Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 3 — 3. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (afkomuöryggi, meðgönguorlof, vinnutímastytting foreldris).
Flm.: Jóhann Páll Jóhannsson, Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Kristrún Frostadóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir.
1. gr.
2. gr.
a. (3. gr. a.)
Vinnutímastytting foreldris.
b. (3. gr. b.)
Meðgönguorlof.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Barnshafandi foreldri á rétt til meðgönguorlofs í allt að fjórar vikur fyrir áætlaðan fæðingardag, sem skal staðfestur með vottorði ljósmóður. Þá eiga foreldrar jafnframt sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að sex mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar barns eða töku barns í varanlegt fóstur. Þrátt fyrir framangreint er foreldri heimilt að framselja sex vikur af sjálfstæðum rétti sínum til hins foreldrisins.
b. 2. mgr. orðast svo:
Réttur til fæðingarorlofs stofnast við fæðingu barns og fellur niður er barnið nær 24 mánaða aldri.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Að lokinni töku fæðingarorlofs beggja foreldra eiga foreldrar sjálfstæðan rétt til vinnutímastyttingar foreldris. Vinnutímastytting foreldris felur í sér sjálfstæðan rétt foreldris til að minnka starfshlutfall um allt að 20% til að sinna barni í allt að sex mánuði. Foreldri er óheimilt að framselja rétt til vinnutímastyttingar foreldris. Réttur til vinnutímastyttingar fellur niður þegar barn hefur lokið fyrsta ári í grunnskóla.
d. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Réttur foreldra til meðgöngu- og fæðingarorlofs og vinnutímastyttingar foreldris.
6. gr.
a. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvæði þessarar greinar um lengingu eða tilfærslu á rétti foreldris til fæðingarorlofs eiga einnig við um vinnutímastyttingu foreldris.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Lenging, framsal eða tilfærsla á rétti foreldris til fæðingarorlofs eða vinnutímastyttingar foreldris.
7. gr.
a. Á eftir orðinu „fæðingarorlofs“ hvarvetna í greininni kemur: eða vinnutímastyttingar foreldris.
b. Í stað orðanna „fæðingarorlof forsjárlausa foreldrisins“ í 2. mgr. kemur: fæðingarorlof og vinnutímastytting forsjárlausa foreldrisins.
8. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar starfsmaður hyggst nýta sér rétt til meðgönguorlofs skal hann tilkynna það vinnuveitanda eins fljótt og kostur er og í síðasta lagi tólf vikum fyrir fyrirhugaðan fæðingardag barns.
b. Á undan orðinu „fæðingarorlofs“ í 3. mgr. kemur: meðgöngu- og.
c. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Tilkynning um meðgöngu- og fæðingarorlof.
9. gr.
a. (13. gr. a.)
Tilkynning um vinnutímastyttingu foreldris.
Tilkynning um töku vinnutímastyttingar foreldris skal vera á því formi sem Vinnumálastofnun ákveður, svo sem rafrænu eða skriflegu, og skal þar tilgreina fyrirhugaðan upphafsdag, lengd og tilhögun. Þá skal vinnuveitandi árita tilkynninguna með móttökudagsetningu og afhenda starfsmanninum afrit hennar. Vinnuveitandi getur krafist sönnunar á að foreldri fari með forsjá barnsins eða að fyrir liggi samþykki þess foreldris sem fer með forsjána um að forsjárlausa foreldrið hafi umgengni við barnið þann tíma sem forsjárlausa foreldrið nýtir rétt sinn til vinnutímastyttingar foreldris, sbr. 10. gr., telji hann þess þörf.
b. (13. gr. b.)
Tilhögun vinnutímastyttingar foreldris.
10. gr.
11. gr.
12. gr.
a. Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
b. Við bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Barnshafandi foreldri sem gengur með fleiri en eitt barn á rétt til lengingar á meðgönguorlofi, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 8. gr., um tvær vikur fyrir hvert barn umfram eitt sem gengið er með.
Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt á lengingu vinnutímastyttingar foreldris um 6 vikur fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi.
Foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eiga sjálfstæðan rétt á lengingu vinnutímastyttingar foreldris um 6 vikur fyrir hvert barn umfram eitt.
