Ferill 1202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2264 — 1202. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um kaup auglýsinga og kynningarefnis.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu miklum peningum varði ráðuneytið og undirstofnanir þess til kaupa auglýsinga og annars kynningarefnis í fjölmiðlum og á internetinu árið 2023 flokkað eftir undirstofnunum og fjölmiðlum?
Í eftirfarandi töflu er yfirlit yfir kaup ráðuneytisins á auglýsingum og kynningarefni í fjölmiðlum og á internetinu árið 2023 flokkað eftir stofnunum og fjölmiðlum. Birtingar á starfsauglýsingum eru ekki tilgreindar.
| Fjármála- og efnahagsráðuneyti | 9.235.193 |
| Verkefnastofa um samgöngugjöld | |
| Mbl.is | 221.990 |
| Ledbirting | 460.000 |
| Adserving | 29.178 |
| Google ads | 674.000 |
| Facebook og Instagram | 206.739 |
| Dengsi | 400.000 |
| Stafrænt Ísland | |
| Brandenburg | 519.800 |
| BBM | 61.370 |
| Datera | 1.063.483 |
| Nautur | 310.000 |
| ENNEMM | 5.288.633 |
| Fjársýsla ríkisins | 0 |
| Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir | 0 |
| Ríkiskaup | 0 |
| Skatturinn | 11.686.953 |
| Árvakur | 3.944.866 |
| Rúv Sala ehf. | 1.663.240 |
| Torg ehf. | 1.230.466 |
| Já hf. | 1.127.880 |
| Myllusetur ehf. | 634.458 |
| Sameinaða útgáfufélagið ehf. | 607.228 |
| Sýn hf. | 538.221 |
| Stjórnartíðindi | 430.029 |
| Bændasamtök Íslands | 338.520 |
| Síminn hf. | 186.000 |
| Útgáfufélagið ehf. | 178.652 |
| Víkurfréttir ehf. | 173.600 |
| 1819 – Nýr valkostur ehf. | 136.400 |
| Kópavogspósturinn ehf. | 85.560 |
| Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. | 84.320 |
| Skessuhorn ehf. | 80.600 |
| Héraðsprent ehf. | 66.980 |
| Útgáfufélag Austurlands ehf. | 62.000 |
| Garðapósturinn | 55.800 |
| Erlendir miðlar | 62.132 |
| Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins | 0 |