Ferill 42. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 42  —  42. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um niðurgreiðslu nikótínlyfja.


Flm.: Jódís Skúladóttir, Eva Dögg Davíðsdóttir,
Steinunn Þóra Árnadóttir, Orri Páll Jóhannsson.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að leggja til nauðsynlegar breytingar á stjórnvaldsfyrirmælum til að tryggja greiðsluþátttöku í kostnaði við nikótínlyf sem ætlað er að auðvelda fólki að hætta að reykja, draga úr reykingum eða hætta notkun á nikótínvöru. Viðeigandi breytingar á stjórnvaldsfyrirmælum skulu liggja fyrir eigi síðar en 1. janúar 2025.

Greinargerð.

    Tóbaksvarnir hafa verið öflugar um áratugaskeið á Íslandi. Mikill árangur hefur náðst í baráttunni gegn notkun tóbaks og má þar sérstaklega nefna að dregið hefur verulega úr reykingum síðastliðna áratugi. Notkun nikótíns hefur breyst og þróast í gegnum árin. Aukin notkun munntóbaks hjá yngra fólki og nýjungar eins og rafrettur og nikótínpúðar hafa haft ákveðið bakslag í för með sér og óljóst hver þróun samsettrar notkunar nikótíns er nú. Markmið laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, er að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum tóbaks, m.a. með því að minnka tóbaksneyslu og vernda fólk fyrir áhrifum tóbaksreyks.
    Samkvæmt skýrslu heilbrigðisráðherra frá 154. löggjafarþingi (þskj. 1199, 398. mál) er áætlaður samfélagslegur kostnaður af reykingum verulegur. Margir óvissuþættir hafa áhrif á hversu mikill hann er metinn, en að núvirði er hann ekki minni en 17,5 milljarðar kr. og ekki meiri en 121,5 milljarðar kr. á ársgrundvelli. Sem dæmi má nefna að áætlað er að 85% tilfella lungnakrabbameins megi rekja til reykinga.
    Árangur af notkun nikótínlyfja í þeim tilgangi að hætta að reykja er vel rannsakaður, en talið er að um 50–70% meiri líkur séu á að ná árangri við að hætta að reykja með notkun þeirra. Rannsóknir hafa einnig sýnt að þegar einstaklingar nota bæði nikótínlyf og fá aðstoð í formi samtalsmeðferðar geta líkurnar á árangri allt að því tvöfaldast. Samkvæmt nýrri sænskri rannsókn er niðurgreiðsla á nikótínlyfjum líkleg til að vera kostnaðarhagkvæm út frá samfélagslegu sjónarmiði og ekki síður ábati fyrir þá einstaklinga sem vilja hætta að reykja. Stuðningur við reykleysi er sá þáttur tóbaksvarna hér á landi sem hefur komið verst út í evrópskum samanburði þegar litið er til þeirra þátta sem talið er að skili mestum árangri.
    Reykingar eru algengari hjá þjóðfélagshópum sem eiga erfiðara með því að ná endum saman og því ærin ástæða til að styðja þann hóp við að láta af reykingum.