13. gr.
a. Í stað orðanna „við fæðinguna“ í 1. mgr. kemur: við meðgönguna eða fæðinguna.
b. Í stað orðanna „rakin til fæðingarinnar“ í 1. mgr. kemur: rakin til meðgöngunnar eða fæðingarinnar.
c. Fyrirsögn greinarinnar verður: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.
14. gr.
15. gr.
a. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Hyggist foreldri nýta rétt sinn til meðgönguorlofs, sbr. 1. mgr. 8. gr., ber því að tilkynna það Vinnumálastofnun þremur vikum fyrir fyrirhugaðan upphafsdag meðgönguorlofs.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Foreldri skal sækja um greiðslur í vinnutímastyttingu foreldris til Vinnumálastofnunar sex vikum fyrir upphafsdag vinnutímastyttingar foreldris.
c. 2. mgr. orðast svo:
Umsókn skal vera á því formi sem Vinnumálastofnun ákveður, svo sem rafrænu eða skriflegu, og skal fylgja henni afrit af tilkynningu um meðgöngu- og fæðingarorlof skv. 12. gr. eða tilkynningu um vinnutímastyttingu foreldris skv. 13. gr. a sem foreldri hefur fengið áritaða hjá vinnuveitanda sínum þar sem fram kemur fyrirhugaður upphafsdagur, lengd og tilhögun meðgönguorlofs, fæðingarorlofs eða vinnutímastyttingar foreldris, eftir því sem við á.
d. Í stað orðanna „fæðingarorlof“ og „fæðingarorlofs“ í 3. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarfalli: meðgönguorlof, fæðingarorlof eða vinnutímastyttingu foreldris.
16. gr.
a. Á eftir orðinu „Fæðingarorlofssjóði“ í 1. mgr. kemur: vegna meðgöngu- og fæðingarorlofs.
b. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Þegar foreldri hefur töku meðgönguorlofs, sbr. 1. mgr. 8. gr., eða fæðingarorlofs fyrir fæðingardag barns, sbr. 16. og 17. gr., skal þó miða við þann dag er foreldrið hefur töku meðgöngu- eða fæðingarorlofs.
c. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Foreldri öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði vegna vinnutímastyttingar foreldris eftir að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í tólf mánuði fyrir upphafsdag vinnutímastyttingar foreldris.
d. Í stað tilvísunarinnar „1. mgr.“ í 2. mgr. kemur: 1. og 2. mgr.
e. Á eftir orðinu „fæðingarorlof“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: eða vinnutímastyttingu foreldris.
17. gr.
a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði til starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., í fæðingar- eða meðgönguorlofi skal nema 80% af meðaltali heildarlauna skv. 4. og 5. mgr. umfram 450.000 kr. og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur einum almanaksmánuði fyrir það tímamark sem foreldrar eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði vegna meðgöngu, fæðingar barns, frumættleiðingar eða töku í varanlegt fóstur.
b. Í stað orðsins „fjóra“ í lokamálslið 1. mgr. kemur: þrjá.
c. Á eftir orðinu „endurgjalds“ í 2. og 3. mgr. kemur: umfram 450.000 kr.
d. Á undan orðinu „fæðingarorlofi“ í 5. mgr. kemur: meðgöngu- og.
e. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Viðmiðunartímabil og útreikningur á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði vegna meðgöngu- og fæðingarorlofs.
18. gr.
Viðmiðunartímabil og útreikningur á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði vegna vinnutímastyttingar foreldris.
19. gr.
a. Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Hækkanir á mánaðarlegum greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði taka til allra foreldra sem eru í meðgöngu- eða fæðingarorlofi þegar hækkanir taka gildi. Ekki skal miða gildistöku hækkana við fæðingardag barns.
b. Í stað fjárhæðarinnar „137.632 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 220.000 kr.
c. Í stað fjárhæðarinnar „190.747 kr.“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: 300.000 kr.
d. Í stað orðsins „fæðingarorlofi“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: meðgönguorlofi, fæðingarorlofi og vinnutímastyttingu foreldris.
e. 1. málsl. 6. mgr. orðast svo: Meðan á fæðingarorlofi eða vinnutímastyttingu foreldris stendur greiðir foreldri að lágmarki 4% af greiðslum í lífeyrissjóð og Fæðingarorlofssjóður að lágmarki 11,5% mótframlag.
