Ferill 734. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2268 — 734. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um raunfærnimat.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvert er hlutverk ráðuneytisins og stofnana þess er varðar raunfærnimat?
2. Hverjar eru skyldur háskóla er varða raunfærnimat?
Á ársfundi Evrópska háskólasvæðisins í Róm 2020 tók Ísland þátt í að samþykkja ráðherrayfirlýsingu um að styrkja félagslega vídd háskólamenntunar með aðgengilegra, samtengdara og nýstárlegra háskólasvæði. Sá hluti ráðherrayfirlýsingarinnar sem snýr að félagslegri vídd háskólamenntunar undirstrikar mikilvægi þess að háskólar nái til fólks með fjölbreyttan bakgrunn.
Í 10. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006, er háskólum veitt heimild til að meta nám sem fer fram við aðra skóla og rannsóknastofnanir, sem ekki eru háskólar, enda ábyrgist háskóli að námið uppfylli sambærilegar gæða- og námskröfur og gerðar eru á grundvelli laganna. Í 19. gr. laganna er háskólum veitt heimild að innrita nemendur sem ekki hafa lokið stúdentsprófi en búa yfir jafngildum þroska og þekkingu að mati viðkomandi háskóla. Tryggja skal að inntökuskilyrði í háskóla og námskröfur svari jafnan til þess sem krafist er í viðurkenndum háskólum á sambærilegu sviði erlendis.
Í auglýsingu um viðmið um æðri menntun og prófgráður nr. 530/2011 er lýst ramma sem háskólunum ber að fara eftir í skipulagi náms. Tillögur til breytinga á viðmiðunum hafa verið kynntar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er meðal annars lagt til að skerpa á heimild háskóla til að meta óformlegt nám og reynslu einstaklinga með raunfærnimati til styttingar náms á háskólastigi eða inntöku í meistaranám.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, í samstarfi við Rannís og ENIC/NARIC á Íslandi, hefur tekið þátt í tveimur evrópskum samstarfsverkefnum sem miða að því að efla umgjörð raunfærnimats á háskólastigi og styðja háskólana í þróun raunfærnimats. Verkefnin hlutu styrk úr þeim hluta Erasmus+ áætlunarinnar sem ætlað er að styðja yfirvöld á Evrópska háskólasvæðinu til að ná markmiðum Bologna-ferlisins. Um er að ræða verkefnin Recognition of Prior Learning in Practice og Interconnection/Innovation/Inclusion. Í fyrra verkefninu var unnið að samþættingu stefnu og framkvæmdar raunfærnimats með því að styðja innleiðingu á matsviðmiðum raunfærnimats fyrir háskóla og tryggja tengsl matsins við gæðastarf háskólanna. Verkefninu lauk með ráðstefnu og útgáfu skýrslu með afurð vinnunnar árið 2021.
Vinna við verkefnið Interconnection/Innovation/Inclusion stendur yfir. Með þátttöku í því verkefni fær starfsfólk háskólanna sem sinnir raunfærnimati aukin tækifæri til að tengjast evrópsku samstarfsfólki og deila reynslu, góðum aðferðum og áskorunum sem því fylgja.
Í gegnum Samstarf háskóla 2023 hefur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti stutt við verkefnið Innleiðing á raunfærnimati til styttingar náms með 40 millj. kr. framlagi þar sem fjórir háskólar taka höndum saman og útbúa sameiginlegt matsferli við raunfærnimat sem nýtist öllum háskólum hér á landi. Í verkefninu hefur hver háskóli valið námsleið til innleiðingar raunfærnimats. Hjá Háskóla Íslands er um að ræða kennaranám, hjá Háskólanum í Reykjavík er um að ræða iðn- og tæknifræðinám, hjá Listaháskóla Íslands er um að ræða fatahönnun og hjá Háskólann á Akureyri er um að ræða lögreglufræði. Vonir eru bundnar við að aukinn fjöldi einstaklinga geti hafið nám í háskólum hér á landi á grundvelli innleiðingar raunfærnimats fyrir framangreindar námsleiðir. Hlutverk ráðuneytis er samkvæmt framansögðu að greiða fyrir innleiðingu raunfærnimats hjá háskólum með skýrum og gagnsæjum ferlum þar sem gætt er að jafnræði nemenda innan þess ramma sem kveðið er á um í lögum um háskóla og reglum settum samkvæmt þeim. Á þann hátt stuðlar ráðuneytið að því háskólar vinni í samræmi við stefnumótun um raunfærnimat til styttingar náms á háskólastigi og gæðatryggingu þeirra prófgráða sem viðurkenndir háskólar veita nemendum.
Í samræmi við lög um háskóla, nr. 63/2006, og alþjóðlegar skuldbindingar um sjálfstæði háskóla hafa þeir heimild til þess að nýta raunfærnimat til að meta óformlegt nám og reynslu fólks til ECTS-eininga með kerfisbundnu matsferli eins og kom fram hér að framan. Um er að ræða heimild en ekki skyldu. Innleiðing raunfærnimats í háskólastarfi samræmist skýrum áherslum og stefnumótun á Evrópska háskólasvæðinu um félagslega vídd í starfsemi þeirra og virkar sem hvati til að vinna að aðgengilegra háskólanámi. Almennur áhugi er meðal íslenskra háskóla um innleiðingu raunfærnimats til styttingar náms. Háskóli Íslands hefur beitt raunfærnimati í leikskólakennarafræði síðastliðin 2–3 ár og hafa nemendur fengið óformlegt nám og þekkingu í gegnum starfsreynslu metna til allt að 50 ECTS-námseininga. Aðrir háskólar eru skemmra á veg komnir en vinna að undirbúningi innleiðingar eins og fram hefur komið hér framar.
Markmið stjórnvalda er að háskólar innleiði raunfærnimat í ólíkum greinum með verkferlum og aðferðum sem standast gæðakröfur sem nýtast öllu háskólastiginu hér á landi og leiða til innleiðingar raunfærnimats á fleiri námssviðum.