtök evrópskra umboðsmanna barna – ENOC | 6.134.774 | |
| Óbyggðanefnd | ||
| Á ekki við | ||
| Ríkislögmaður | ||
| Á ekki við | ||
| Jafnréttisstofa | ||
| Viðburðir og ráðstefnur | 1.560.936 | 242.030 |
| Hagstofa Íslands | ||
| Norrænt tölfræðimót | 17.702.901 | |
| Norrænn hagstofustjórafundur | 8.457.728 | |
| Ráðstefnur og viðburðir* | 162.450 | 1.326.340 |
| Seðlabanki Íslands | ||
| Ársfundir og ráðstefnur | 9.183.292 | 4.153.43 |
| *Ráðstefnugjöld erlendis árið 2023 að fjárhæð 1.132.982 kr. fást endurgreidd í formi styrks. | ||