20. gr.
21. gr.
a. Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
b. Í stað orðsins „þrjá“ í 2. mgr. kemur: sex.
22. gr.
23. gr.
a. Í stað fjárhæðarinnar „83.233 kr.“ í 1. málsl. kemur: 200.000 kr.
b. Í stað fjárhæðarinnar „190.747 kr.“ í 2. málsl. kemur: 300.000 kr.
c. Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Hækkanir á fæðingarstyrk taka til allra foreldra sem rétt eiga á fæðingarstyrk þegar hækkanir taka gildi. Ekki skal miða gildistöku hækkana við fæðingardag barns.
24. gr.
a. Í stað orðsins „fæðingarorlofi“ í 1. og 5. mgr. kemur: meðgönguorlofi, fæðingarorlofi eða vinnutímastyttingu foreldris.
b. 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Að því marki sem nauðsynlegt er vegna eftirlits með framkvæmd laga þessara, m.a. til að tryggja að foreldrar fái ekki hærri greiðslur í meðgönguorlofi, fæðingarorlofi eða vinnutímastyttingu foreldris eða fæðingarstyrk en þeim ber samkvæmt ákvæðum laganna, er heimilt við vinnslu persónuupplýsinga, sbr. 3. mgr., að samkeyra upplýsingar Vinnumálastofnunar við upplýsingar frá skattyfirvöldum um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá fyrir það tímabil sem foreldri nýtir rétt sinn til meðgönguorlofs, fæðingarorlofs, vinnutímastyttingar foreldris eða fæðingarstyrks.
25. gr.
a. Í stað orðsins „fæðingarorlofs“ kemur: meðgönguorlofs, fæðingarorlofs, vinnutímastyttingar foreldris.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Endurmat á rétti til meðgönguorlofs, fæðingarorlofs, vinnutímastyttingar foreldris og fæðingarstyrks.
26. gr.
27. gr.
28. gr.
29. gr.
a. Á undan orðinu „fæðingarorlof“ í 8. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarfalli: meðgöngu- og.
b. 4. málsl. 8. mgr. fellur brott.
c. Á undan orðinu „fæðingar“ í 9. mgr. kemur: meðgöngu.
30. gr.
Fjárhæðir greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði skv. 1.–3. mgr. 23. gr., 1. og 3. mgr. 24. gr. og greiðslna fæðingarstyrks skv. 1. mgr. 38. gr. skulu taka hækkunum árlega í samræmi við launavísitölu og skulu hækkanirnar taka gildi 1. janúar. Þó skulu fjárhæðirnar aldrei hækka minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
31. gr.
Greinargerð.
Tillögurnar miða að því að draga verulega úr tekjutapi foreldra í fæðingarorlofi, tryggja barnshafandi foreldrum meðgönguorlof, skapa fjölskylduvænni vinnumarkað, draga úr álagi á yngstu börn og foreldra eftir að fæðingarorlofi lýkur og stuðla að betra jafnvægi milli atvinnu og fjölskyldulífs.
1. Afkomuöryggi foreldra.
Lagðar eru til ferns konar breytingar á lögunum til að tryggja afkomuöryggi foreldra og draga úr líkunum á að börn hér á landi búi við fátækt.
Í fyrsta lagi er lögð til sú breyting á ákvæði 23. gr. laganna um útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði að fyrstu 450.000 kr. af viðmiðunartekjum foreldra á mánuði verði óskertar og að miðað verði við 80% af þeim viðmiðunartekjum sem eru umfram það. Þannig er gert ráð fyrir að foreldri sem hefur 600.000 kr. í meðaltekjur á mánuði á viðmiðunartímabili fái fyrstu 450.000 kr. af tekjum sínum á viðmiðunartímabili óskertar og 80% af 150.000 kr. viðmiðunartekjum sem eru umfram 450.000 kr., mánaðarleg greiðsla verði þá 570.000 kr. í stað 480.000 kr. skv. núgildandi lögum. Með því að láta skerðingu tekna einungis taka til tekna umfram 450.000 kr. er spornað gegn því að börn alist upp við fátækt auk þess sem tekjulágum foreldrum er gert auðveldara að nýta allan þann rétt sem þeir eiga til fæðingarorlofs.
