Ferill 13. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 13 — 13. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (vernd votlendis).
Flm.: Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Gísli Rafn Ólafsson, Halldóra Mogensen, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Náttúruverndarlög kveða á um að forðast beri að raska vistkerfum og jarðminjum sem njóta sérstakrar verndar nema brýna nauðsyn beri til. Skylt er að afla framkvæmdaleyfis, eða eftir atvikum byggingarleyfis, vegna framkvæmda sem hafa í för með sér slíka röskun. Leyfisveitandi þarf m.a. að leita umsagnar Umhverfisstofnunar og viðkomandi náttúruverndarnefndar áður en leyfi er veitt og þarf að rökstyðja sérstaklega fari ákvörðun hans í bága við umsagnir umsagnaraðila.
Í eldri lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999, voru stærðarmörk votlendis sem nutu sérstakrar verndar þrír hektarar. Mörkin voru færð niður í einn hektara með nýjum náttúruverndarlögum, nr. 60/2013, en svo hækkuð í tvo hektara með lögum nr. 109/2015. Hækkunin var ekki rökstudd að öðru leyti en því að ekki þyrfti að ganga svo langt að mati þáverandi ráðherra. Aftur á móti er staðreyndin sú að mjög lítið er eftir af stórum óröskuðum votlendissvæðum, en algengara er að minni svæði hafi sloppið við röskun. Stærð svæða getur verið slæmur mælikvarði á mikilvægi þeirra, þar sem þau eru oft hluti af stærri heild og geta haft mikla þýðingu í því samhengi. Því er mat flutningsfólks að nauðsynlegt sé að afnema stærðarmörk og krefjast þannig sérstaks rökstuðnings fyrir öllum áformum um frekari röskun þessara mikilvægu svæða.