Ferill 14. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 14 — 14. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um aðgerðir til að auðvelda heimkomu námsmanna.
Flm.: Svandís Svavarsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Eva Dögg Davíðsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Jódís Skúladóttir, Orri Páll Jóhannsson, Steinunn Þóra Árnadóttir.
Alþingi ályktar að fela háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að skipa starfshóp sem fari kerfisbundið yfir þær hindranir sem standa í vegi fyrir heimkomu námsmanna erlendis og vinni tillögur að lausnum. Hópnum verði einnig falið að vinna tillögur að því hvernig auðvelda megi námsmönnum erlendis heimkomu að loknu námi. Samtök íslenskra stúdenta erlendis tilnefni fulltrúa í hópinn en einnig fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra. Hópurinn skili skýrslu með tillögum til ráðherra fyrir 1. maí 2025.
Greinargerð.
Um þessar mundir eru þúsundir íslenskra námsmanna víða um Evrópu og Ameríku í námi á hinum ýmsu sviðum, ekki síst á sviði heilbrigðisvísinda. Þessir námsmenn vilja margir hverjir koma heim að loknu námi en kerfið þvælist of oft fyrir þeim og gerir þeim erfiðara að taka þá ákvörðun að koma heim.
Það er bæði réttlætismál en ekki síður þjóðhagslega mikilvægt að námsmenn erlendis eigi greiða leið heim aftur. Íslenskt samfélag þarf fleiri vinnandi hendur á næstu árum og mikilvægt er að ný þekking og ný tækni eigi greiða leið inn í samfélagið. Það er til mikils að vinna fyrir íslenskt samfélag að fá sem flesta íslenska námsmenn erlendis heim með þá mikilvægu þekkingu sem þeir hafa aflað sér.
Skipta má verkefni hópsins í tvo aðskilda þætti, annars vegar að losa um hindranir sem eru til staðar í kerfum, svo sem hjá Fæðingarorlofssjóði og í tengslum við sjúkratryggingar, og hins vegar að búa til hvata fyrir fólk að koma heim. Í þeim efnum mætti horfa til námslánakerfisins eða skattkerfisins til að skapa jákvæða hvata fyrir námsmenn að koma heim að loknu námi. Sérstaklega er þetta mikilvægt í tilfellum heilbrigðisstarfsfólks sem í miklum mæli sækir sérfræðinám erlendis.