Ferill 21. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 21 — 21. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (útfösun bensín- og dísilbifreiða).
Flm.: Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Gísli Rafn Ólafsson, Halldóra Mogensen, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
1. gr.
Bann við nýskráningu bensín- og dísilbifreiða.
Þrátt fyrir 1. mgr. er heimilt að nýskrá ökutæki sem nota bensín eða dísil sem eldsneyti ef ökutækið er ætlað fyrir starfsemi viðbragðsaðila, sbr. 1. mgr. 34. gr. laga um almannavarnir, nr. 82/2008. Umsókn um slíka undanþágu skal berast Samgöngustofu með fullnægjandi rökstuðningi fyrir því hvers vegna ekki er hægt að uppfylla verkefni viðkomandi viðbragðsaðila með ökutæki sem notar endurnýjanlega orkugjafa.
2. gr.
Greinargerð.
Í fyrstu útgáfu aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem birt var í september 2018, var sett fram það markmið að nýskráning dísil- og bensínbíla yrði óheimil eftir árið 2030. Þegar aðgerðaáætlunin var uppfærð í júní 2024 hljóðaði sú aðgerð upp á að óheimilt yrði að meginreglu að nýskrá fólks- og sendiferðabifreiðar knúnar með jarðefnaeldsneyti árið 2027. Stuttu eftir birtingu var skjali í samráðsgátt stjórnvalda breytt í tvígang þannig að dregið var úr metnaði – fyrst með því að færa ártalið til 2028 og síðan með því að í lokaútgáfu er þetta markmið aðeins sagt vera í skoðun, frekar en að það sé fast í hendi. Það er bagalegt að enn liggur ekki fyrir frumvarp um nákvæma tímasetningu bannsins í ljósi þess m.a. að gæta verður að fyrirsjáanleika fyrir innflutningsaðila í greininni.
Hafa verður í huga að meðallíftími bifreiða getur verið á annan tug ára og meðalaldur bílaflotans á Íslandi er um 12 ár. Þetta var tilefni þess að Orkustofnun valdi yfirskriftina „Er pláss fyrir einn bensínbíl í viðbót?“ þegar hún kynnti orkuskiptalíkan sitt haustið 2022. Niðurstaðan var skýr: Ef ætlunin væri að standa við markmið í loftslagsmálum þyrfti tafarlaust að hætta nýskráningum á bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Frá þeim tíma hafa verið nýskráðir um 20 þúsund fólksbílar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.
Flutningsfólk þessa frumvarps telur mikilvægt að setja skýrar vörður á leið til kolefnishlutleysis, sem kallar meðal annars á það að lög séu sett fyrr frekar en síðar um þær breytingar sem gera þarf til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Líkt og lesa má af aðgerðaáætlun stjórnvalda er bann við nýskráningum bensín- og dísilbíla hluti af þeim aðgerðum sem nauðsynlegar eru, en með þessu frumvarpi er lagt til að hrinda þeirri aðgerð í framkvæmd frekar en að ýta henni á undan sér líkt og ríkisstjórnin gerir. Er því lagt til að banna nýskráningu fólks- og sendibíla sem ganga fyrir bensíni og dísil 1. janúar 2026.