Í öðru lagi eru í 19. gr. frumvarpsins lagðar til hækkanir á lágmarksgreiðslum úr fæðingarorlofssjóði fyrir fólk sem rétt á til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en hefur ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabilinu. Þá er lögð til hækkun í 19. gr. frumvarpsins á fæðingarstyrk námsmanna upp í 300.000 kr. og fæðingarstyrk fyrir fólk utan vinnumarkaðar í 220.000 kr. Sú breyting þjónar sama tilgangi, en fjárhæð styrkjanna í dag dugar hvergi nærri til framfærslu. Þessar breytingar í þágu tekjulægri hópa eru í takt við sjónarmið sem verkalýðshreyfingin og samtök námsmanna hafa haldið á lofti.
Í þriðja lagi er skerpt á þeirri skyldu í 54. gr. laganna að fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði séu endurskoðaðar árlega og taki breytingum með tilliti til launa, verðlags og efnahagsmála. Sams konar reglu var að finna í eldri lögum, lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000. Þrátt fyrir að kveðið sé skýrt á um skyldu löggjafans til að endurskoða fjárhæðirnar árlega hefur því ekki verið sinnt að fullu. Til dæmis stóð hámark fæðingarorlofsgreiðslna í stað á tímabilinu 2019–2024.
Í fjórða lagi er lögð til sú breyting að hækkanir á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði nái til allra foreldra sem rétt eiga á greiðslum úr sjóðnum þegar hækkanirnar taka gildi í stað þess að miðað sé við fæðingardag barns, líkt og hingað til hefur verið. Eðlilegt er að hækkanir í fæðingarorlofskerfinu lúti sambærilegum reglum hvað varðar gildistöku og aðrar hækkanir í velferðarkerfinu. Þegar hækkanir verða á örorkulífeyri eða greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði ná þær hækkanir til allra sem eiga rétt á þeim greiðslum óháð því hvenær viðkomandi missti starfsgetu eða atvinnu. Ekki hafa komið fram sannfærandi rök fyrir því að önnur lögmál ættu að gilda um stuðning við foreldra ungbarna en hætt er við því að sérreglur um hækkanir til þeirra komi á endanum verst niður á mæðrum sem að jafnaði verða fyrir mestu tekjutapi á lífsleiðinni vegna barneigna og nýta rétt sinn til fæðingarorlofs í meira mæli en karlar.
2. Breytingar á viðmiðunartímabili fyrir útreikningi á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Samkvæmt gildandi lögum er viðmiðunartímabil fyrir útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex almanaksmánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Ekkert annað norrænt ríki notar viðmiðunartímabil sem nær jafnlangt aftur og gert er hér á landi. Í Finnlandi er farið lengst aftur á Norðurlöndum, þrettán mánuði, og gerðar eru undanþágur frá þessu tímabili ef foreldrar hafa verið í námi, fæðingarorlofi eða launalausu leyfi á því tímabili ef það kemur betur út fyrir foreldrið. Annars staðar á Norðurlöndum er viðmiðunartímabilið ekki lengra en fjórir mánuðir, með undantekningum sem tengjast óvinnufærni móður vegna meðgöngutengdra kvilla á síðustu mánuðum fyrir fæðingu. Þegar lög nr. 95/2000 voru sett var viðmiðunartímabilið tólf mánaða tímabil sem lauk tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Með breytingalögum nr. 90/2004 var gerð breyting á viðmiðunartímabilinu sem hafði þann tilgang að koma í veg fyrir að foreldrar nýttu viðmiðunartímabilið til að auka við sig í vinnu og hækka með þeim hætti greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Hafa ber í huga að fyrir breytinguna árið 2004 var ekkert þak á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Slíkt þak var innleitt með sömu lögum. Með lögfestingu á þaki á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði má segja að möguleikar foreldra til að auka verulega við tekjur sínar í því augnamiði að ná fram himinháum greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði séu hverfandi. Með því að færa viðmiðunartímabilið nær fæðingardegi barns munu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði betur endurspegla þær tekjur sem foreldrar verða af vegna orlofstöku. Í stað þess að endurspegla tekjur sem foreldrar fengu allt að einu og hálfu ári fyrir fæðingu barns.
