Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2267  —  320. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um búsetuúrræði fatlaðs fólks.


     1.      Hvaða rök liggja að baki þeim ákvæðum í 3. mgr. 3. gr. reglugerðar um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, nr. 370/2016, að þar sem nokkrar íbúðir eru í sama fjölbýlishúsi skuli miða við að fjöldi samliggjandi íbúða á hæð eða stigagangi sé ekki fleiri en sex og að hámarki tíu í sama húsi, svo og að íbúðir skuli ekki vera fleiri en sjö ef um er að ræða heimili með sameiginlegri aðstöðu?
    Reglugerð nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk tók við af V. kafla reglugerðar nr. 1054/2010 um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Gerðar voru breytingar á kröfum um húsnæði sem tekið yrði í notkun eftir gildistöku reglugerðarinnar. Áður var krafa um að fjöldi íbúða með sameiginlegri aðstöðu væri á bilinu 4–6, en miðað er við 7 að hámarki í gildandi reglugerð. Fjöldi samliggjandi íbúða á hæð eða stigagangi mátti vera 4–6 og að hámarki 8–10 í sama húsi, en með undanþáguheimild í rökstuddum tilfellum. Í nýrri reglugerð er miðað við efri mörkin.
    Við gerð reglugerðarinnar var horft til annarra Norðurlanda. Í Svíþjóð koma í reglugerð fram viðmið um að aðeins búi þrír til fimm einstaklingar saman í íbúðakjarna. Í Danmörku miðast fjöldi einstaklinga í herbergjasambýli, sem deila allri aðstöðu nema svefnherbergjum, við fimm til sjö. Þar eru viðmið um fjölda í íbúðakjörnum, þar sem íbúar deila stigagangi, hins vegar mun hærri og dæmi um að allt að 40 einstaklingar með miklar þjónustuþarfir búi í samliggjandi húsum.

     2.      Hver hefur kostnaðaraukning hins opinbera, ríkis og/eða sveitarfélaga, vegna þjónustu við fatlaða í herbergjasambýli verið samanborið við þjónustu í íbúðakjarna í kjölfar breytinga á lögum nr. 38/2018 og reglugerð settri með stoð í lögunum sem miðuðu að sjálfstæðri búsetu?
    Starfshópur sem unnið hefur að mótun tillagna um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga hefur greint kostnað við þjónustu í herbergjasambýlum samanborið við þjónustu í íbúðakjörnum. Helsti munur á rekstri íbúðakjarna og herbergjasambýla er að ákveðinn hluti þjónustunnar er veittur hópi einstaklinga á herbergjasambýli, en öll þjónusta er veitt á einstaklingsgrunni í íbúðakjarna.
    Kostnaður við rekstur herbergjasambýla og íbúðakjarna fer einnig eftir þjónustuþörfum þeirra sem þar búa. Greind voru gögn er varða tvo þjónustuflokka í Reykjavík og á Akureyri.
    Þjónustuflokkur II: 1,5 starfsmaður á vakt að jafnaði en 2 á álagstímum í vökutíma á hverja 4 íbúa auk næturvaktar.
    Þjónustuflokkur III: 2,5 starfsmaður á vakt að jafnaði á hverja 4 íbúa í vökutíma auk næturvaktar.

Sveitarfélagið Reykjavík
Þjónustuþyngd/ár (þús. kr.) 2019 2020 2021 (útk.spá)
Flokkur II
Meðalkostnaður á íbúa – sambýli 15.294 17.462 21.007
Meðalkostnaður á íbúa – íbúðakjarni 15.450 19.084 21.202
Mismunur á meðalkostnaði á íbúa 156 1.621 195
Hlutfallslegur mismunur 1,0% 9,3% 0,9%
Flokkur III
Meðalkostnaður á íbúa – sambýli 21.840 24.734 27.070
Meðalkostnaður á íbúa – íbúðakjarni 25.117 32.357 36.665
Mismunur á meðalkostnaði á íbúa 3.277 7.624 9.595
Hlutfallslegur mismunur 15,0% 30,8% 35,4%
Sveitarfélagið Akureyri
Þjónustuþyngd/ár (þús. kr.) 2019 2020 2021 (útk.spá)
Flokkur II
Meðalkostnaður á íbúa – sambýli 20.434 22.164
Meðalkostnaður á íbúa – íbúðakjarni 19.669 23.154 27.411
Mismunur á meðalkostnaði á íbúa -765 991
Hlutfallslegur mismunur -3,7% 4,5%
Flokkur III
Meðalkostnaður á íbúa – sambýli 24.701 26.185 27.889
Meðalkostnaður á íbúa – íbúðakjarni 26.466 31.131 36.822
Mismunur á meðalkostnaði á íbúa 1.764 4.946 8.933
Hlutfallslegur mismunur 7,1% 18,9% 32,0%

