Ferill 6. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 6  —  6. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021 (kjörskrá).

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.


1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir 6. málsl. 2. mgr. 3. gr. og 2. mgr. 32. gr. skal ákvörðun Þjóðskrár Íslands um að taka kjósanda á kjörskrá gilda frá þeim tíma sem hún var tekin enda hafi umsókn þess efnis borist Þjóðskrá Íslands eftir 1. desember 2023 en fyrir 19. nóvember 2024. Fullnægjandi umsókn um að vera tekinn á kjörskrá sem berst Þjóðskrá Íslands 19. nóvember 2024 eða síðar gildir frá 1. desember 2024.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og falla úr gildi 1. desember 2024.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta er flutt af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í samráði við dómsmálaráðuneyti.
    Samkvæmt kosningalögum hefur íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og hefur átt lögheimili hér á landi, kosningarrétt í sextán ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma skal hann sækja um til Þjóðskrár Íslands að vera tekinn á kjörskrá. Samkvæmt 6. málsl. 2. mgr. 3. gr. kosningalaga gildir ákvörðun um að einhver skuli þannig tekinn á kjörskrá í fjögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram.
    Hinn 14. október sl. gekk forsætisráðherra á fund forseta Íslands og baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Forseti féllst á tillögu forsætisráðherra og jafnframt að þing skyldi rofið 30. nóvember nk. og munu almennar kosningar til Alþingis fara fram sama dag. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneyti og Þjóðskrá Íslands hafa hátt í 300 manns sótt um að vera teknir á kjörskrá í samræmi við 2. mgr. 3. gr. kosningalaga. Séu skilyrði uppfyllt munu ákvarðanir um að taka þá á kjörskrá taka gildi frá 1. desember nk., degi eftir alþingiskosningarnar.
    Í ljósi þess að almennum kosningum til Alþingis var flýtt leggur nefndin til að bætt verði við kosningalög bráðabirgðaákvæði þess efnis að heimilt verði að miða gildistöku ákvörðunar Þjóðskrár um að taka kjósanda á kjörskrá við þann dag sem ákvörðun Þjóðskrár er tekin enda hafi umsókn þess efnis borist Þjóðskrá Íslands fyrir 19. nóvember 2024. Er þá miðað við að allar þær umsóknir sem hafa borist Þjóðskrá eftir 1. desember 2023 til og með 18. nóvember 2024 og uppfylla skilyrði ákvæðisins taki gildi við ákvörðun Þjóðskrár þar um.