Ferill 1101. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2265 — 1101. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um tjón eigenda íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í Grindavík og aðkomu vátryggingafélaga.
1. Hefur ráðuneytið eða stofnun á vegum þess markvisst safnað upplýsingum um tilkynnt tjón til tryggingafélaga á íbúðar- og atvinnuhúsnæði í Grindavík frá 10. nóvember 2023?
Hvorki ráðuneytið né Seðlabanki Íslands, sem er eftirlitsaðili vátryggingafélaga með starfsleyfi hér á landi, hafa markvisst safnað upplýsingum um tilkynnt tjón til tryggingafélaga á íbúðar- og atvinnuhúsnæði í Grindavík. Náttúruhamfaratrygging Íslands heldur utan um þau tjón sem tilkynnt hafa verið til stofnunarinnar og afgreiðir þau í samræmi við þau lög og reglur sem þar um gilda.
2. Hefur ráðuneytið eða stofnun á vegum þess tekið saman upplýsingar um eigendur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis sem hafa tilkynnt tjón en verið neitað um bótaskyldu af tryggingafélögum þar sem vátryggingarskilmálar ná ekki til tjóns þeirra?
Hvorki ráðuneytið né Seðlabanki Íslands, sem er eftirlitsaðili vátryggingafélaga með starfsleyfi hér á landi, hafa tekið saman upplýsingar um eigendur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis sem hafa tilkynnt tjón en verið neitað um bótaskyldu af tryggingafélögum þar sem vátryggingarskilmálar ná ekki til tjóns þeirra. Náttúruhamfaratrygging Íslands heldur utan um þau tjón sem tilkynnt hafa verið til stofnunarinnar, þar á meðal hver er tilkynnandi og hver er eigandi og þar með vátryggður í samræmi við þau lög og reglur sem þar um gilda.
3. Hvernig hefur verið staðið að upplýsingagjöf ráðuneytisins eða stofnana á vegum þess til eigenda íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í Grindavík um þau úrræði sem þeim kunna að standa til boða eftir að tryggingafélög hafa neitað bótaskyldu?
Ráðuneytið hefur upplýst þá sem eftir því hafa leitað um úrskurðarnefnd náttúruhamfaratryggingar, en þangað er hægt að kæra ákvörðun Náttúruhamfaratryggingar Íslands, sbr. 19. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992. Ráðuneytið hefur ekki fengið fyrirspurnir varðandi samskipti við vátryggingafélög, en upplýsingar um kæruúrræði í tengslum við vátryggingar má finna á vefsvæðinu www.nefndir.is. Náttúruhamfaratrygging Íslands og Seðlabanki Íslands eru með upplýsingar um viðeigandi kæruúrræði á sínum vefsvæðum.
4. Hafa farið fram viðræður milli ráðuneytisins og tryggingafélaga um hvort til greina komi að slaka á vátryggingarskilmálum vegna aðstæðna í Grindavík?
Slíkar viðræður hafa ekki átt sér stað.
5. Hefur ráðuneytið eða stofnanir á vegum þess kortlagt hvaða tjón Grindvíkingar þurfa sjálfir að bera í þeim tilvikum þegar hvorki vátryggingar né Náttúruhamfaratrygging Íslands ná til þeirra og upphæðir þeirra tjóna sem ekki fást bætt?
Hvorki ráðuneytið né stofnanir sem sinna verkefnum sem eru á forræði ráðuneytisins hafa kortlagt hvaða tjón Grindvíkingar þurfa sjálfir að bera í þeim tilvikum þegar hvorki vátryggingar né Náttúruhamfaratrygging Íslands ná til þeirra og þar með ekki heldur upphæðir þeirra tjóna sem ekki fást bætt. Náttúruhamfaratryggingu Íslands er kunnugt um tjón sem hafa orðið af völdum vatnslagna, sem heyra ekki undir ábyrgð stofnunarinnar samkvæmt lögum og reglum sem um stofnunina gilda. Ekki er þekkt hvert umfang slíkra tjóna er eða fjárhæðir í tengslum við þau.