Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 25  —  25. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (endurgreiðsla til almannaheillafélaga).

Flm.: Ingibjörg Isaksen.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 42. gr. A laganna:
     a.      Í stað hlutfallstölunnar „60%“ í 1. málsl. kemur: 100%.
     b.      Á eftir orðinu „byggingarstað“ í 1. málsl. kemur: og efniskostnaði.

2. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða XLIV í lögunum fellur brott.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta er samið og lagt fram í þeim tilgangi að auka stuðning við félög sem starfa í þágu almannaheilla, þ.e. þau félög sem falla undir 9. tölul. 4. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Félögin, svokallaður „þriðji geirinn“, skrá sig í almannaheillaskrá hjá Skattinum og um þau gilda m.a. lög um félög til almannaheilla, nr. 110/2021. Markmið frumvarpsins er að veita framangreindum félögum aukinn fjárhagslegan stuðning í formi endurgreiðslna á greiddum virðisaukaskatti vegna vinnu og efniskostnaðar við byggingu, viðhald eða endurbætur á mannvirkjum, eða sérgreindum matshlutum þeirra, sem alfarið eru í eigu þeirra samkvæmt skráningu í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands.
    Starfsemi almannaheillafélaga skiptir samfélagið miklu máli. Félögin starfa ekki í gróðaskyni heldur í þeim tilgangi að láta gott af sér leiða fyrir samfélagið. Eðli máls samkvæmt eru færri tækifæri til staðar fyrir slík félög til að ganga í kostnaðarsamar aðgerðir, sem oft reynast jafnvel nauðsynlegar fyrir áframhaldandi eða bætta starfsemi félags. Þá er t.d. átt við framkvæmdir á mannvirkjum félags, viðhald, byggingu eða kaup á mannvirki. Auk þess eru auknar kröfur gerðar til húsnæðis og mannvirkja, þ.e. kröfur sem lúta t.d. að öryggismálum og aðgengi fatlaðra. Einnig er það viðloðandi verkefni sérhverra húsnæðiseigenda að sinna nauðsynlegu viðhaldi, sporna gegn vanrækslu og myglumyndun og tryggja viðunandi loftgæði. Ábendingar og kröfur eru gerðar af stofnunum á vegum stjórnvalda, þá aðallega heilbrigðisyfirvöldum og eldvarnaeftirliti. Oft kemur það fyrir að ábendingar eða kröfur þeirra krefjast úrbóta, sem þyngir róðurinn sérstaklega fyrir félög sem starfa ekki í gróðaskyni.
    Aðgerðir á borð við framkvæmdir á mannvirkjum félags, viðhald, byggingu eða kaup á mannvirki kalla á útgjöld sem flest félög eiga erfitt með að mæta, og ekki síst almannaheillafélög. Slík félög neyðast oft til að reiða sig á sjálfboðavinnu og/eða velvild einstaklinga og fyrirtækja til að slíkar framkvæmdir geti orðið að veruleika. Því er líklegt að umrædd félög fresti eða hætti við slíkar aðgerðir. Jafnvel geta afleiðingarnar verið slíkar að hagræða þurfi í rekstri félags með tilheyrandi áhrifum á starfsemi í þágu samfélagsins. Rekstrargrundvöllur þeirra er takmarkaður og margar utanaðkomandi aðstæður geta reynst þeim verulega hamlandi.
    Félög sem starfa í þágu almannaheilla starfa almennt í þágu ákveðinna hópa, t.d. barna, þroskahamlaðra, langveikra o.fl. Margir samfélagshópar reiða sig á stuðning og þjónustu, bæði faglega og félagslega, ákveðins almannaheillafélags. Sum þessara félaga starfa í þágu allra og eru ávallt til staðar. Almannaheillafélög treysta oft á stuðning stjórnvalda, þá bæði ríkisins og sveitarfélaga, til að halda rekstri sínum gangandi með sem bestum hætti. Í staðinn nýtur samfélagið, og ákveðnir samfélagshópar, góðs af starfsemi þeirra.
    Sem dæmi um félög sem starfa í þágu almannaheilla má nefna Öryrkjabandalagið, ADHD-samtökin, Barnaheill, Blindrafélagið og Neytendasamtökin. Einnig teljast björgunarsveitir landsins ásamt íþrótta- og ungmennafélögum sem almannaheillafélög. Allt eru þetta félög með mismunandi markmið og rekstur, en rauði þráðurinn er sá að þau starfa öll með það að markmiði að bæta samfélagið, forvarnir, fræðslu og stöðu ákveðinna samfélagshópa.