3. Meðgönguorlof og aukinn réttur fjölburaforeldra til fæðingarorlofs og fæðingarstyrks.
Með frumvarpinu er lagt til að lögfestur verði sérstakur réttur til launaðs meðgönguorlofs. Þannig verði barnshafandi foreldri heimilt að hefja töku fæðingarorlofs allt að fjórum vikum fyrir áætlaðan fæðingardag án þess að sá tími komi til frádráttar þeim tíma sem foreldri á rétt á til launaðs fæðingarorlofs eftir að barn fæðist. Að þessari breytingu hníga heilsufarsleg rök en mikið álag fylgir jafnan seinni hluta meðgöngu. Samkvæmt gildandi lögum getur barnshafandi foreldri hafið fæðingarorlof fyrir fæðingu en slíkt kemur til styttingar á orlofi eftir fæðingu. Er því algengt að foreldri sé í veikindaleyfi á síðustu vikum meðgöngu, en veikindaréttur og aðstæður fólks á vinnumarkaði eru mismunandi og ljóst að í þessu tilliti hallar á fólk í láglaunastörfum. Mikilvægt er að jafna stöðu foreldra og er hér lagt til að lögfestur verði sams konar réttur á Íslandi til launaðs meðgönguorlofs og tíðkast í Noregi og Danmörku. Tillagan er í samræmi við sjónarmið sem komu fram í umsögnum Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, Félags íslenskra heimilislækna og Ljósmæðrafélags Íslands við þinglega meðferð frumvarps þess sem varð að gildandi lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í umsögnum allra félaganna var kallað eftir því að fæðingarorlof móður hæfist við 36 vikna meðgöngu án þess að til skerðingar kæmi á rétti kvenna til launaðs fæðingarorlofs eftir fæðingu barns. Flestar konur væru orðnar óvinnufærar á síðustu vikum meðgöngu vegna þunga síns og meðgöngutengdra kvilla og óþæginda. Þá var bent á það í umsögnum að réttur kvenna til veikindaleyfis á vinnumarkaði er mjög mismunandi, t.d. eiga konur af erlendum uppruna í láglaunastörfum jafnan erfiðara með að fara í veikindaleyfi en aðrar. Réttur til meðgönguorlofs á 36. viku er þannig til þess fallinn að jafna aðstæður kvenna í lok meðgöngu. Þá getur lögfesting slíks réttar aukið fyrirsjáanleika fyrir atvinnurekendur og auðveldað þeim að skipuleggja afleysingu fyrir barnshafandi konu.
Með frumvarpinu er lagt til að réttindi fjölburaforeldra til fæðingarorlofsgreiðslna og fæðingarstyrks verði aukin. Þannig er gert ráð fyrir að fyrir hvert barn sem fæðist eða tekið er í fóstur umfram eitt aukist réttur foreldra til fæðingarorlofs um sex mánuði í stað þriggja samkvæmt gildandi lögum. Þá er gert ráð fyrir að aukinn réttur foreldris sem gengur með fleiri en eitt barn til meðgönguorlofs verði tvær vikur fyrir hvert barn sem gengið er með umfram eitt.
4. Breytingar á rétti foreldris til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 18. gr. gildandi laga sem miða að því að tryggja betur rétt foreldra sem glíma við veikindi í tengslum við meðgöngu. Í núverandi lagaumhverfi fellur réttur til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu niður við fæðingu barns. Þetta verður að teljast óeðlilegt í ljósi þess að oft vara veikindi áfram í nokkurn tíma eftir fæðingu. Því er lögð til sú breyting að réttur til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu sem vara fram yfir fæðingu barns verði tryggður á sama hátt og veikindi vegna fæðingar barns.
