Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 59 — 59. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007 (lífeyrisþegar búsettir erlendis).
Flm.: Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson, Gísli Rafn Ólafsson.
1. gr.
Þrátt fyrir 2. mgr. 1. gr. skal greiða lífeyrisþega sem er búsettur erlendis heimilisuppbót, nema sýnt sé fram á að hann njóti sambærilegs stuðnings í því ríki sem hann flytur til.
2. gr.
Þrátt fyrir 2. mgr. 1. gr. skal greiða lífeyrisþega sem er búsettur erlendis sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu, nema sýnt sé fram á að hann njóti sambærilegs stuðnings í því ríki sem hann flytur til.
3. gr.
Greinargerð.
Þegar lífeyrisþegi flytur frá Íslandi til annars ríkis getur það haft áhrif á lífeyrisréttindi hans og önnur félagsleg réttindi. Búseta á Íslandi er skilyrði fyrir tryggingavernd, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um almannatryggingar, en frá þeirri meginreglu eru undantekningar, svo sem ef annað leiðir af milliríkjasamningum. Ísland er aðili að nokkrum slíkum milliríkjasamningum. Ber þar helst að nefna EES-samninginn, en á grundvelli 29. gr. samningsins hefur verið innleidd reglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa (reglugerð (EB) nr. 883/2004). Vegna þess geta Íslendingar flust til annarra EES-ríkja án þess að missa rétt til töku elli- eða örorkulífeyris.
Öðru máli gegnir um félagsleg réttindi sem falla ekki undir lög um almannatryggingar, jafnvel þótt viðkomandi réttindaflokkar séu beintengdir lífeyri almannatrygginga. Búseta á Íslandi er ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir þeim réttindum sem fjallað er um í lögum um félagslega aðstoð, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna. Heimilisuppbót og sérstaka framfærsluuppbótin falla því niður ef lífeyrisþegi flytur til útlanda þótt hann fái áfram greiddan örorku- eða ellilífeyri frá íslenska ríkinu. Heimilisuppbót er aðeins greidd til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, og sérstaka framfærsluuppbótin greiðist eingöngu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Örorkulífeyrisþegi, sem engar aðrar tekjur hefur, getur átt von á 37% tekjuskerðingu ef hann flytur til annars EES-ríkis. 1 Undanfarinn áratug hafa stjórnvöld sífellt valið þá leið að auka vægi heimilisuppbótar og sérstöku framfærsluuppbótarinnar með þeim afleiðingum að réttindaflokkarnir eru órjúfanlegur þáttur af nauðsynlegri framfærslu lífeyrisþega. Falli réttindin niður vegna flutnings til annars EES-ríkis felst í því mismunun á grundvelli búsetu.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um félagslega aðstoð sem miða að því að tryggja að þeir lífeyrisþegar sem kjósa að búa erlendis verði ekki fyrir tekjuskerðingu vegna þess að heimilisuppbót eða sérstök framfærsluuppbót fellur niður.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
1 Miðað við fyrsta örorkumat 40 ára. Reiknivél TR: www.tr.is/reiknivel/