    Árið 2019 skipaði fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem var falið að fara yfir skattalegt umhverfi starfsemi sem fellur hvorki undir starfsemi einkageirans né opinbera geirans, þ.e. starfsemi almannaheillafélaga. Starfshópnum var falið að leggja fram tillögur að breytingum á löggjöf og reglugerðum sem giltu um skattlagningu þeirrar starfsemi með það að markmiði að efla og styrkja starf félaga sem starfa í þágu almannaheilla. Skipun þessi kom í kjölfar þingsályktunartillögu og frumvarpa af hálfu Willums Þórs Þórssonar, þingmanns Framsóknarflokks, sem fjallaði um endurgreiðslu virðisaukaskatts til íþróttafélaga, en þau eru skilgreind sem félög sem starfa í þágu almannaheilla. Árið 2020 skilaði starfshópurinn skýrslu í samræmi við tilmæli hans, en þar kom fram að skattalegir hvatar væru til staðar, bæði fyrir félögin sjálf og þá sem inna starf af hendi í þágu þeirra. Hins vegar taldi starfshópurinn tækifæri til frekari breytinga á skattaumhverfi þeirra með það að markmiði að styrkja og efla starfsemi almannaheillafélaga, þá sérstaklega með samanburð við önnur ríki að leiðarljósi, en við greiningu hópsins kom fram að stuðningur við almannaheillafélög var almennt víðtækari en á Íslandi. Rauði þráður skýrslunnar er að tækifæri til frekari eflingar almannaheillafélaga í formi ívilnunar í skattalöggjöf eru til staðar og að stjórnvöld skuli grípa þau, og þá sérstaklega í ljósi mikilvægis starfsins fyrir samfélagið.
    Í skýrslu starfshópsins voru lagðar fram ýmsar tillögur til breytingar á löggjöf sem varðar t.d. erfðafjárskatt, stimpilgjald, tekjuskatt og virðisaukaskatt. Einnig fjallaði hópurinn um tækifæri til að styðja við almannaheillafélög vegna útlagðs byggingarkostnaðar. Þá kom styrkur frá hinu opinbera til almannaheillafélaga vegna byggingarframkvæmda sérstaklega til álita. Hópurinn lagði til að félög sem starfa í þágu almannaheilla gætu sótt um fjárhagslegan styrk úr ríkissjóði vegna útlagðs kostnaðar vegna byggingar, viðhalds eða endurbóta á mannvirki, að uppfylltum skilyrðum. Með frumvarpi þessu er þeim félögum veittur fjárhagslegur stuðningur vegna framangreindra framkvæmda, en að vísu með öðrum hætti en lagt var til í skýrslu starfshópsins. Hins vegar er talið að niðurstaðan verði sú sama, þ.e. að félög sem starfa í þágu almannaheilla fái aukinn fjárhagslegan stuðning frá stjórnvöldum þegar byggingar, viðhalds eða endurbóta mannvirkja þeirra er þörf.
    Það er mat flutningsmanns að nauðsynlegt sé að auka fjárhagslegan stuðning af hálfu stjórnvalda til félaga sem starfa í þágu almannaheilla. Með því aukast tækifæri félaganna til að láta gott af sér leiða í þágu samfélagsins alls. Í ljósi aðstæðna hafa almannaheillafélög átt erfitt með að standa undir kostnaði sem tengist byggingu eða viðhaldi fasteigna þeirra, en slík mannvirki eru grunnstoð áframhaldandi starfsemi til lengri tíma. Vegna þessa telur flutningsmaður að endurgreiða ætti almannaheillafélögum að fullu þann virðisaukaskatt sem þau greiða af vinnu manna á byggingarstað og efniskostnað við byggingu, viðhald eða endurbætur á mannvirkjum, eða sérgreindum matshlutum þeirra, sem alfarið eru í eigu þeirra.
    Í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, kemur fram að endurgreiða skuli almannaheillafélögum 60% þess virðisaukaskatts sem þau hafa greitt af vinnu manna við framangreindar framkvæmdir. Í frumvarpi þessu er lagt til að hækka endurgreiðsluna töluvert, þ.e. að fullu. Einnig er lagt til að virðisaukaskattur af efniskostnaði við þær framkvæmdir sé greiddur að fullu. Í lögum um virðisaukaskatt kemur fram í ákvæði til bráðabirgða XLIV að endurgreiða eigi 100% þess virðisaukaskatts sem þessir aðilar hafa greitt af framangreindri vinnu manna.
    Umrætt bráðabirgðaákvæði var lögfest árið 2021 með samþykkt laga nr. 32/2021. Í þeim lögum voru m.a. ýmsar breytingar í skattalöggjöf með það að markmiði að mynda skattalega hvata fyrir félög sem starfa til almannaheilla. Ýmsar þessar breytingar eru í samræmi við tillögur starfshópsins, sem skipaður var 2019 til þess að skoða skattaumhverfi almannaheillafélaga, og áður hefur verið fjallað um í greinargerð þessari. Í kjölfar COVID-19-faraldursins fóru stjórnvöld í átakið „Allir vinna“ og lög nr. 32/2021 voru samþykkt í kjölfarið. Með átakinu var ákveðið að endurgreiða virðisaukaskatt að fullu af vinnu manna á byggingarstað vegna vinnu við byggingu, endurbóta og/eða viðhalds. Það átti við nær alla slíka vinnu hvort sem hún var vegna íbúðarhúsnæðis, frístundahúsnæðis, húsnæðis á vegum sveitarfélaga eða húsnæðis á vegum almannaheillafélaga. Þessi ívilnun féll niður árið 2022 fyrir alla aðila nema félög sem starfa í þágu almannaheilla. Hún er enn í gildi fyrir almannaheillafélög, sbr. ákvæði til bráðabirgða XLIV. Það ákvæði skal sæta endurskoðun fyrir 31. desember 2025, en með frumvarpi þessu er lagt til að efni bráðabirgðaákvæðisins verði fært í 42. gr. A laganna og að ívilnun þessi verði því varanleg, þ.e. án endurskoðunar.