Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 30 — 30. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um Náttúruverndarstofnun.
Frá Jódísi Skúladóttur.
1. Heldur ný Náttúruverndarstofnun sem tekur til starfa 1. janúar 2025, sbr. lög nr. 111/2024, sambærilegri stjórnsýslulegri stöðu og Umhverfisstofnun hafði áður hvað varðar að grípa inn í og veita lögbundnar umsagnir um mál sem snerta viðkomandi málaflokka?
2. Fær Náttúruverndarstofnun að fullu þá stöðu sem Umhverfisstofnun hafði, svo sem að vera lögbundinn umsagnaraðili yfir áætlunum og framkvæmdaverkefnum sem geta haft áhrif á náttúru og umhverfi?
3. Hvernig verður tekið á fyrirséðum annmörkum sem geta komið upp þegar ný Náttúruverndarstofnun kemur að umsögnum um svæði og verkefni sem eru beinlínis á forræði stofnunarinnar, svo sem friðlýst svæði og svæði innan Vatnajökulsþjóðgarðs?
4. Getur stofnunin verið umsagnaraðili yfir sjálfri sér þegar upp koma t.d. framkvæmdaverkefni innan friðlýstra svæða?
Skriflegt svar óskast.