Ferill 38. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 38 — 38. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um einkarekna heilsugæslustöð í Garðabæ.
Flm.: Sigþrúður Ármann, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason.
Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa opnun nýrrar heilsugæslustöðvar í Garðabæ með það að markmiði að bjóða út rekstur hennar.
Greinargerð.
Reynsla af einkareknum heilsugæslustöðvum hefur verið góð og njóta þær almennt meira trausts en aðrar heilsugæslustöðvar, sbr. þjónustukönnun Maskínu fyrir allar 19 heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu árið 2023. Þar kom fram að allar fjórar heilsugæslustöðvar höfuðborgarsvæðisins sem eru einkareknar voru efstar á lista yfir þær stöðvar sem njóta mests trausts og mest ánægja er með. Í sömu könnun var Heilsugæslan Garðabæ í næstneðsta sæti. Hafa einkareknar heilsugæslustöðvar verið efstar frá því að kannanir hófust árið 2019.
Kostir einkarekinna heilsugæslustöðva eru ótvíræðir og því full ástæða til að bjóða Garðbæingum upp á þann kost.
Vert er að benda á að íbúar Garðabæjar eru um 20.000 talsins en hafa einungis eina heilsugæslustöð. Til samanburðar eru fjórar heilsugæslustöðvar í Kópavogsbæ en íbúafjöldi þar er um 40.000, eða 10.000 manns á hverja heilsugæslustöð. Því er bersýnileg þörf á annarri heilsugæslustöð í Garðabæ.