     3.      Með hliðsjón af fyrrnefndum breytingum á búsetuúrræðum, hefur ráðherra kannað kosti þess að fatlaðir geti haft val um að búa í herbergjasambýli frekar en í íbúðakjarna?
    Í 9. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, kemur fram að fatlað fólk eigi rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir, sem og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Fatlað fólk á rétt á því að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra. Þá kemur einnig fram að óheimilt sé að binda þjónustu við fatlað fólk því skilyrði að það búi í tilteknu búsetuformi. Er greinin þannig í samræmi við 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í lögunum er einnig að finna bráðabirgðaákvæði um að þeim einstaklingum, sem nú búa á herbergjasambýlum, skuli bjóðast aðrir búsetukostir.
    Í framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027 (þskj. 813, 584. mál), sem samþykkt var á yfirstandandi þingi, er í aðgerð C.6. lagt til að unnin verði áætlun um þjónustu við fatlað fólk sem býr gegn vilja sínum á stofnunum. Þannig verði sú þjónusta sem veitt er nú kortlögð á grundvelli mats á þjónustuþörfum og viðtala við fatlað fólk sem býr á stofnun. Í kjölfarið verði gefnar út leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um gerð áætlana um uppbyggingu fjölbreyttra þjónustu- og búsetuúrræða.
    Jafnframt er lagt til í fyrrnefndri framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks, í aðgerð C.3., að skipa skuli starfshóp sem falið verði að leggja fram kostnaðar- og ábatagreindar tillögur að úrbótum hvað varðar húsnæðisöryggi fatlaðs fólks. Meðal verkefna verði að skoða leiðir til að auka aðgengi fatlaðs fólks að húsnæði, bæði til leigu og eignar. Eins og fram kemur í 28. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skulu aðildarríki viðurkenna rétt fatlaðs fólks til félagslegrar verndar og til þess að njóta þess réttar án mismununar á grundvelli fötlunar. Auk þess skulu þau viðurkenna rétt fatlaðs fólks til viðunandi húsnæðis, auk fæðis og klæðnaðar. Áhersla verði lögð á sjálfsákvörðunarrétt um búsetuform og leiðir til að draga úr íþyngjandi húsnæðiskostnaði. Horft verði til þeirra gagna sem fyrir liggja, svo sem eins og skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir frá 2022 og húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 sem samþykkt var á Alþingi í júní sl.

     4.      Hvernig skilgreinir ráðuneytið herbergjasambýli annars vegar og íbúðakjarna fyrir fatlaða annars vegar?
    Í skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 frá árinu 2022 má finna eftirfarandi skilgreiningu sem ráðuneytið styðst við:
    Í herbergjasambýli nýtir íbúi að lágmarki eitt svefnherbergi sem sitt persónulegt rými en samnýtir húsnæði og þjónustu upp að ákveðnu marki með öðrum íbúum.
    Í íbúðakjarna hefur hver íbúi sína íbúð, líkt og í hefðbundnu fjölbýli. Í sumum tilfellum er einnig sameiginlegt rými fyrir íbúa og/eða starfsmannaaðstaða. Þjónusta í íbúðakjarna er að stórum hluta veitt á einstaklingsgrunni.

     5.      Eru til leiðbeiningar eða viðmið um skipulag húsnæðis fyrir fatlaða, sambærilegar þeim sem hafa verið gefnar út varðandi skipulag hjúkrunarheimila?
    Ekki hafa verið gefin út sambærileg viðmið um skipulag húsnæðis fyrir fatlað fólk en reglugerð nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk kveður m.a. á um stærð og gerð íbúða ásamt staðsetningu.