5. Réttur foreldra til vinnutímastyttingar að loknu fæðingarorlofi.
Í frumvarpinu er það nýmæli að foreldrar öðlast rétt til vinnutímastyttingar foreldris sem felur í sér rétt til að minnka starfshlutfall sitt um allt að 20% til að verja auknum tíma með barni. Með breytingunni munu foreldrar eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sem reiknast á sama hátt og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingarorlofs nema í hlutfalli við skerðingu á starfshlutfalli. Foreldri sem tekur 20% vinnutímastyttingu foreldris þegar barn er 12 mánaða og hefur 600.000 kr. í heildarlaun á því viðmiðunartímabili sem lagt er til grundvallar til útreiknings fæðingarorlofs fær því 114.000 kr. frá Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði sem ætlað er að koma til móts við tekjutap sem foreldri verður fyrir vegna skerðingar á starfshlutfalli. Grunnfjárhæð viðmiðunarfjárhæðarinnar er 570.000 kr. (450.000 + (150.000*0,8)) en 20% af 570.000 kr. eru 114.000 kr.
Þessi réttarbót er að sænskri og norskri fyrirmynd, þó að útfærslan sem hér er lögð til sé önnur og ný. Í Svíþjóð er fæðingarorlofið 480 dagar og þar hafa foreldrar fortakslausan rétt til allt að 25% skerðingar á starfshlutfalli án þess að greiðsla komi á móti. Í Svíþjóð er öllum börnum frá 12 mánaða aldri hins vegar tryggð dagvistun og margir foreldrar nýta rétt sinn til fæðingarorlofs eftir 12 mánaða aldur til að skerða starfshlutfall sitt tímabundið fyrstu æviár barnsins. Í Noregi er foreldrum með barn á brjósti tryggður réttur til að sinna brjóstagjöf í 2 klukkustundir á dag þangað til barnið nær tveggja ára aldri án þess að til skerðingar á launum komi.
Í gildandi lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, er mælt fyrir um að foreldri skuli eiga rétt á foreldraorlofi í fjóra mánuði til að annast barn sitt og fellur rétturinn niður þegar barnið nær átta ára aldri. Um er að ræða ólaunað orlof sem eðli málsins samkvæmt nýtist helst þeim sem hafa efni og tök á að hverfa frá störfum og afsala sér tekjum. Samkvæmt svari félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um foreldraorlof (341. mál á 153. löggjafarþingi) nýttu aðeins 13 heimili réttinn til foreldraorlofs árið 2021. Flutningsmenn telja að lækkun vinnutímaskyldu með stuðningi úr Fæðingarorlofssjóði sé markvissari leið til að skapa jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs óháð heimilistekjum.
Foreldrar sem snúa aftur til starfa á íslenskum vinnumarkaði að fæðingarorlofi loknu þekkja flestir hversu erfitt það getur reynst að vinna fullt starf ásamt því að sinna ungu barni en áskoranir þessu tengdar aukast verulega þegar börnin eru orðin fleiri en eitt. Markmið tillögunnar um rétt til vinnutímastyttingar er að stuðla að bættum uppeldisskilyrðum ungra barna, draga úr álagi foreldra ungra barna og gera íslenskt samfélag fjölskylduvænna. Flutningsmenn frumvarpsins telja að tillögurnar geti stytt dvalartíma yngstu barnanna á leikskóla og dregið úr veikindum barna og fjarvistum foreldra frá vinnu með tilheyrandi tekjutapi og streitu.
6. Kostnaðarmat og fyrirvari vegna efnahagsaðstæðna.
Fjölmargar breytingar á fæðingarorlofslöggjöfinni eru lagðar til í frumvarpi þessu. Ef allar breytingarnar verða að lögum má gera ráð fyrir að heildarkostnaður verði á bilinu 7–8 milljarðar kr. Lagt er til að lögin taki gildi 1. júní 2025, en við þinglega meðferð málsins og umfjöllun um tillögurnar sjálfar og framkvæmd þeirra verður að horfa til þess að við núverandi efnahagsaðstæður, sem einkennast af mikilli verðbólgu og háum vöxtum, er brýnt að aflað verði tekna og/eða hagrætt í ríkisrekstri til að vega á móti þensluáhrifum af auknum útgjöldum. Til að styrkja tekjuhlið ríkisfjármála hefur Samfylkingin meðal annars kallað eftir réttlátum auðlindagjöldum, að lækkun bankaskatts frá 2020 verði afturkölluð að hluta og að girt verði fyrir tekjutilflutning þar sem atvinnutekjur eru ranglega taldar fram sem fjármagnstekjur.